Fréttir

true

Jólablaðsvinnsla á lokametrunum

Hið árlega Jólablað Skessuhorns kemur úr prentun í fyrramálið. Blaðið verður að venju fullt af áhugaverðu efni þar sem rætt er við Vestlendinga nær og fjær. Blaðið verður að þessu sinni 112 síður, ódýrasta jólabókin á markaðinum! Vinnsla efnis og auglýsinga lýkur í dag, en hér má sjá Ómar Örn Ragnarsson við umbrot með Hrafnhildir…Lesa meira

true

Vara við tjörublæðingu á þjóðvegi eitt

Á heimasíðu Vegagerðarinnar er varað við tjörublæðingu á þjóðvegi 1, meðal annars í Norðurárdal ofan við Bifröst. Ívar Örn Smárason bílstjóri deildi myndum á Facebook síðu sinni sem sýnir hvernig tjara hefur safnast utanum dekkin á bílnum hans. Þá setur hann inn mynd sem sýnir hvernig bíllinn hans var útlítandi eftir daginn, með tvíbrotna framrúðu…Lesa meira

true

Greniskreytingar fyrir leiði

Lionsklúbburinn Harpa í Stykkishólmi er nú í fyrsta sinn að selja leiðisgreinar fyrir jólin. Þá er einnig boðið upp á að koma greinunum fyrir á leiðum í kirkjugarðinum í Stykkishólmi og á Helgafelli. „Félagskonur koma saman í litlum hópum og útbúa greinarnar með alúð og umhyggju,“ segir í færslu á Facebook síðu klúbbsins. Sumarliði Ásgeirsson…Lesa meira

true

Rótarýklúbbur Borgarness styrkir Píetasamtökin

Píeta samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. „Rótarýklúbbur Borgarness telur að forvarnarstarf sé mikilvægt og mikill ávinningur ef hægt er að bjarga mannslífum. Einnig er hjá Píeta unnið gott starf þar sem unnið er að því að hlúa að eftirlifendum. Rótarý klúbburinn í Borgarnesi afhenti í vikunni Píetasamtökunum styrk að…Lesa meira

true

Sveitarfélög á Vesturlandi vilja útrýma ólympískum grásleppuveiðum

Bæði Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi og bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar hafa bent á nauðsyn þess að gera þurfi breytingar á fyrirkomulagi hrognkelsaveiða. Hafa athugasemdir þess efnis verið sendar sjávarútvegs- og landsbúnaðarráðherra og þingmönnum Norðvesturkjördæmis. Bent er á nauðsyn þess að nýtt fyrirkomulag grásleppuveiða taki gildi fyrir upphaf næsta veiðiárs og lögð áherslu á að brýnt sé að…Lesa meira

true

Prestarnir þrír slá í gegn

Prestarnir þrír hafa slegið algerlega í gegn með myndbandi sem gert var fyrir verkefnið Aðventudagatal Akraness – „Skaginn syngur inn jólin.“ Myndbandið birtist á Facebook síðu verkefnisins auk þess sem það birtist á Youtube. Í myndbandinu flytja sérarnir Jónína Ólafsdóttir, Þóra Björg Sigurðardóttir og Þráinn Haraldsson, sóknarprestar í Garða- og Saurbæjarprestakalli lagið „Beðið eftir Jesúsi“…Lesa meira

true

Jólavertíð kaupmanna á Akranesi byrjaði fyrr í ár

Kaupmenn á Akranesi láta afar vel af jólavertíðinni það sem af er. Almennt virðist hún koma mjög vel út í samanburði við fyrr ár, salan er jöfn og góð og fólk virðist almennt hafa farið fyrr af stað við undirbúning og jólagjafakaup. Ingþór Bergmann Þórhallsson, eigandi verslunarinnar Omnis á Akranesi lét mjög vel af jólavertíðinni…Lesa meira

true

Hekla og Hanna syngja lagið Jólanótt

Fjórtándi gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það voru Hekla og Hanna sem fluttu lagið Jólanótt. Hlekk á lagið má finna hér fyrir neðan.  Lesa meira