Fréttir

true

Skólahópur leikskólans í heimsókn

Skólahópur frá Leikskólanum Hnoðrabóli í Reykholtsdal kom í heimsókn í Kleppjárnreykjadeild Grunnskóla Borgarfjarðar í síðustu viku. Heimsóknin hófst á skynjunarverkefni sem fram fór úti á Læknistúni. Þar var unnið með skynjunarlíffærin sem sjá um sjón, heyrn, lykt, snertingu og bragð. Eftir það var hádegismatur og síðan samverustund þar sem nemendur í 5. bekk lásu fyrir…Lesa meira

true

Þórhallur og Hugrún sigurvegarar á púttmóti

Annað forgjafarmót í pútti hjá eldri borgurum í Borgarbyggð fór nýverið fram í Eyjunni í Brákarey. Þátttakendur voru 13 talsins. Leiknar voru 36 holur. Verulegar framfarir voru sýnilegar frá samskonar móti sem haldið var í febrúar og margir hafa lækkað forgjöf sína, sem byggðist á meðalskori á æfingum í febrúar. Hlutskarpastur án forgjafar varð Þórhallur…Lesa meira

true

Keppt í gæðingafimi og flugskeiði í kvöld

Vesturlandsdeildin í hestaíþróttum heldur áfram göngu sinni í kvöld, 23. mars þegar keppt verður í Húsasmiðju Gæðingafimi og Flugskeiði. Keppnin fer fram í Faxaborg í Borgarnesi og hefst kl. 19:00 á forkeppni í Gæðingafimi og svo fimm hesta úrslit að forkeppni lokinni. Því næst verður keppt í flugskeiði áður en kvöldinu lýkur með verðlaunaafhendingu.  …Lesa meira

true

Allir koma endurnærðir upp úr sjónum

Sjóbaðsfélag Akraness var stofnað fyrir tæpum fimm árum. Síðan hefur þeim jafnt og þétt farið fjölgandi sem fara í sjóböð við Langasand og svamla þar í öllum veðrum og vindum. Bjarnheiður Hallsdóttir hefur stundað sjósund undanfarin ár og er í stjórn Sjóbaðsfélagsins. Hún segir marga vera forvitna um sjóböðin og þekkir það að fá ýmsar…Lesa meira

true

Tíðindalítil vika í umferðinni

Aðeins urðu þrjú minniháttar umferðaróhöpp í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í síðustu viku og telst það mjög vel sloppið. Í einu óhappinu var ekið á ljósastaur á Akranesi [sjá mynd] og var farið með ökumanninn á sjúkrahús til skoðunar en hann hafði hlotið minniháttar meiðsl við höggið. Í tveimur óhappanna áttu erlendir ferðamenn hlut að…Lesa meira

true

Sundfélag Akraness átti stigahæstu keppendurna

Um síðustu helgi fór fram Vormót Ármanns í sundi í 25 metra laug. Sundfélag Akraness sendi um 30 keppendur til þátttöku á mótinu undir merkjum ÍA. Stóðu þeir sig að vanda með stakri prýði og verðlaunapeningarnir sem þau komu með heim skiptu tugum. Auk ógrynni af verðlaunum í einstökum keppnisgreinum kom í ljós við lok…Lesa meira

true

Snæfellskonur sigruðu í lokaleiknum

Snæfell tók á móti Val í lokaumferð Domino‘s deildar kvenna í körfuknattleik í gær. Fyrir leikinn átti Snæfell enn möguleika á að ná toppsæti deildarinnar, en til þess hefðu þær ekki aðeins þurft að vinna sinn leik, heldur einnig treysta á að botnlið Hamars leggði topplið Hauka.   Gestirnir voru heillum horfnir í upphafi leiks,…Lesa meira

true

Gerðust bændur á jörð frændsystkinanna

Umtalsverð nýliðun er að eiga sér stað í Lundarreykjadal í Borgarfirði. Ungt fólk er að koma sér fyrir á jörðum, byggja sér hús eða taka við búi. Ættliðaskipti eru nauðsynleg ef viðgangur á að verða í sveitum landsins. Á Snartarstöðum í Lundarreykjadal urðu nýlega ábúendaskipti þegar Guðrún María Björnsdóttir og Jóhann Páll Þorkelsson tóku við…Lesa meira

true

Snæfellsbær keppir í Útsvari í kvöld

Í kvöld, miðvikudaginn 23. mars, hefst á ný keppni í Útsvari, spurningakeppni sveitarfélaganna á RÚV. Venju samkvæmt var gert hlé á keppninni vegna Gettu betur. Aðeins ein viðureign er eftir í 16 liða úrslitum og þar eigast við Snæfellsbær og Rangárþing ytra. Lið Snæfellsbæjar skipa þeir Sigfús Almarsson, Örvar Marteinsson og Guðmundur Reynir Gunnarsson. Sem…Lesa meira

true

Stjórnendur fyrirtækja spá fjölgun starfa og aukinni fjárfestingu

Í nýjasta tölublaði af Glefsum, rafrænu riti sem Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi gefa út, er sagt frá könnun þar sem mældar voru væntingar stjórnenda fyrirtækja í landshlutanum um rekstrarhorfur. Í fréttabréfinu segir Vífill Karlsson hagfræðingur m.a: „Bjartsýni fyrirtækja á Vesturlandi færist áfram í aukana á milli ára þegar horft er til svara við spurningum sem…Lesa meira