Fréttir

true

Níu greindust með Covid í gær

Níu innanlandsmit kórónuveirunnar voru greind í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Í dag eru 340 í einangrun vegna veirunnar og 693 í sóttkví á landinu. Á sjúkrahúsi eru 59 vegna Covid-19, þar af þrír á gjörgæslu. Nýgengi innanlandssmita fer enn lækkandi og er í dag 66,8 en var í gær 71,4.Lesa meira

true

Minningarstund um fórnarlömb umferðarslysa fór fram í gærkveldi

Í gær var alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa. Undanfarin ár hafa fulltrúar viðbragðsaðila og stjórnvalda komið saman á þyrlupallinum við Fossvog í Reykjavík, en frá því var horfið að þessu sinni vegna sóttvarnaráðstafana. Félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörgu og fleiri viðbragðsaðilar stóðu hins vegar fyrir minningarathöfnum á nokkrum stöðum á landinu í tilefni dagsins. Klukkan 19…Lesa meira

true

Dagur íslenskrar tungu er í dag

Degi íslenskrar tungu verður fagnað með fjölbreyttum hætti um land allt í dag 16. nóvember. Hátíðarhöld og verðlaunaafhending Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar verða þó með óhefðbundnum hætti þetta árið vegna sóttvarnaráðstafana. Hátíðardagskrá menntamálaráðuneytisins verður miðlað með streymi en þau munu fara fram í Hörpu kl. 16. Þar mun Lilja Alfreðsdóttir ráðherra flytja ávarp og tilkynna um…Lesa meira

true

Tilslakanir á sóttvarnaráðstöfunum í framhaldsskólum

Sveigjanleiki verður aukinn fyrir nemendur, starfsfólk og kennara í framhaldsskólum landsins frá og með miðvikudeginum 18. nóvember nk og mun gilda til 1. desember. Gildandi sóttvarnareglur kveða á um að hámarksfjöldi nemenda og starfsmanna fari aldrei yfir tíu í hverju rými en frá og með miðvikudeginum verður hámarksfjöldinn hækkaður í 25 einstaklinga í hverju rými.…Lesa meira

true

Hátt hlutfall fyrstu kaupenda íbúðarhúsnæðis á Vesturlandi

Á þriðja ársfjórðungi þessa árs voru 162 samningar gerðir um íbúðarhúsnæði á Vesturlandi. Af þeim voru 63 samningar þar sem fólk var að kaupa fasteign í fyrsta skipti, eða 39% viðskiptanna. Þetta er hæsta hlutfall fyrstu kaupenda á landinu á þessu tímabili, en í öðrum landshlutum er hlutfallið frá 22 og upp í 38%. Á…Lesa meira

true

Nýgengi smita komið niður í 71 á hverja 100 þúsund íbúa

Þrjú smit af Covid-19 greindust innanlands í gær. Þau hafa ekki verið færri í rúma tvo mánuði, frá 13. september þegar tvö smit greindust. 878 sýni voru greind í gær. Nýgengi smita innanlands er komið í 71,4 á hverja 100 þúsund íbúa. Það fór hæst í 291,5 17. október. Á Vesturlandi eru nú tuttugu manns…Lesa meira

true

Minningarstund í kvöld tileinkuð fórnarlömbum umferðarslysa

Í dag er alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa. Félagar í Slysavarnafélaginu Landsbjörgu og fleiri viðbragðsaðilar standa fyrir minningarathöfnum víða um landið kl. 19 í kvöld í tilefni af minningardeginum. Þar verður kveikt á kertum og þeirra minnst sem hafa látið lífið í umferðinni. Streymt verður frá þessum viðburðum í beinni vefútsendingu á Facebook. Minningarviðburðir verða…Lesa meira

true

Nýjar sóttvarnarreglur taka gildi á miðvikudaginn

Heilbrigðisráðherra hefur fallist á tillögur sóttvarnalæknis sem fela í sér varfærnar tilslakanir á gildandi samkomutakmörkunum. Breytingarnar taka gildi miðvikudaginn 18. nóvember og gilda til 1. desember. Gert er ráð fyrir að hægt verði að draga enn frekar úr samkomutakmörkunum í byrjun desember. Þrjár grundvallarbreytingar verða á takmörkunum frá því sem nú er. Þær eru helstar…Lesa meira

true

Úlfar Lúðvíksson hættir sem lögreglustjóri á Vesturlandi

Nýverið var tilkynnt að Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Vesturlandi, hafi verið ráðinn í stöðu lögreglustjórans á Suðurnesjum. Skessuhorn náði tali af Úlfari í morgun, á síðasta vinnudegi hans sem fráfarandi lögreglustjóri á Vesturlandi. Úlfar hafði í nógu að snúast enda ýmsir endar sem þarf að hnýta, en hann tekur við nýja starfinu næstkomandi mánudag. Úlfar…Lesa meira

true

Fækkar í sóttkví á Vesturlandi

Í gær voru greind 8 kórónuveirusmit á Íslandi. Af þeim voru aðeins tveir í sóttkví eða 25%. 822 sýni voru tekin við skimun innanlands í gær en 406 á landamærunum. Öll smitin greindust við einkennasýnatöku. Nýgengi innanlandssmita hefur lækkað hratt undanfarið. Hæst fór það í 291,5 þann 17. okt en var í gær 87,8. Nýgengi…Lesa meira