Fréttir

true

Gerir tilraunir með íslenskan leir í Leirbakaríiu

Í lágreistu húsnæði á Suðurgötunni á Akranesi, þar sem Brauða- og kökugerðin var áður til húsa, hefur Leirbakaríið komið sér vel fyrir. Það er rekið af leirlistarkonunum Kolbrúnu Sigurðardóttur og Maríu Kristínu Óskarsdóttur. Þær stöllur vinna þar að hönnun sinni og listsköpun. Leirbakaríið rekur leirvinnustofu þar sem boðið er upp á námskeið, hópeflisheimsóknir og ýmsar…Lesa meira

true

Framkvæmdir við þjóðgarðsmiðstöð og íbúðakjarna í Snæfellsbæ

Framkvæmdir við byggingu þjóðgarðsmiðstöðvarinnar á Hellissandi og íbúðakjarna fyrir fatlaða í Ólafsvík ganga vel. Húsheild er verktaki í báðum þessum stórframkvæmdum. Á Hellissandi hafa framkvæmdir gengið vel. Búið er að steypa sökkla og langt komið að keyra í grunninn og ætti á næstunni að vera hægt að undirbúa það að steypa plötu. Gert er ráð…Lesa meira

true

Grafalvarlegt þegar keðja neyðarþjónustu rofnar

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna (LSS) hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna yfirvofandi tímabils þar sem engar björgunarþyrlur munu vera tiltækar á landinu: „Þrátt fyrir að Ísland sé lítil eyja eru samgöngur hér sérstaklega yfir vetrarmánuðina oft erfiðar og tímafrekar. Ef bráð veikindi eða slys bera að höndum er mikilvægt að keðja neyðarþjónustu heilbrigðiskerfisins utan spítala…Lesa meira

true

Stórliðin berjast um að fá Ísak Bergmann í sínar raðir

Skagamaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson lék sinn fyrsta landsleik fyrir A landslið karla í knattspyrnu á miðvikudaginn í síðustu viku þegar liðið mætti Englandi á Wembley. Ísak kom inn á 88. mínútu fyrir Birki Bjarnason og lék síðustu mínútur leiksins. Ísak er sjötti yngsti A landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu karla en hann var 17 ára, 7…Lesa meira

true

Gul viðvörun fyrir annað kvöld

Veðurstofan hefur gefið út gula viðvörun um allt vestanvert landið, m.a. fyrir Breiðafjörð og Faxaflóa, frá klukkan 19:00 á morgun, miðvikudag. Spáð er suðaustan 15-23 m/s og snjókomu eða slyddu, einkum á fjallvegum. Veðrinu fylgir að akstursskilyrði versna.Lesa meira

true

Daði Már tímabundið í starf aðstoðarrektors LbhÍ

Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskóli Íslands undirrituðu í gær samning um að dr. Daði Már Kristófersson, prófessor við Hagfræðideild á Félagsvísindasviði Háskóla Íslands, gegni starfi aðstoðarrektors við Landbúnaðarháskóla Íslands tímabundið út þetta skólaár. Daði Már mun sinna starfinu í 50% starfshlutfalli og áfram gegna 50% starfsskyldum sem prófessor við Hagfræðideild. „Það er mikill fengur fyrir Landbúnaðarháskóla…Lesa meira

true

Níu greindust með kórónuveiruna í gær

Níu voru greindir með kórónuveiruna hér á landi í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is og af þeim voru fimm í sóttkví. Aðeins hefur fjölgað í sóttkví milli daga en nú eru 246 í sóttkví í landinu en í gær voru það 220 manns. 186 eru nú í einangrun vegna veirunnar en í gær voru…Lesa meira

true

Auka innlausnardagur fyrir greiðslumark í sauðfé

Landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að haldinn verður auka innlausnarmarkaður með greiðslumark í sauðfé nú í desember. Markaðurinn er haldinn að tillögu Landssamtaka sauðfjárbænda um að auka greiðslumark á markaði fyrir sauðfjárbændur. Aðgerðin miðar að því að jafna stöðu bænda innan kerfisins þar sem greiðslumarki verður beint til hópa sem framleiða með minnstum opinberum stuðningi. Á markaðnum…Lesa meira

true

Gjafaleikur í gangi í Hyrnutorgi alla afmælisvikuna

Verslanir og þjónustuaðilar í Hyrnutorgi bjóða viðskiptavinum sínum að taka þátt í gjafaleik í tilefni 20 ára afmælis hússins. Hefst hann sjálfan afmælisdaginn, fimmtudaginn 26. nóvember. Viðskiptavinir skrifa einfaldlega nafn og símanúmer á miða í hverri verslun fyrir sig og freista um leið gæfunnar. Dregin verða út nöfn heppinna viðskiptavina föstudaginn 4. desember þar sem…Lesa meira

true

Stafræn vinnuvélaskírteini tekin í notkun

Ný stafræn vinnuvélaskírteini voru tekin í gagnið í vikunni. Sömuleiðis stafræn ADR-réttindi. Þessi skírteini eru fyrir alla sem eru með íslensk ADR- og/eða vinnuvélaréttindi og eiga snjallsíma, en yfir 35.000 manns eru með gild vinnuvélaréttindi hér á landi. Skírteinin sanna fyrir lögreglu að stjórnandi ökutækis sé með gild ADR- eða vinnuvélaréttindi. Í véla- og fyrirtækjaeftirliti…Lesa meira