Fréttir

true

Verulegar fjárhæðir hafa sparast í ferðakostnaði ríkisins

Ferðakostnaður ríkisins lækkaði á fyrstu níu mánuðum ársins um 1,8 milljarða króna og fór úr 3 milljörðum árið 2019 í tæpa 1,2 ma.kr. árið 2020. Lækkunin nemur um 60% en hana má rekja til heimsfaraldurs kórónuveiru. Með ferðakostnaði er átt við ferðalög og uppihald á ferðalögum á Íslandi og erlendis. Tölurnar ná til A-hluta stofnana…Lesa meira

true

Ógnandi viðskiptavinur beit í harðfisk

Rétt fyrir miðnætti að kvöldi föstudags í síðustu viku barst Neyðarlínu tilkynning um ógnandi viðskiptavin sem neitaði að nota grímu í verslun Olís við Brúartorg í Borgarnesi. Þegar lögregla mætti á staðinn hitti hún fyrir hinn meinta ógnandi viðskiptavin sem sat í bíl sínum. Sá þverneitaði að hafa verið ógnandi. Sagðist hafa verið með grímu…Lesa meira

true

Opnar veitingastað á Hellissandi

Sylvaine Scharapenko hefur ekki látið kórónuveirufaraldur stoppa sig í að elta draumana og stefnir hún á að opna nýjan veitingastað á Hellissandi á næstu dögum. Veitingastaðurinn, sem hefur fengið nafnið RAM, mun vera til húsa þar sem Kaffi Sif var áður. Sylvaine er 52 ára kona, uppalin nærri Lutherstadt Wittenberg, sem er mitt á milli…Lesa meira

true

Með skottið fullt af gjöfum til úkraínskra barna

Verkefnið „jól í skókassa“ er orðið árlegur viðburður sem KFUM og KFUK á Íslandi skipuleggur hér á landi. Félagar í Grundarfirði taka virkan þátt. Undanfarin misseri hafa þær Anna Husgaard Andersen og Salbjörg Nóadóttir tekið á móti ófáum jólakössum frá ungum Grundfirðingum. Gefendur eru á öllum aldri en langflestir koma þó úr grunnskólanum. Í venjulegu…Lesa meira

true

Lýsa upp gamla héraðsskólahúsið til minningar um Kolbrúnu

Búið er að koma fyrir ljóskösturum við hús gamla Héraðsskólans í Reykholti. Ljósin eru minningargjöf um Kolbrúnu Jónsdóttur frá Reykholti sem lést í janúar á þessu ári. Gefendur eru bræður hennar; Þorvaldur, Þórir og Eiríkur Jónssynir, auk Haraldur eiginmanns hennar og fjölskyldu . Húsið verður nú upplýst í skammdeginu til minningar um Kolbrúnu, eða Dollu…Lesa meira

true

Skemmdarverk á gistiheimili

Á mánudag barst lögreglu tilkynning um skemmdarverk í gistiheimili í Grundarfirði. Þar hafði verið brotist inn og nokkrar skemmdir unnar með því að sparka í hurðir og spenna nokkrar hurðir upp. Gistiheimilið er ekki opið og enginn var á staðnum um helgina. Starfsmenn sem mæta til vinnu á mánudag sáu að farið hafði verið inn…Lesa meira

true

Kostar 990 krónur að horfa á þegar Ísland mætir Ungverjalandi í kvöld

Karlalandsliðið í fótbolta mætir í kvöld Ungverjalandi í leik um sæti á Evrópumótinu í fótbolta næsta sumar. Leikurinn hefst kl 19:45 og verður sýndur í beinni útsendingu á stöð 2 sport. Fyrir þá sem ekki hafa áskrift af stöð 2 sport er hægt að kaupa sérstaklega aðgang að leiknum fyrir 990 krónur í gegnum myndlykla…Lesa meira

true

Landslið kvenna spilar við Slóvena klukkan 15

Í dag klukkan 15.00 að íslenskum tíma mætast Ísland og Slóvenía í undankeppni EuroBasket Women’s 2021. Leikurinn fer fram á Grikklandi og verður hann sýndur beint á RÚV.  „Slóvenía verður verðugur andstæðingur þar sem þær eru í öðru sæti styrkleikalista FIBA evrópskra kvennaliða um þessar mundir,“ segir í tilkynningu að utan frá KKÍ. „Eins og…Lesa meira

true

Sex smit rakin til fyrirtækis á Akranesi

Alls hafa nú sex smit Covid-19 verið rakin til hópsýkingar sem tengist fyrirtæki á Akranesi. Þar sem hinir smituðu eru með lögheimili skráð á Akranesi eru smitin skráð á Vesturlandi, þrátt fyrir að fólkið sé búsett í Reykjavík. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvort fyrirtækinu hafi verið lokað en enn er verið að rekja ferðir…Lesa meira

true

Átján voru greindir með Covid í gær

Átján einstaklingar voru greindir með kórónuveiruna innanlands í gær samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is og þar af voru 14 í sóttkví við greiningu. Í dag eru 472 í einangrun á landinu og 992 í sóttkví. 63 liggja inni á sjúkrahúsi og þar af eru þrír á gjörgæslu. Nýgengi innanlandssmita er nú 106.1 en var 112,6…Lesa meira