Fréttir

true

Reising reiðhallar framundan á Akranesi

Í gær var komið með á Æðarodda fyrstu límtréseiningarnar í væntalega reiðhöll hestamannafélagsins Dreyra. Reising hefst því í næstu viku. Það er Fasteignafélag Akraneskaupstaðar sem verður formlegur eigandi hússins en gerður hefur verið langtímasamningur um reksturinn við Dreyra. Það er sambærilegt rekstrarform og milli Akraneskaupstaðar og Golfklúbbsins Leynis um Frístundamiðstöðina við Garðavöll. Reiðhöllin verður 1.125…Lesa meira

true

Komin af neyðarstigi niður á hættustig

Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið í samráði við sóttvarnalækni að færa almannavarnastig úr neyðarstigi í hættustig vegna Covid-19. Þetta kom fram í tilkynningu frá Almannavörnum. Neyðarstigi var lýst yfir 4. október síðastliðinn, í upphafi þriðju bylgju faraldursins og smitum tók að fjölga verulega. Breytingin hefur engin áhrif á sóttvarnarráðstafanir sem eru í gildi nú samkvæmt reglugerðum heilbrigðisráðherra.…Lesa meira

true

Fyrirliggjandi upplýsingar um afhendingu bóluefna

Ísland hefur samið við fimm lyfjaframleiðendur um bóluefni gegn COVID-19. Bóluefni þriggja þeirra eru komin með markaðsleyfi og bólusetning með þeim hafin hér á landi. Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytingu kemur fram að samningar Íslands um þessi þrjú bóluefni, þ.e. Pfizer, AstraZeneca og Moderna, kveður á um skammta sem duga til að bólusetja 304.000 einstaklinga. Samkvæmt…Lesa meira

true

Stærsta undirkælingartæki Skagans 3X flutt til Noregs

Á dögunum kom frá Noregi skip til Ísafjarðar. Flutti það laxafóður fyrir vestfirsku laxeldisfyrirtækin. Skipið fór ekki tómt þaðan og til Noregs því á Ísafirði var skipað um borð 100 rúmmetra tanka til undirkælingar (Sub chilling) á laxi með viðeigandi búnaði, pöllum og böndum frá Skaganum 3X. Það er vestfirski fréttamiðillinn bb.is sem greinir frá:…Lesa meira

true

Haraldur stefnir ótrauður á að leiða áfram lista Sjálfstæðisflokks

Haraldur Benediktsson oddviti Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi og fyrsti þingmaður kjördæmisins býður fram krafta sína áfram og stefnir ótrauður á að leiða lista flokks síns fyrir alþingiskosningarnar í haust. Í viðtali við blaðamann Skessuhorns segir hann hafa fullan vilja til að skipa efsta sætið líkt og hann hefur gert fyrir síðustu kosningar. Á næstunni mun Kjördæmisráð…Lesa meira

true

Guðmundur Franklín stofnar flokk

„Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn hefur fengið úthlutað listabókstafnum O. Flokkurinn hyggst bjóða fram lista í öllum kjördæmum í komandi alþingiskosningum,“ segir í tilkynningu frá Guðmundi Franklín Jónssyni viðskiptafræðingi og fyrrum forsetaframbjóðanda. „Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn berst fyrir fullveldi landsins, beinu lýðræði, auðlindum í eigu þjóðar og gegn spillingu. Flokkurinn verður með opinn stofnfund sem verður auglýstur síðar. Áhugasamir geta…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík fær Hlyn og Mikael lánaða frá ÍA

Knattspyrnumennirnir Mikael Hrafn Helgason og Hlynur Sævar Jónsson hafa verið lánaðir til Víkings í Ólafsvík frá ÍA. Mikael Hrafn er fæddur 2001 og hefur ekki enn spilað með meistaraflokksliði ÍA. Áður lék hann með Kára og Skallagrími í Borgarnesi. Hlynur Sævar er fæddur árið 1999 og lék 16 leiki með meistaraflokki ÍA í fyrra og…Lesa meira

true

Einn einn tveir dagurinn var í gær

Viðbragðsaðilar í Grundarfirði létu ekki sitt eftir liggja á einn einn tveir deginum í gær, 11. febrúar. Sjónum var beint sérstaklega að barnavernd og öryggi og velferð barna og ungmenna. Slökkvilið Grundarfjarðar, sjúkrabíll og björgunarsveitin Klakkur óku með blikkandi ljós og vælandi sírenur fram hjá grunnskólanum og leikskólanum í Grundarfirði og vakti það mikla hrifningu…Lesa meira

true

Nánast öllu húsnæði Borgarbyggðar í Brákarey verður lokað eftir morgundaginn

Vegna alvarlegra athugasemda eldvarnaeftirlits og byggingafulltrúa hefur Borgarbyggð ákveðið að loka um ótiltekinn tíma eftir morgundaginn nánast öllu húsnæði í eigu sveitarfélagsins í Brákarey. Um er að ræða starfsemi samtals fjórtán rekstraraðila; félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana í Brákarbraut 25 (fyrrum sláturhús og frystihús) og að hluta á Brákarbraut 27 (fyrrum fjárrétt). Rekstraðilum í húsinu var…Lesa meira

true

Stofna Hinsegin Vesturland í kvöld

Stofnfundur félags hinsegin fólks á Vesturlandi verður haldinn með rafrænum hætti í kvöld og hefst kl. 20:00. Félagið verður opið öllu hinsegin fólk, aðstandendum þeirra og öðrum velunnurum. Félagið mun hafa það markmið að standa fyrir viðburðum, fræðslu og ráðgjöf um allt Vesturland. Fundurinn munn fara fram í gegnum Zoom fjarfundabúnað en hægt er að…Lesa meira