
Tíundi gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það var Jónína Björg Magnúsdóttir, Nína, sem flutti lagið Stjörnur á himni en lagið er samið af Nínu. Hlekk á lagið má finna hér: Lesa meira

Tíundi gluggi aðventudagatals Akraness, “Skaginn syngur inn jólin” var opnaður kl. 9 í morgun. Það var Jónína Björg Magnúsdóttir, Nína, sem flutti lagið Stjörnur á himni en lagið er samið af Nínu. Hlekk á lagið má finna hér: Lesa meira

Frá miðnætti í kvöld og til klukkan 4 í nótt verður rafmagnslaust í hluta uppsveita Borgarfjarðar, nánar til tekið frá Deildartungu í Reykholtsdal að Augastöðum í Hálsasveit. Rarik mun á þessum tíma vinna við háspennudreifikerfið. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt Rarik Vesturlandi í síma 528 9390 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rofLesa meira

Sunna Birna Helgadóttir hundaræktandi í Borgarnesi segir mikla eftirspurn eftir hundum í dag. Hún ræktar hunda af tegundinni Golden Retriever undir ræktunarnafninu Golden Magnificent. En hvað er það við Golden Retriver sem heillaði hana? „Ætli ég hafi ekki bara valið þessa tegund því fyrsti hundurinn minn var Golden Retriever sem við fengum þegar ég var…Lesa meira

Fjórðungsmót Vesturlands í hestaíþróttum verður haldið í Borgarnesi næsta sumar, dagana 8. til 11. júlí. Að mótinu standa hestamannafélögin á Vesturlandi; Borgfirðingur, Snæfellingur, Dreyri og Glaður, en auk þeirra verður félögum í Húnavatnssýslum, Skagafirði og á Vestfjörðum boðið til keppni. Dagskrá, keppnisgreinar og annað fyrirkomulag verður kynnt á næstunni.Lesa meira

Ákveðið var í haust í Menntaskóla Borgarfjarðar að endurvekja skólablaðið og leggur skólinn nú af stað með útgáfu Eglu á nýjan leik. Egla kom fyrst út árið 2011 og hélt útgáfa blaðsins dampi næstu fjögur árin eftir það, eða til 2016. Síðan hefur blaðið legið í dvala og ekki verið gefið út. Þar til nú.…Lesa meira

Fundur var haldinn í atvinnu- og nýsköpunarnefnd Stykkishólms 30. nóvember síðastliðinn. Þar var meðal annars kynnt samantekt og niðurstöður Breiðafjarðarnefndar um framtíð fjarðarins. Meirihluti atvinnu- og nýsköpunarnefndar Stykkishólms bókaði andstöðu við tillögur og hugmyndir Breiðafjarðarnefndar um að Breiðafjörður verði tilnefndur á lista Ramsarsvæða, að Breiðafjörður verði skilgreindur, að hluta til eða öllu leyti, sem þjóðgarður…Lesa meira

Átta kórónuveirusmit greindust innanlands í gær og voru allir utan einn í sóttkví fyrir sýnatöku. Nýgengi innanlandssmita er nú 46,4. Hér á Vesturlandi hefur ekki fjölgað í hópi smitaðra frá í gær, en alls eru nú sjö í einangrun í landshlutanum; tveir í Borgarnesi og fimm á Akranesi. Þrír eru í sóttkví á Akranesi. Svo…Lesa meira

Að venju gengst Skessuhorn fyrir vali á Vestlendingi ársins. Skilyrði er að viðkomandi sé búsettur/ir í landshlutanum. Hver eða hverjir hafa verðskuldað þetta sæmdarheiti á árinu? Íbúum gefst kostur á að senda inn tilnefningar um nöfn og gjarnan má fylgja ein setning sem styður þá tillögu. Óskast tilnefningar sendar á netfangið skessuhorn@skessuhorn.is merkt „Vestlendingur ársins.“…Lesa meira

Miðvikudaginn 16. desember kemur Jólablað Skessuhorns úr prentun og verður dreift til kaupenda. Að venju verður blaðið það síðasta sem gefið verður út á árinu. Fyrsta blað á nýju ári verður svo gefið út 6. janúar. Þeir sem vilja koma á framfæri efni og auglýsingum í árlegu Jólablaði er bent á að hafa samband fyrir…Lesa meira

Hagstofan hefur nú birt tölur um íbúafjölda 1. desember eftir sveitarfélögum. Landsmenn eru nú 368.620 og hefur fjölgað um 1,2% frá fyrra ári. Ef íbúafjöldatölur eru bornar saman við 1. desember 2019 kemur í ljós að íbúum á Vesturlandi hefur fjölgað um 31 á árinu, sem jafngildir 0,2%, eru í dag 16.697 talsins. Hlutfallslega hefur…Lesa meira