Fréttir

true

Jólamyndagáta Skessuhorns 2020

Að venju geta lesendur nú spreytt sig á að leysa jólamyndagátu Skessuhorns og tekið þátt í skemmtilegum leik. Senda má lausnir með rafrænum hætti á netfangið: krossgata@skessuhorn.is Einnig má póstleggja lausnarorðin, merkt: Skessuhorni, „Myndagáta,” Garðabraut 2A, 300 Akranesi. Nauðsynlegt er að póstleggja lausnarsetninguna í síðasta lagi miðvikudaginn 7. janúar nk. Dregið verður úr réttum lausnum…Lesa meira

true

Halli Melló flytur lagið Það snjóar

Átjándi gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það var Halli Melló sem flutti lagið Það snjóar. Höfundar lagsins eru Norman Newell og Iller Pattacini og textann samdi Bragi Valdimar Skúlason.Lesa meira

true

Björgunarmiðstöð rís úr jörðu – söfnun á nýju ári

Hús Björgunarsveitarinnar Brákar í Borgarnesi er nú að taka á sig mynd og þokast upp úr jörðinni. Í haust hefur verið unnið að því að steypa sökkuleiningar og aðrar undirstöður hússins. Síðustu dagana hafa síðan starfsmenn Steypustöðvarinnar (áður Loftorku) í Borgarnesi unnið að því að koma fyrir undirstöðum undir burðarsúlur og í framhaldinu verða sökkuleiningar…Lesa meira

true

„Engin tilviljun að ég lagði blaða- og fréttamennsku fyrir mig“

„Það var í sjálfu sér engin tilviljun að ég fór í blaða- og fréttamennsku, sem ég hef starfað við í hartnær fjörutíu ár,” segir Skagamaðurinn Haraldur Bjarnason í upphafi samtals okkar. „Ég byrjaði snemma að taka myndir hér og þar í nærumhverfi mínu á Vesturgötunni á Akranesi og var farinn að framkalla og stækka myndir…Lesa meira

true

Í dag skellur í hurðum

Hurðaskellir er sá jólasveinn sem í kvöld kemur ofan úr fjöllum, væntanlegum með skellum og skrölti. Í boði Kvikmyndafjelags Borgarfjarðar er hér flutt kvæði Jóhannesar úr Kötlum um þennan dáðadreng: https://youtu.be/rojIgOO6c8YLesa meira

true

Segir tilfinninguna sem hún finnur á hálendinu ólýsanlega

Sóley Birna Baldursdóttir ólst upp í Múlakoti í Lundarreykjadal í Borgarfiði. Hún er í dag búsett ásamt níu ára syni sínum á Hvanneyri. Sóley er með BA gráðu í mannfræði og er langt komin með viðbótardiplóma í kynfræði auk þess sem hún er að byrja í mastersnámi í lýðheilsuvísindum á nýju ári. Meistaranám í lýðheilsuvísindum…Lesa meira

true

Blíðviðrið notuð til steypuvinnu

Skipavík í Stykkishólmi nýtti blíðuna í gær og steypti plötu undir þriggja íbúða raðhús við Hjallatanga í Stykkishólmi. Á plötunni verður reist timbureiningahús, sem að sögn Sævars  Harðarsonar, framkvæmdastjóra Skipavíkur, verður væntanlega sett upp strax eftir áramót. „Húsið er komið til landsins og bíður bara eftir að við skellum því upp,“ segir Sævar og bætir…Lesa meira

true

Hríðarveðri spáð um norðanvert landið á morgun

Í ábendingu frá veðurfræðingi kemur fram að á morgun fer veður smám saman versnandi á fjallvegum með vaxandi NA-átt og hríðarveðri. Einkum á Öxnadalsheiði, Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum, síðar einnig á Bröttubrekku og Þverárfjalli, en svo virðist sem að Holtavörðuheiði sleppi betur. Fólk er hvatt til að fylgjast með fréttum af veðri og færð.  Lesa meira

true

Mest gaman að gera það sem búið var að segja að væri ekki hægt

Skömmu fyrir hádegi fimmtudaginn 21. júní 1984 brotlenti flugvél á Eiríksjökli með tveimur mönnum innanborðs. Mennirnir voru breskir, búsettir í London, og komu til Íslands á miðvikudagskvöldinu og ætluðu að dvelja hér í fjóra daga. Þeir voru á leið til Grímseyjar til að sjá miðnætursólina á sumarsólstöðum þegar slysið varð. Þegar þeir komu ekki á…Lesa meira