Fréttir

true

Síðasta löndun ársins

Síðasta löndun ársins í höfnum Snæfellsbæjar var úr Hafdísi SK-04, en margir bátar lönduðu afla sínum 30. desember. Á myndinni er Ásbjörn Óttarsson útgerðarmaður í Nesveri ásamt áhafnarmeðlimi á Hafdísi að landa afla dagsins, sem var 18 tonn úr tveimur lögnum, en Hafdísin rær með beitningarvél.Lesa meira

true

Takk fyrir liðið og gleðilegt nýtt ár!

Starfsfólk Skessuhorns sendir lesendum sínum nær og fjær hugheilar óskir um gleðilegt ár. Þökkum ánægjuleg samskipti á árinu sem nú er að kveðja. Hefð er fyrir því að gamla árið sé kvatt með því að skjóta upp flugeldum. Á því verður engin undantekning um þessi áramót enda veðurspá góð fyrir kvöldið. Hér þjóta nokkrir skoteldar…Lesa meira

true

Flugeldasala björgunarfélagsins fór vel af stað

Það var líf og fjör í flugeldasölu Björgunarfélags Akraness við Kalmansvelli 2 síðdegis í dag þegar blaðamaður Skessuhorns var þar á ferðinni. Fjölskyldur voru að kaupa flugelda, stjórnuljós og rótarskot og ljóst að spennu og eftirvæntingar gætti í röðum yngri kynslóðarinnar – og einstaka pabba einnig. Að sögn björgunarsveitarfólks fór salan vel af stað, en…Lesa meira

true

Jakob Sigurðsson er knapi ársins

Jakob Svavar Sigurðsson var valinn knapi ársins 2020, en valið var kunngjört í höfuðstöðvum LH í Laugardal skömmu fyrir jól. Jakob átti gott ár á bæði keppnisbraut og kynbótavelli og sýndi sem fyrr prúða og fagmannlega reiðmennsku, segir í umsögn. Knapar ársins vöru sömuleiðis valdir í fleiri greinum. Efnilegasti knapi ársins er Glódís Rún Sigurðardóttir,…Lesa meira

true

Undirrita samninga um viðbótar bóluefni

Samningur Íslands um bóluefni Moderna og viðbótarsamningur um bóluefni frá Pfizer voru undirritaðir í heilbrigðisráðuneytinu í dag. Samningurinn við Moderna tryggir bóluefni fyrir 64.000 Íslendinga sem er það sama og aðrar þjóðir í samstarfi Evrópuþjóða eiga rétt á sem hlutfall af mannfjölda. Viðbótarsamningurinn við Pfizer kveður á um 80.000 bóluefnaskammta til viðbótar fyrri samningi, svo…Lesa meira

true

Besta ár í útflutningi hrossa síðan 1997

Undir lok árs var búið að flytja úr landi 2.324 hross til 21 lands. Er það 54% fjölgun í útflutningi frá árinu 2019 þegar 1.509 hross voru flutt út. Leita þarf allt aftur til 1997 til að finna stærra ár í útflutningi en þá voru flutt út 2.563 hross. Þetta kemur fram í frétt Eiðfaxa.…Lesa meira

true

Framsókn í NV kjördæmi frestar póstkosningu

„Kjörstjórn póstkosningar Framsóknarmanna í Norðvesturkjördæmi hefur ákveðið, vegna strangra sóttvarnarreglna sem skapað hafa verulega erfiðleika við framkvæmd póstkosningarinnar, að fresta kosningunni um 15 daga. Frestunin byggir á heimild í reglum um póstkosningu 40. gr. Eftirfarandi breytingar verða á dagsetningum: Framboðsfrestur til þátttöku í póstkosningunni rennur út þriðjudaginn 1. febrúar 2021, kl. 12:00 á hádegi. Kjörskrá…Lesa meira

true

Guðlaug tilnefnd til verðlauna Evrópusambandsins

Guðlaug við Langasand á Akranesi hefur verið tilnefnd til Mies van der Rohe verðlauna Evrópusambandsins 2022 sem veitt eru fyrir framúrskarandi nútíma arkitektúr. Harpan í Reykjavík hlaut þessi verðlaun árið 2013. Þetta kemur fram á Facebook síðu Basalt arkitekta en fyrirtækið hannaði Guðlaugu ásamt Mannviti verkfræðistofu. Mies van der Rohe verðlaunin eru ein virtustu byggingarlistarverðlaun…Lesa meira

true

Níu greindust með Covid-19 í gær

Níu Covid smit greindust innanlands í gær. Þar af voru sex í sóttkví. Fjögur smit greindust á landamærunum. 23 liggja á sjúkrahúsi vegna Covid en enginn þeirra er á gjörgæslu. Á landinu eru nú 147 í einangrun og 232 í sóttkví. Nýgengi innanlandssmita er 30 og landamærasmita 18,5.Lesa meira

true

Bólusetning hafin á hjúkrunarheimilunum

Í dag fá íbúar á dvalar- og hjúkrunarheimilum á Vesturlandi bóluefni frá Pfizer. Á Höfða, dvalar- og hjúkrunarheimili á Akranesi, var byrjað að sprauta íbúa í morgun. Fyrst til að vera bólusett var Hulda Haraldsdóttir. Það var Gunnar Bergmann hjúkrunarfræðingur á Höfða sem sá um bólusetninguna. Á myndinni með þeim er einnig Vigdís Björnsdóttir íbúi…Lesa meira