Fréttir

true

Segir að bæta þurfi búnað slökkviliðsins vegna fyrirhugaðs háhýsis

Nú er unnið að framkvæmdum við Borgarbraut 57-59 í Borgarnesi þar sem á næstu mánuðum á að rísa fimm hæða hótelbygging með 82 herbergjum og sjö hæða íbúðablokk fyrir 60 ára og eldri. Í íbúðahlutanum verða 29 íbúðir. Byggingarnar tvær munu tengjast með þjónustukjörnum á jarðhæð og undir þeim verður bílakjallari sem tilheyra mun íbúðablokkinni.…Lesa meira

true

Birgir Leifur og Valdís Þóra keppa á sterkum mótaröðum

Birgir Leifur Hafþórsson, nýkrýndur Íslandsmeistari í golfi, og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni keppa nú bæði á næst-sterkustu atvinnumótaröðum Evrópu í golfi. Birgir Leifur hóf leik í gær á Áskorendamótaröðinni sem fram fer í Svíþjóð og Valdís Þóra hóf leik í fyrradag á Let Access mótaröðinni sem fram fer í Sundsvall í Svíþjóð. Birgir Leifur fór…Lesa meira

true

Dagskrá Ólafsdalshátíðar

Eins og áður hefur verið greint frá í Skessuhorni verður Ólafsdalshátíðin haldin næstkomandi laugardag, 6. ágúst í Ólafsdal í Gilsfirði. Lokahönd hefur nú verið lögð á dagskránna og þar kennir ýmissa grasa. Meðal annars mun Ómar Ragnarsson fara með gamanmál og Lína langsokkur skemmta börnum og fullorðnum. Þá verður boðið upp á ferð um Gilsfjörð…Lesa meira

true

Ingibjörg og Hlynur útnefnd Íbúar ársins

Á byggðahátíðinni Reykhóladögum, sem haldnir voru seint í júlímánuði, var tekið upp á þeirri nýbreytni að velja sveitunga ársins. Óskuðu aðstandendur hátíðarinnar eftir tilnefningum og niðurstaðan varð sú að Ingibjörg Kristjánsdóttir hjúkrunarfræðingur og Hlynur Þór Magnússon sagnfræðingur voru bæði sæmd nafnbótinni „Íbúar ársins 2016“. Fengu þau viðurkenningu og bikara nafnbótinni til staðfestingar. Árið 1973, þegar…Lesa meira

true

Skíðadeild UMFG heiðruð fyrir uppbyggingarstarf

Skíðadeild UMFG í Grundarfirði hlaut framfaraverðlaun Eyrbyggja á bæjarhátíðinni Á góðri stundu sem haldin var í lok júlí. Viðurkenninguna fékk skíðadeildin fyrir mikið og gott uppbyggingarstarf á skíðasvæði Snæfellinga í Grundarfirði með aðstoð heimamanna en deildin stóð fyrir opnun gamla skíðasvæðisins fyrir ofan Grundarfjörð síðastliðinn vetur og safnaði fyrir nýjum diskum á skíðalyftuna sem var…Lesa meira

true

Regnbogafánanum flaggað

Regnbogafánar voru dregnir að húni fyrir utan bæjarskrifstofur Akraneskaupstaðar í morgun í tilefni af Hinsegin dögum sem nú standa yfir og ná hápunkti sínum með Gleðigöngunni í Reykjavík á laugardag. Með því að flagga Regnbogafánanum vilja bæjaryfirvöld sína hinsegin fólki samstöðu í mannréttindabaráttu sinni, sem og að óska þeim gleðilegrar hátíðar.Lesa meira

true

Brotist inn í dánarbú á Akranesi

Brotist var inn í kjallara íbúðarhúsnæðis við Akurgerði á Akranesi um verslunarmannahelgina og stolið þaðan ýmsum raftækjum úr dánarbúi. Fyrrum íbúi lést í júlímánuði. Að sögn sonar hans hleypur verðmæti þýfisins á 700 til 800 þúsund krónum. „Þarna var stolið Imac 21,5“ tölvu sem er brotin í efra hægra horninu, Samsung 55 tommu smart sjónvarpi,…Lesa meira

true

Valur sigraði Víking Ólafsvík

Í gær léku lið Vals og Víkings í Ólafsvík í þrettándu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Leikurinn fór fram í góðu veðri á Valsvelli. Síðasti leikur sem Valur vann tryggði þeim sæti í úrslitum bikarkeppninnar en Víkingur hefur verið í vandræðum í undanförnum leikjum og ekki unnið leik síðan í lok júní. Leikurinn endaði…Lesa meira

true

Lárus gefur kost á sér í forustusæti í forvali VG

Lárus Ástmar Hannesson í Stykkishólmi kveðst í yfirlýsingu sem hann hefur sent frá sér að hann bjóði sig fram í 1. – 2. sætið á lista í forvali Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi, fyrir komandi alþingiskosningar. “Ég hef tekið virkan þátt í starfi VG um árabil og verið varaþingmaður frá 2013. Ég hef setið…Lesa meira