Fréttir

true

Hlynur Bæringsson í landsliðshóp Íslands

Í ágúst og september mun íslenska karlalandsliðið í körfubolta leika í undankeppni fyrir Evrópumótið sem fram fer á næsta ári. Íslendingar lentu í riðli með Belgíu, Sviss og Kýpur í undankeppninni en hópurinn sem mun leika leikina sex í undankeppninni var tilkynntur á dögunum. Það eru sextán körfuboltamenn sem munu taka þátt í verkefninu og…Lesa meira

true

Nýr bæklingur um Einkunnir

Á dögunum var gefinn út nýr bæklingur um fólkvanginn Einkunnir í Borgarfirði. Í honum er að finna upplýsingar um tilurð fólkvangsins og einkenni, skipulag og nýtingu. Kort af svæðinu ásamt gönguleiðakorti er að finna á bakhlið. Bæklinginn er hægt að nálgast í ráðhúsi Borgarbyggðar og á upplýsingamiðstöðvum.  Lesa meira

true

Lok strandveiða á svæðum A, B og C

Á vef Fiskistofu er greint frá því að von sé á auglýsingu í stjórnartíðindum um lok strandveiða á svæðum A, B og C. Samkvæmt þeirri auglýsingu verður síðasti dagur strandveiða á svæðum A og C þriðjudagurinn 9. ágúst næstkomandi. Bann við strandveiðum á þeim svæðum tekur því gildi frá og með miðvikudeginum 10. ágúst. Þá…Lesa meira

true

Lilja Rafney vill leiða lista VG áfram

Lilja Rafney Magnúsdóttir þingmaður hefur gefið kost á sér til að leiða áfram lista Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi í forvali VG fyrir Alþingiskosningar í haust. „Þau sjö ár sem ég hef setið á Alþingi hafa verið miklir og lærdómsríkir umbrotatímar í lífi þjóðarinnar. Sú reynsla sem ég hef hlotið á þessum tíma hefur nýst mér vel…Lesa meira

true

Jónína Erna stefnir á 2. til 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokks

Jónína Erna Arnardóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað til þriðja sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir Alþingiskosningar í haust. Jónína Erna er búsett í Borgarnesi og starfar sem tónlistarkennari við Tónlistarskóla Borgarbyggðar. Undanfarin sex ár hefur hún setið í sveitarstjórn Borgarbyggðar og situr í stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga, auk þess…Lesa meira

true

Mokveiði af makríl í höfninni

Mikill fjöldi fólks á öllum aldri hefur undanfarna daga safnast saman á bryggjunum í Ólafsvík og í Rifi til þess að veiða makríl sem gengur inn í hafninar. Mikill stemning hefur myndast þar að undanförnu, enda margt um manninn á hafnarsvæðinu og margir við veiðar hverju sinni. Sumir hafa verið að veiða í matinn á…Lesa meira

true

Ólympíuleikarnir hefjast í kvöld

Ólympíuleikarnir í Rio de Janeiro hefjast formlega í kvöld klukkan 23:00 með setningarathöfn leikanna og skrúðgöngu. Þar ganga íþróttamenn og fulltrúar frá hverju þátttökulandi með fána sinnar þjóðar inn á Maracana leikvanginn í Rio. Í samræmi við hefð Ólympíuleikanna munu Grikkir ganga fyrstir inn á völlinn en gestgjafarnir, Brasilíumenn síðastir. Aðrar þjóðir ganga inn á…Lesa meira

true

Segir að bæta þurfi búnað slökkviliðsins vegna fyrirhugaðs háhýsis

Nú er unnið að framkvæmdum við Borgarbraut 57-59 í Borgarnesi þar sem á næstu mánuðum á að rísa fimm hæða hótelbygging með 82 herbergjum og sjö hæða íbúðablokk fyrir 60 ára og eldri. Í íbúðahlutanum verða 29 íbúðir. Byggingarnar tvær munu tengjast með þjónustukjörnum á jarðhæð og undir þeim verður bílakjallari sem tilheyra mun íbúðablokkinni.…Lesa meira

true

Birgir Leifur og Valdís Þóra keppa á sterkum mótaröðum

Birgir Leifur Hafþórsson, nýkrýndur Íslandsmeistari í golfi, og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni keppa nú bæði á næst-sterkustu atvinnumótaröðum Evrópu í golfi. Birgir Leifur hóf leik í gær á Áskorendamótaröðinni sem fram fer í Svíþjóð og Valdís Þóra hóf leik í fyrradag á Let Access mótaröðinni sem fram fer í Sundsvall í Svíþjóð. Birgir Leifur fór…Lesa meira

true

Dagskrá Ólafsdalshátíðar

Eins og áður hefur verið greint frá í Skessuhorni verður Ólafsdalshátíðin haldin næstkomandi laugardag, 6. ágúst í Ólafsdal í Gilsfirði. Lokahönd hefur nú verið lögð á dagskránna og þar kennir ýmissa grasa. Meðal annars mun Ómar Ragnarsson fara með gamanmál og Lína langsokkur skemmta börnum og fullorðnum. Þá verður boðið upp á ferð um Gilsfjörð…Lesa meira