Fréttir

true

Norðan hvassviðrið mun ganga niður með kvöldinu

Víða um vestan- og sunnanvert landið hefur verið bálhvasst frá því í morgun. Gul viðvörun er í gildi um allt landið. Björgunarsveitir voru í morgun kallaðar út í Vestmannaeyjum og á Suðurnesjum, en eftir hádegi fóru hjálparbeiðnir að berast af vestanverðu landinu vegna foktjóns. Útkallsbeiðni barst af Kjalarnesi rétt fyrir hádegi vegna þakklæðningar sem var…Lesa meira

true

Gul viðvörun vegna veðurs allan sunnudaginn

Í kvöld er spáð vaxandi norðanátt með éljum um landið norðan- og austanvert, en þurrt verður sunnan heiða. Norðan- og norðaustan 15-23 m/s á morgun, sunnudag. Rigning eða slydda verður á láglendi norðan- og austanlands og hiti yfir frostmarki, en snjókoma eða slydda undir kvöld og kólnar heldur. Úrkomulítið á sunnanverðu landinu og hiti 1…Lesa meira

true

Mikið flóð í Hvítá í morgun

Mikið flóð var í Hvítá í Borgarfirði í morgun eftir úrhellisrigningu og snjóbráð til fjalla frá því aðfararnótt aðfangadags. Áin flæddi m.a. yfir veginn að Hvítárbakka. Þá hefur hún einnig farið yfir veginn á mós við Ferjukot þar sem meðfylgjandi myndir voru teknar. Að sögn heimafólks í Ferjukoti er þetta mesta flóð í ánni í…Lesa meira

true

Jólakort frá Garða- og Saurbæjarprestakalli

Prestar, starfsfólk og safnaðarnefndir í Garða- og Saurbæjarprestakalli bjóða lesendum í lítið ferðalag um kirkjur prestakallsins til að upplifa jólatöfra. Á meðfylgjandi myndbandi er lítil jólakúla sem gaman er að kíkja inn í.Lesa meira

true

Símon syngur Ó helga nótt

Tuttugasti og fjórði og jafnframt síðasti gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það var Símon Orri Jóhannsson sem flutti lagið Ó helga nótt. Lagið er eftir Adolph Adams og textinn eftir Sigurð Björnsson.Lesa meira

true

Gagnleg ráð og ábendingar vegna eldvarna um hátíðarnar

Kannanir hafa sýnt að eldvarnir eru ófullnægjandi á mörgum heimilum og íbúarnir því berskjaldaðir fyrir eldsvoðum. Hættan er mest þegar líður að jólum, þegar skreytingum fjölgar. Svo um sjálfar hátíðirnar þarf að passa upp á enn fleira, svo sem raforkunotkun, ástand reykskynjara, logandi kerti og margt fleira. Í ljósi þess að nú gengur í garð…Lesa meira

true

Kertasníkir er síðastur til byggða

Síðasti jólasveinninn til byggða er hann Kertasníkir. Í boði Kvikmyndafjelags Borgarfjarðar er hér flutt erindi Jóhannesar úr Kötlum um þann dáðadreng sem og lokaerindin: https://youtu.be/Yq_-JMfU-UgLesa meira

true

Vísitala þorsks lækkar þriðja árið í röð en væntingar eru um góða nýliðun

Stofnvísitala þorsks samkvæmt haustmælingu Hafró hefur lækkað töluvert frá árinu 2017 þegar hún mældist sú hæsta frá upphafi haustmælingarinnar. Nú er hún svipuð því sem var árin 2008-2009. Lækkunina í ár rekur Hafró til þess að fjöldavísitala 40-80 cm fisks var undir meðaltali rannsóknartímabilsins. Stofnvísitala ýsu hefur haldist svipuð frá árinu 2017. Vísitala annarra nytjastofna…Lesa meira