Fréttir

true

„Mikilvægt öllum að taka þátt í félagsstarfi og rækta góð vinasambönd”

„Ég hef alltaf verið mjög félagslynd. Ég mætti á minn fyrsta skátafund níu ára gömul fyrir tilstilli Fríðu frænku, eða Málfríðar Þorvaldsdóttur föðursystur minnar, sem var skátaforingi í Skátafélagi Akraness til fjölda ára,“ segir Sigríður Eiríksdóttir í samtali við Skessuhorn. Hún hefur ásamt því að vera virk í félagsmálum lagt ýmsum góðum málum lið, eins…Lesa meira

true

Gáttaþefur kemur til byggða

Í dag er röðin komin að honum Gáttaþef af jólasveinunum þrettán. Í boði Kvikmyndafjelags Borgarfjarðar er hér flutt kvæði Jóhannesar úr Kötlum um drenginn þann: https://youtu.be/FdrUUhksTpYLesa meira

true

Ríkið stefnir að sölu Íslandsbanka á næsta ári

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur fallist á tillögu Bankasýslu ríkisins um sölu á skilgreindum eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka, en ríkið á bankann nú að öllu leyti. Í því felst að ráðherra útbýr nú greinargerð sem lögð verður fyrir fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, auk þess að óska umsagnar Seðlabanka Íslands í samræmi við…Lesa meira

true

Íslandspósti heimilað að hækka gjaldskrá um 15% um áramót

Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt niðurstöðu sína um beiðni Íslandspósts um að mega hækka gjaldskrá fyrir sendingar bréfa frá 0-2000 grömm. Íslanspóstur fór fram á að mega hækka gjaldskrá sína um 15%. Í niðurstöðu PFS segir að stofnunin sjái ekki ástæðu til að gera athugasemdir við beiðnina og tekur verðbreytingin gildi 1. janúar 2021. Sem…Lesa meira

true

Skólakór Grundaskóla syngur Jólasálm

Tuttugasti og fyrsti gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það var hluti af skólakór Grundaskóla sem flutti lagið Jólasálm en lagið er eftir Valgerði Jónsdóttur kórstjóra. Textinn er eftir Brynju Einarsdóttur. Valgerður stjórnaði kórnum sem í voru Ásrún Silja, Emilía Kristín, Sylvía, Jenný Lind og Lilja Sól. Sigrún…Lesa meira

true

LbhÍ festir kaup á mála- og samningakerfi

Landbúnaðarháskóli Íslands hefur fest kaup á mála- og samningakerfi WorkPoint frá Spektra ehf. fyrir málasafn skólans. WorkPoint byggir á SharePoint lausn í Microsoft Office 365 umhverfi en LbhÍ er fyrsti skólinn hér á landi sem tekur upp þessa lausn. „Verkefni LbhÍ eru mörg en fyrir utan skipulag í kringum það fjölbreytta nám sem í boði…Lesa meira

true

Hættir störfum eftir 44 ár á sama vinnustað

Erna Kristín Hjaltadóttir fluttist að Fellsenda 1968 en þar voru tengdaforeldrar hennar bændur ásamt sonum sínum Vésteini og Magnúsi Arngrímssonum. Síðar tók yngra fólkið við búskapnum en þar var tvíbýli. Jörðina leigðu ábúendur af Minningarsjóði Ólafs Finnssonar og Guðrúnar Tómasdóttur frá Fellsenda. Þau hjónin hættu búskap árið 2006 þegar Hjalti sonur Ernu og Vésteins tók…Lesa meira

true

Guðað á glugga

Á vetrarsólstöðum er það Gluggagægir sem væntanlegur er til byggða. Í boði Kvikmyndafjelags Borgarfjarðar er hér flutningur á kvæði Jóhannesar úr Kötlum um Gluggagæi: https://youtu.be/914XPL-mBsYLesa meira

true

Framundan er ár mikillar uppbyggingar og sóknar í atvinnumálum

Fjárhagsáætlun Akraneskaupstaðar fyrir árið 2021 og þriggja ára áætlun 2022 til 2024 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar Akraness 15. desember síðastliðinn. Einnig var fjárfestinga- og framkvæmdaáætlun samþykkt. Meðal helstu atriða fjárhagsáætlunar má nefna að gert er ráð fyrir óbreyttu útsvari á árinu 2021, eða 14,52%. Flestar gjaldskrár hækka í samræmi við lífskjarasamninga, eða um 2,5%,…Lesa meira

true

Hvassir strengir á sunnanverðu Snæfellsnesi

Í gildi er gul viðvörun vegna hvassviðris á Faxaflóasvæðinu. Það verður norðan stormur og vindhviður í dag. Gætu þær staðbundið farið yfir 40 m/s á sunnanverðu Snæfellsnesi. Við þær aðstæður er varasamt að vera á ferð með ökutæki sem taka á sig mikinn vind. Viðvörunin er í gildi í allan dag og til hádegis á…Lesa meira