Fréttir

true

Lestur fólks á öllum aldri eykst í Covid

Íslendingar lesa meira í ár af hefðbundnum bókum en í fyrra og hlusta meira á hljóðbækur. Konur lesa meira en karlar, en lestur eykst þó mest milli ára hjá körlum. Þetta er meðal þess sem fram kemur í könnun sem Miðstöð íslenskra bókmennta lét framkvæma um viðhorf fólks til lesturs á tímum Covid-19. Um 36%…Lesa meira

true

Gætu orðið rafmagnstruflanir í Grundarfirði í nótt

„Komið getur til rafmagnstruflana vegna vinnu Landsnets í aðveitustöð í Gundarfirði aðfararnótt þriðjudagsins 17. nóvember frá kl. 00:00 til 04:00,“ segir í tilkynningu frá Rarik. Nánari upplýsingar veitir Svæðisvakt fyrirtækisins á Vesturlandi í síma 528 9390 og kort af svæðinu má sjá á www.rarik.is/rof.Lesa meira

true

Frumvarp um breytingu á hafnalögum í samráðsgátt

Drög að frumvarpi um breytingu á hafnalögum hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Allir hafa tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar til og með 23. nóvember nk. Frumvarpið hefur að geyma ákvæði um eldisgjald og rafræna vöktun í höfnum. Þá eru í frumvarpinu innleidd ákvæði EES-gerðar um þjónustu í höfnum og gagnsæi í…Lesa meira

true

Ísak Bergmann í A-landsliðið

Skagamaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson var kallaður inn í A-landslið karla í knattspyrnu fyrir leiki liðsins gegn Danmörku í gær og gegn Englandi næstkomandi miðvikudag. Ísak er 17 ára gamall miðjumaður og spilar með sænska knattspyrnufélaginu IFK Norrköpking en hann gekk til liðs við félagið fyrir tveimur árum, þá 15 ára gamall. Hann hefur verið í…Lesa meira

true

Níu greindust með Covid í gær

Níu innanlandsmit kórónuveirunnar voru greind í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Í dag eru 340 í einangrun vegna veirunnar og 693 í sóttkví á landinu. Á sjúkrahúsi eru 59 vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. Nýgengi innanlandssmita fer enn lækkandi og er í dag 66,8 en var í gær 71,4.Lesa meira

true

Minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa fór fram í gærkveldi

Í gær var alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa. Undanfarin ár hafa fulltrúar viðbragðsaðila og stjórnvalda komið saman á þyrlupallinum við Fossvog í Reykjavík, en frá því var horfið að þessu sinni vegna sóttvarnaráðstafana. Félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörgu og fleiri viðbragðsaðilar stóðu hins vegar fyrir minningarathöfnum á nokkrum stöðum á landinu í tilefni dagsins. Klukkan 19…Lesa meira

true

Dagur íslenskrar tungu er í dag

Degi íslenskrar tungu verður fagnað með fjölbreyttum hætti um land allt í dag 16. nóvember. Hátíðarhöld og verðlaunaafhending Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar verða þó með óhefðbundnum hætti þetta árið vegna sóttvarnaráðstafana. Hátíðardagskrá menntamálaráðuneytisins verður miðlað með streymi en þau munu fara fram í Hörpu kl. 16. Þar mun Lilja Alfreðsdóttir ráðherra flytja ávarp og tilkynna um…Lesa meira

true

Tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum í framhaldsskólum

Sveigjanleiki verður aukinn fyrir nemendur, starfsfólk og kennara í framhaldsskólum landsins frá og með miðvikudeginum 18. nóvember nk og mun gilda til 1. desember. Gildandi sóttvarnareglur kveða á um að hámarksfjöldi nemenda og starfsmanna fari aldrei yfir tíu í hverju rými en frá og með miðvikudeginum verður hámarksfjöldinn hækkaður í 25 einstaklinga í hverju rými.…Lesa meira

true

Hátt hlutfall fyrstu kaupenda íbúðarhúsnæðis á Vesturlandi

Á þriðja ársfjórðungi þessa árs voru 162 samningar gerðir um íbúðarhúsnæði á Vesturlandi. Af þeim voru 63 samningar þar sem fólk var að kaupa fasteign í fyrsta skipti, eða 39% viðskiptanna. Þetta er hæsta hlutfall fyrstu kaupenda á landinu á þessu tímabili, en í öðrum landshlutum er hlutfallið frá 22 og upp í 38%. Á…Lesa meira

true

Nýgengi smita komið niður í 71 á hverja 100 þúsund íbúa

Þrjú smit af Covid-19 greindust innanlands í gær. Þau hafa ekki verið færri í rúma tvo mánuði, frá 13. september þegar tvö smit greindust. 878 sýni voru greind í gær. Nýgengi smita innanlands er komið í 71,4 á hverja 100 þúsund íbúa. Það fór hæst í 291,5 17. október. Á Vesturlandi eru nú tuttugu manns…Lesa meira