Fréttir

true

Jólahúsið er á Hellissandi

Menningarnefnd Snæfellsbæjar tilkynnti í gær hvaða hús væri Jólahús Snæfellsbæjar. Að þessu sinni varð Túnberg á Hellissandi fyrir valinu en þar búa hjónin Davíð Óli Axelsson og Guðrún Halla Elíasdóttir. Menningarnefnd valdi einnig jólaglugga Snæfellsbæjar, hann var á Laufási á Hellissandi. Loks var jólagarðurinn á Arnarstapa. Piparkökuhúsið að þessu sinni áttu þær Aníta Ólafsdóttir og…Lesa meira

true

Þrír í einangrun á Vesturlandi

Lögreglan á Vesturlandi gaf nú rétt í þessu út tölur um fjölda smitaðra og í sóttkví í landshlutanum. Þrír eru nú í einangrun; tveir á Akranesi og einn í Ólafsvík. Að auki er einn í sóttkví í Ólafsvík.Lesa meira

true

Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi

Föstudaginn 18. desember var 51 nemandi brautskráður frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Vegna fjöldatakmarkana voru athafnir dagsins tvær, sú fyrri klukkan 11 en þá brautskráðust nemendur á iðnnámsbrautum, en klukkan 14 voru brautskráðir nemendur af bóknámsbrautum. Engir gestir fengu að vera viðstaddir athafnnirnar, en streymt var frá brautskráningunni. „Þrátt fyrir óvenjulegar kringumstæður var dagskráin með…Lesa meira

true

Hanna Þóra syngur lagið Jól

Tuttugasti og annar gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það var Hanna Þóra Guðbrandsdóttir sem flutti lagið Jól eftir Jórunni Viðar. Textinn er eftir Stefán frá Hvítadal. Rut Berg lék á flautu. Hlekk á lagið má finna fyrir neðan.Lesa meira

true

„Mikilvægt öllum að taka þátt í félagsstarfi og rækta góð vinasambönd”

„Ég hef alltaf verið mjög félagslynd. Ég mætti á minn fyrsta skátafund níu ára gömul fyrir tilstilli Fríðu frænku, eða Málfríðar Þorvaldsdóttur föðursystur minnar, sem var skátaforingi í Skátafélagi Akraness til fjölda ára,“ segir Sigríður Eiríksdóttir í samtali við Skessuhorn. Hún hefur ásamt því að vera virk í félagsmálum lagt ýmsum góðum málum lið, eins…Lesa meira

true

Gáttaþefur kemur til byggða

Í dag er röðin komin að honum Gáttaþef af jólasveinunum þrettán. Í boði Kvikmyndafjelags Borgarfjarðar er hér flutt kvæði Jóhannesar úr Kötlum um drenginn þann: https://youtu.be/FdrUUhksTpYLesa meira

true

Ríkið stefnir að sölu Íslandsbanka á næsta ári

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra hefur fallist á tillögu Bankasýslu ríkisins um sölu á skilgreindum eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka, en ríkið á bankann nú að öllu leyti. Í því felst að ráðherra útbýr nú greinargerð sem lögð verður fyrir fjárlaganefnd og efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis, auk þess að óska umsagnar Seðlabanka Íslands í samræmi við…Lesa meira

true

Íslandspósti heimilað að hækka gjaldskrá um 15% um áramót

Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt niðurstöðu sína um beiðni Íslandspósts um að mega hækka gjaldskrá fyrir sendingar bréfa frá 0-2000 grömm. Íslanspóstur fór fram á að mega hækka gjaldskrá sína um 15%. Í niðurstöðu PFS segir að stofnunin sjái ekki ástæðu til að gera athugasemdir við beiðnina og tekur verðbreytingin gildi 1. janúar 2021. Sem…Lesa meira

true

Skólakór Grundaskóla syngur Jólasálm

Tuttugasti og fyrsti gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það var hluti af skólakór Grundaskóla sem flutti lagið Jólasálm en lagið er eftir Valgerði Jónsdóttur kórstjóra. Textinn er eftir Brynju Einarsdóttur. Valgerður stjórnaði kórnum sem í voru Ásrún Silja, Emilía Kristín, Sylvía, Jenný Lind og Lilja Sól. Sigrún…Lesa meira

true

LbhÍ festir kaup á mála- og samningakerfi

Landbúnaðarháskóli Íslands hefur fest kaup á mála- og samningakerfi WorkPoint frá Spektra ehf. fyrir málasafn skólans. WorkPoint byggir á SharePoint lausn í Microsoft Office 365 umhverfi en LbhÍ er fyrsti skólinn hér á landi sem tekur upp þessa lausn. „Verkefni LbhÍ eru mörg en fyrir utan skipulag í kringum það fjölbreytta nám sem í boði…Lesa meira