
Veitur, dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur, hafa tekið tilboði Securitas í uppsetningu á 160 þúsund snjallmælum hjá viðskiptavinum fyrirtækisins. Um er að ræða mælaskipti á um 102 þúsund rafmagnsmælum, 55 þúsund varmamælum og þrjú þúsund vatnsmælum á þjónustusvæði Veitna. Samningurinn er um 1.800 milljóna króna virði. Snjallmælar eru jákvætt skref í þróun veitukerfa og hafa stjórnvöld víða…Lesa meira








