Fréttir

true

Leggja til að Fjöliðjuhúsið verði rifið og nýtt hús byggt

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Akranesi munu leggja það til á fundi bæjarstjórnar síðdegis í dag að ákvörðun um val á leið við uppbyggingu á Fjöliðjunni, vernduðum vinnu- og hæfingarstað, verði frestað. Frá þessu er greint á facebooksíðu flokksins. Fresturinn gæfi bæjaryfirvöldum tækifæri til ítarlegrar skoðunar á uppbyggingaráformum með hliðsjón af breyttu skipulagi á aðliggjandi lóðum og…Lesa meira

true

Valkvæðar aðgerðir heimilaðar á ný

Heilbrigðisráðherra hefur staðfest fyrirmæli landlæknis um að fella úr gildi auglýsingu um frestun valkvæðra skurðaðgerða og annarra ífarandi aðgerða. Ákvörðunin tekur gildi á morgun. Auglýsing heilbrigðisráðherra þessa efnis ásamt fyrirmælum landlæknis var send í dag til birtingar í Stjórnartíðindum.Lesa meira

true

Lögreglan lokar fyrir athugasemdir á Facebook

Lögreglan á Vesturlandi birtir reglulega á Facebook síðu sinni nýjustu tölur yfir stöðu mála varðandi Covid-19 í umdæmi hennar. Þar eru birtar tölur um fjölda þeirra sem eru í sóttkví annars vegar og einangrun hins vegar og hver fjöldinn er skipt upp í heilsugæsluumdæmi. Tölurnar eru fengnar úr opinberum smitrakningargrunni frá heilsugæslustöðvum. Fólki hefur til…Lesa meira

true

Smituðu fækkar á Vesturlandi

Fjórir hafa losnað úr einangrun á Vesturlandi með Covid-19 og eru nú 14; tólf á Akranesi og tveir í Borgarnesi. Fimm hafa losnað úr sóttkví í landshlutanum síðasta sólarhringinn og eru nú 54 í sóttkví á Akranesi, 55 í Borgarnesi og einn í Búðardal, eða 110 á Vesturlandi.Lesa meira

true

Skýrslu um þróun tollverndar

Starfshópur, sem falið var að greina þróun tollverndar og stöðu íslensks landbúnaðar gagnvart breytingum í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi, hefur skilað skýrslu til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Ráðherra gerði grein fyrir skýrslunni á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Í skýrslunni er fjallað um markaðsaðgang og tollaívilnanir í gegnum fríverslunar- og viðskiptasamninga sem Ísland hefur gert, ítarlega er farið yfir…Lesa meira

true

Ellefu greindust með Covid í gær

Ellefu greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, samkvæmt uppfærðum tölum á covid.is. Alls eru nú 70 sem liggja á sjúkrahúsi með veiruna og þar af eru þrír á gjörgæslu. Einn lést á Landsspítalanum í gær vegna Covid-19 og hafa nú 24 látist hér á landi vegna veirunnar frá upphafi faraldursins. 569 manns eru nú í…Lesa meira

true

Íþróttamiðstöðin í Stykkishólmi er þrjátíu ára í dag

Íþróttamiðstöðin í Stykkishólmi er 30 ára í dag, en hún var vígð við hátíðlega athöfn laugardaginn 10. nóvember 1990. Frá því er greint á vef bæjarfélagsins að það var Sverrir Hermannsson, þáverandi menntamálaráðherra, sem tók fyrstu skóflustunguna að byggingunni 22. maí 1987. Jafnframt afhenti ráðherrann þáverandi sveitarstjóra, Sturlu Böðvarssyni, samning sem gerður hafði verið milli…Lesa meira

true

Öll börn fengu endurskinsmerki frá Lífarkonum

Á miðvikudaginn í síðustu viku fengu allir leik- og grunnskólanemar á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit afhent endurskinsmerki frá Slysavarnadeildinni Líf á Akranesi. Fulltrúar frá Líf gátu í ljósi aðstæðna ekki afhent börnunum endurskinsmerkin í eigin persónu í þetta skiptið, svo það kom í hlut starfsmanna skólanna að útdeila þeim. Öll börn á Akranesi og í…Lesa meira

true

Lítil snjóhreinsun af vegum það sem af er hausti

Segja má að veðurguðirnir hafi verið Vegagerðinni hliðhollir þetta haustið. Ekki hefur þurft að fara margar ferðir til að hálkuverja eða að hreinsa snjó eða krapa á Snæfellsnesi. Síðastliðinn föstudag þurfti í annað skipti í haust að kalla út snjómokstursbíl á leiðinni milli Ólafsvíkur og Vatnaleiðar á Snæfellsnesi. Má telja það harla lítið ef miðað…Lesa meira

true

Framundan er árvekniátak í umferðinni

Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa verður sunnudaginn 15. nóvember. Að þessu sinni verður minningardagurinn sniðinn að sérstökum aðstæðum í samfélaginu. Í stað hefðbundinnar minningarstundar við þyrlupallinn við Landspítalann í Fossvogi verður árvekniátak í samfélaginu um umferðaröryggi dagana 13.-15. nóvember. Tilgangurinn með deginum er að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að…Lesa meira