Fréttir

true

Afmælisleikur hjá kaupmönnum í Hyrnutorgi sem fagna 20 ára afmæli í dag

Verslanir og þjónustuaðilar í Hyrnutorgi bjóða viðskiptavinum sínum að taka þátt í gjafaleik í tilefni 20 ára afmælis hússins. Hefst hann sjálfan afmælisdaginn sem er í dag, 26. nóvember. Viðskiptavinir skrifa einfaldlega nafn og símanúmer á miða í hverri verslun fyrir sig og freista um leið gæfunnar. Dregin verða út nöfn heppinna viðskiptavina föstudaginn 4.…Lesa meira

true

Ráðherra vill styrkja minnihlutavernd í veiðifélögum

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hefur lagt fram á Alþingi frumvarp til breytingar á lögum um lax- og silungsveiði. Miða þær einkum að því að styrkja minnihlutavernd í veiðifélagi með sérstökum reglum um atkvæðavægi á fundum. Á síðasta löggjafarþingi var lagt fram frumvarp sem stefndi að sömu markmiðum, en það varð ekki að lögum.…Lesa meira

true

Appelsínugul viðvörun um vestanvert landið til miðnættis

Í gildi er nú appelsínugul viðvörun fyrir allt Faxaflóa- og Breiðafjarðarsvæðið vegna suðvestan storms og éljagangs. Þetta ástand varir fram undir miðnætti í kvöld. Við Faxaflóa er nú suðvestan 18-25 m/s og gengur á með dimmum vélum. Mjög lítið skyggni er í éljum og því varasöm akstursskilyrði. Fjallvegir á svæðinu gætu orðið ófærir. Búast má…Lesa meira

true

Breytt fyrirkomulag jólatrésskemmtana í Borgarbyggð

Starfsmenn áhaldahúss Borgarbyggðar hafa að undanförnu unnið við að skreyta jólatré í sveitarfélaginu. Verða þau í Skallagrímsgarði og á Hvanneyri. Jólatréð í Skallagrímsgarði er úr heimabyggð líkt og á síðasta ári. Mikil eftirspurn var eftir því að gefa sveitarfélaginu jólatré í ár en gefendur að þessu sinni eru hjónin Valdimar Reynisson og Þórný Hlynsdóttir í…Lesa meira

true

Gunnar Einarsson er nýr þjálfari meistaraflokks Víkings Ó

Víkingur Ólafsvík greindi frá í vikunni að Gunnar Einarsson hafi verið ráðinn þjálfari meistaraflokks Víkings Ólafsvíkur í knattspyrnu. Gunnar tekur við liðinu af Guðjóni Þórðarsyni og er samningurinn til tveggja ára. Í tilkynningunni segir m.a.: „Gunnar, sem er 44 ára, er spennandi ungur þjálfari sem þjálfaði Kára í 2. deildinni á síðastliðnu keppnistímabili en áður…Lesa meira

true

Þrír í sóttkví af þeim ellefu sem greindust með veiruna í gær

Ellefu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is og þar af voru þrír í sóttkví. 166 eru nú í einangrun á landinu vegna veirunnar og 446 í sóttkví. 45 manns liggja á sjúkrahúsi vegna Covid og þar af eru tveir á gjörgæslu. Nýgengi innanlandssmita er nú 32,5. Enn eru fimm í…Lesa meira

true

Útvarp Akranes fer í loftið á morgun

Útvarp Akranes fer í loftið um næstu helgi. Útsendingar hefjast kl. 13:00 á morgun, föstudag og standa fram á sunnudag. Sent verður út fá Símenntunarmiðstöð Vesturlands við Akratorg. Útvarp Akraness hefur fyrir löngu skapað sér sess sem fastur liður í jólaundirbúningi Skagamanna en útvarpið er ein mikilvægasta fjáröflun Sundfélags Akraness. Sundfélagið hefur staðið fyrir útvarpsdagskrá…Lesa meira

true

Íslenska kvennalandsliðið spilar þýðingarmikinn leik í dag

Kvennalandslið Íslands í knattspyrnu mætir Slóvakíu ytra í undankeppni fyrir EM 2022 í kvöld. Leikurinn hefst kl. 17:00 og verður sýndur á RÚV. Þetta er næstsíðasti leikur stelpnanna í riðlakeppninni en þær mæta Ungverjalandi næsta þriðjudag, 1. desember. Svíþjóð situr í fyrsta sæti riðilsins með 19 stig og er ljóst að sænsku stelpurnar hafa unnið…Lesa meira

true

Vonskuveður framundan

Í nótt var hvöss suðaustanátt og mikil úrkoma á öllu sunnan- og vestanverðu landinu. Veðurspá fyrir stóran hluta landsins gerir ráð fyrir vonskuveðri í dag, fimmtudag. Víðast hvar verður hvasst af suðvestri, 15-25 m/s. Rigning í fyrstu en hvöss og dimm él upp úr hádegi. Í viðvörun frá veðurfræðingi segir að vaxandi éljagangur verði um…Lesa meira

true

Gefa starfsfólki sveitarfélagsins gjafabréf á þjónustu og verslun í heimabyggð

Borgarbyggð hefur auglýst eftir verslunar- og þjónustuaðilum í sveitarfélaginu sem hafa áhuga á að taka á móti gjafabréfum sem verða jólagjöf til starfsmanna sveitarfélagsins. Fyrirkomulagið verður með þeim hætti að starfsmenn fá gjafabréf að andvirði 10.000 kr. ásamt upptalningu á fyrirtækjum sem skrá sig í verkefnið. Gjafabréfin virka sem greiðsla á eða upp í kaup…Lesa meira