Fréttir

true

Uppstilling við röðun á lista Viðreisnar í NV kjördæmi

Landshlutaráð Viðreisnar í Norðvesturkjördæmis ákvað á fundi sínum í vikunni að nota uppstillingu við röðun á framboðslista fyrir kosningar í haust. Uppstillinganefnd hefur þegar verið skipuð og er vinna hennar að hefjast, samkvæmt tilkynningu frá flokknum. „Hvert landshlutaráð fyrir sig tekur ákvörðun um hvaða aðferð er beitt við skipan framboðslista, í samræmi við samþykktir Viðreisnar.…Lesa meira

true

Öðruvísi öskudagur að þessu sinni

Sóttvarnayfirvöld hafa gefið út leiðbeiningar varðandi heimsóknir barna í fyrirtæki á öskudaginn sem er í næstu viku. Þar er hvatt til að hátíðarhöld verði einkum haldin á heimavelli; í skólum, frístundaheimilum eða félagsmiðstöðvum. Ef hefð er fyrir því að ganga á milli húsa eða fyrirtækja er mælt með að foreldrafélög tækju upp á sína arma…Lesa meira

true

Auka samvinna í öldrunarstarfsemi á Vesturlandi

Í Velferðarstefnu Vesturlands sem kom út fyrir ári síðan voru málefni eldri borgara í brennidepli. Þar voru sett fram ýmis markmið sem eiga að stuðla að aukinni vellíðan eldri borgara og bæta þjónustu við þennan ört vaxandi hóp, m.a. með því að styrkja samstarf og samvinnu þeirra aðila sem koma að öldrunarþjónustu. Ljóst er að…Lesa meira

true

Vilja að bótaréttur slökkviliðsmanna sé viðurkenndur

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hefur sent inn umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um slysatryggingar almannatrygginga, sem fjalla m.a. um atvinnusjúkdóma og miskabætur. Á Íslandi eru starfandi um þúsund slökkviliðsmenn og af þeim eru rúmlega 400 í fullu starfi og sinna þá flestir einnig sjúkraflutningum. Þeir einstaklingar sem sinna þessum störfum…Lesa meira

true

Streymisfundur um tækifæri sem eru að verða til í atvinnulífinu

Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi standa fyrir opnum streymisfundi á Teams miðvikudaginn 17. febrúar kl. 09:00. Þar mun Hafsteinn Helgason verkfræðingur og ráðgjafi hjá Eflu fara yfir ýmis tækifæri sem eru að verða til í atvinnulífinu. Hafsteinn hefur um árabil komið að ýmsum viðskiptaþróunarverkefnum fyrir hönd fyrirtækisins, en hann var sviðsstjóri viðskiptaþróunar hjá Eflu. Hann hefur…Lesa meira

true

Útgerðir á Vesturlandi greiða hálfan milljarð í veiðigjöld

Fiskistofa hefur birt upplýsingar um veiðigjöld sem íslenskar útgerðir greiða í ríkissjóð fyrir nýtingu auðlindarinnar fyrir árið 2020. Alls greiða útgerðir tæplega 4,8 milljarða króna í veiðigjöld fyrir árið 2020, greiddu 6,6 milljarða fyrir 2019 og 11,3 milljarða fyrir 2018. Af 4,8 milljörðum sem ríkissjóður innheimtir koma 505 milljónir króna frá útgerðum á Vesturlandi. Í…Lesa meira

true

Breytingar á yfirstjórn Norðuráls og móðurfélags þess

Gunnar Guðlaugsson, forstjóri Norðuráls, hefur verið ráðinn til að stýra álverum Century Aluminum í Evrópu og Norður Ameríku. Í tilkynningu frá fyrirtækinu kemur fram að nýr starfstitill Gunnars verður „Executive Vice President, Global Operations“ og mun hann bera ábyrgð á rekstri álvera Century Aluminum um allan heim. Century Aluminum á og rekur, auk Norðuráls á…Lesa meira

true

Bæjarstjórn Akraness bókar um flýtingu Sundabrautar

Bæjarstjórn Akraness samþykkti á síðasta fundi sínum í gær bókun þar sem fagnað er nýrri skýrslu um lagningu Sundabrautar þar sem skýrðir eru helstu valkostir varðandi legu hennar og þverun Kleppsvíkur. Bókunin er samhljóða yfirlýsingu sem öll tíu sveitarfélögin á Vesturlandi stóðu saman að í gær og birt var hér í Skessuhorni. Í bókun bæjarstjórnar…Lesa meira

true

Lifandi og skemmtileg stemning í Nýsköpunarsetrinu Breið

Þróunarfélagið Breið var stofnað á Akranesi síðastliðið sumar þegar fulltrúar 17 fyrirtækja og stofnana skrifuðu undir samkomulag um stofnun félagsins. Síðan hefur félagið opnað nýsköpunar- og rannsóknasetur í gamla HB húsinu þar sem einstaklingar og fyrirtæki geta deilt vinnuaðstöðu. Mikil uppbygging hefur nú þegar átt sér stað í húsinu en margt er enn á teikniborðinu.…Lesa meira

true

Blés til Matfuglsmóts á ísilögðu Vatnshamravatni

Sveinbjörn Eyjólfsson hafði veg og vanda að ístöltmóti sem haldið var á spegilsléttu Vatnshamravatni í Andakíl síðastliðinn sunnudag. Einmuna vetrarblíða var og aðstæður allar hinar ákjósanlegustu. Keppt var í þremur flokkum á mótinu; Framtíðin – 17 ára og yngri, Skvísur – konur 18 ára og eldri og Töffarar – karlar 18 ára og eldri. Dómarar…Lesa meira