Fréttir

true

Hluti nemenda og starfsfólks í sóttkví eftir að smit var greint

Covid-19 smit hefur verið greint í starfsmanna- og nemendahópi Grundaskóla á Akranesi. Í tilkynningu frá skólanum nú í morgun segir: „Nú stöndum við frammi fyrir því að Covid-19 smit hefur komið upp hjá starfsmanni skólans og hjá nemanda á unglingastigi. Nokkrir starfsmenn og nemendur skólans þurfa að fara í sóttkví fram á mánudag. Þetta varðar…Lesa meira

true

Mikið frost inn til landsins á morgun

Í dag er spáð norðan 13-23 m/s og að hvassast verði austantil á landinu með snjókomu, éljum og skafrenningi. Á vesturhelmingi landsins verður úrkomulaust að kalla. Dregur úr vindi og léttir til fyrst vestantil og kólnar í veðri. Í kvöld verður norðlæg átt, víða 5-13 m/s og bjartviðri. Frost 2 til 14 stig og mildast…Lesa meira

true

Þingsályktun um flutning höfuðstöðva Rarik á landsbyggðina

Halla Signý Kristjánsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um flutning höfuðstöðva Rarik ohf. á landsbyggðina. Meðflutningsmenn að tillögunni eru Silja Dögg Gunnarsdóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir, sem einnig eru þingmenn Framsóknarflokksins. Tillagan er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að stefna skuli að flutningi höfuðstöðva Rariks ohf. á landsbyggðina og að kannað verði á grundvelli hagsmuna félagsins…Lesa meira

true

Ný athafnalóð verður til með efni úr höfninni

Dýpkunarskipið Dísa hefur undanfarið verið við dýpkunarframkvæmdir í Ólafsvíkurhöfn. Var í heildina dælt upp á milli 40 og 50 þúsund rúmmetrum. 12 þúsund af þessum rúmmetrum voru nýttir til landfyllingar á plani. Um síðustu helgi var svo klárað að keyra efni ofan á planið og var það B. Vigfússon sem sá um það. Keyrðu starfsmenn…Lesa meira

true

Hörð gagnrýni á meirihluta bæjarstjórnar vegna stjórnkerfisbreytinga

Á fundi bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar síðastliðinn þriðjudag, sem fram fór í gegnum fjarfundarbúnað, voru teknar til fyrri umræðu stjórnkerfisbreytingar sem meirihluti Samfylkingar og Framsóknar með frjálsum í bæjarstjórn hefur ákveðið og taka eiga gildi um næstu áramót. Ítarlega var sagt frá þeim tillögum í síðasta Skessuhorni og hér á vefnum í gær. Síðari umræða um breytingarnar…Lesa meira

true

Gul og appelsínugul viðvörun um land allt

Í dag er gul viðvörun vegna veðurs á öllu landinu og gildir til minættis í kvöld, en appelsínugul að auki fyrir svæðið sunnan jökla á suðausturlandi fram á morgundaginn. Fjallvegir eru nú ófærir og varað við ferðalögum milli landshluta enda lélegt skyggni og afar slæm akstursskilyrði. Við Faxaflóa er spáð norðan stormi, 18-25 m/s, með…Lesa meira

true

Björgunarsveitir komu vegfarendum til aðstoðar

Nokkur erill hefur verið hjá björgunarsveitum landsins frá því síðdegis í gær. Hefur ökumönnum sem lent hafa í vandræðum vegna færðar og veðurs, verið komið til aðstoðar. Bílar hafa setið fastir, lent utan vegar og einn bíll fór á hliðina. Flest verkefni björgunarsveita hafa verið á Norður- og Vesturlandi, en engar tilkynningar borist um slys…Lesa meira

true

Fjórtán greindust með Covid í gær

Fjórtán voru greindir með kórónuveiruna hér á landi í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Af þeim sem greindust voru þrettán í sóttkví. Í dag eru 205 í einangrun hér á landi vegna veirunnar og 670 í sóttkví. 38 liggja á sjúkrahúsi vegna Covid og þar af eru tveir á gjörgæslu. Nýgengi innanlandssmita er nú…Lesa meira

true

Þrettán hrossaræktarbú tilnefnd til verðlauna

Fagráð í hrossarækt hefur valið þau hrossaræktarbú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands sem Ræktunarbú ársins. Valið stóð á milli 50 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu. Reglur fagráðs um ræktunarbú ársins má finna inn á heimasíðu Félags hrossabænda, fhb.is. Tilnefnd eru tólf efstu bú ársins að loknum útreikningi. Í ár…Lesa meira