Fréttir

true

Fjölbýlishús risið við Krossvelli í Hvalfjarðarsveit

Byggingarfélagið X ehf. byggir um þessar mundir fjölbýlishús við Krossvelli í Hvalfjarðarsveit. Er þetta jafnframt fyrsta fjölbýlishúsið í sveitarfélaginu. Um er að ræða tveggja hæða fjölbýlishús með sex íbúðum alls og fylgir bílskúr öllum íbúðunum og er innangengt í bílskúra úr íbúðum jarðhæðar. Í lýsingu á íbúðunum segir m.a: „Við hönnun hússins var lögð áhersla…Lesa meira

true

Uppsetning á frisbígolfvelli í Grundarfirði

Félagarnir Hafsteinn Mar Sigurbjörnsson og Loftur Árni Björgvinsson eru miklir áhugamenn um folf en það er skemmtileg stytting á orðinu frisbígolf. Folf er svipað og golf nema að leikmenn kasta svifdiskum í stað þess að slá golfkúlum. Árið 2014 fóru þeir Haddi og Loftur af stað með hugmynd um að setja upp frisbígolfvöll í Grundarfirði.…Lesa meira

true

Prentmet lokar útibúi sínu á Akranesi

Í sjónvarpsvísinum Póstinum, sem Prentverk gefur út, er greint frá breytingum á starfseminni á Akranesi frá og með 18. janúar sl. Starfseminni verður hætt við Heiðargerði 22 á Akranesi og hún alfarið flutt í höfuðstöðvar Prentmets við Lyngháls 1 í Reykjavík. Húsnæði fyrirtækisins við Heiðargerði er einnig auglýst til sölu. Prentmet mun þó áfram gefa…Lesa meira

true

Séra Jón settur prestur til bráðabirgða

Séra Jón Ragnarsson hefur verið settur prestur til bráðabirgða í sameinað Reykholts- og Hvanneyrarprestakall í Borgarfirði. Eins og kunnugt er lét séra Geir Waage sóknarprestur af störfum fyrir aldurs sakir um nýliðin áramót, en hann varð sjötugur í desember. Vegna sameiningar prestakallanna hefur nú verið boðað til safnaðarfunda til að kjósa ellefu manns í valnefnd.…Lesa meira

true

Umferðarslys – ökumaður festi handlegg undir bílnum

Um tólfleitið í dag fór flutningabíll á hliðina á Vesturlandsvegi við Skipanes. Líklegt er talið að bíllinn hafi fokið en mjög hvasst er á vettvangi.  Annar handleggur ökumanns var fastur undir bílnum og þurfti að kalla til kranabíl til að losa hann undan bílnum.  Hann var síðan fluttur með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landsspítala í Fossvogi.…Lesa meira

true

VG samþykkir að viðhafa forval í Norðvesturkjördæmi

Kjördæmisþing Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi samþykkti einróma á fundi í gær að hafa forval til að velja á framboðslista fyrir alþingiskosningarnar 25. september næstkomandi. Þar með hefur hreyfingin samþykkt að viðhafa forval í öllum kjördæmum. Steinunn Rósa Guðmundsdóttir leiðir kjörstjórn í NV kjördæmi sem mun annast framkvæmd og skipulag forvalsins. Í forvali verður kosið í…Lesa meira

true

Endurbætur á vínbúðinni í Ólafsvík

Í gær var Vínbúðin í Ólafsvík opnuð að nýju eftir breytingar innanhúss. Verslunin fékk nýtt útlit, skipt var um gólfefni og ljós ásamt því að hún var skipulögð upp á nýtt; settar upp nýjar innréttingar og merkingar bættar. Þá var sett upp nýtt ljósaskilti utan á húsið. Gekk vinnan hratt og vel fyrir sig og…Lesa meira

true

Þyngd þarf ekki að segja til um heilbrigði

Rósa Soffía Haraldsdóttir er í hópi bloggara sem halda úti síðunni Lady.is. Á blogginu og á Instagram reikning sínum @rosasoffia hefur hún verið dugleg að tala um allt það sem brennur á henni hverju sinni, eitt af því er heilsa, bæði andleg og líkamleg. Fyrir rúmri viku setti hún inn færslu á Instagram þar sem…Lesa meira

true

Handboltalandsliðið fer með tvö stig í milliriðil

Landslið karla í handbolta leikur nú á Heimsmeistaramóti í Egyptalandi. Liðið lék þrjá leiki í riðlakeppninni undanfarna viku; tapaði einum en vann tvo. Fyrst mættu strákarnir Portúgal og hófu þeir leikinn af miklum krafti en það dugði ekki til. Í síðari hálfleik var of margt sem gekk ekki upp hjá liðinu og Portúgal tók bæði…Lesa meira