Fréttir

true

25 greindir í gær

Í gær voru 25 innanlandssmit kórónuveirunnar skv. tölum á covid.is, þar af voru 20 í sóttkví. Engin smit voru greind á landamærum í gær. Í dag liggur 71 sjúklingur á sjúkrahúsi, þar af eru þrír á gjörgæslu og einn Covid sjúklingur lést á Landspítalanum í gær. 762 eru í einangrun í dag vegna veirunnar og…Lesa meira

true

Öðruvísi skemmtiatriði á Rökkurdögum

Rökkurdagar í Grundarfirði standa nú yfir og eru með töluvert óhefðbundnu sniði þetta árið. Heimsfaraldurinn setur strik í reikninginn og því þarf að hugsa aðeins útfyrir boxið. Fólk er hvatt til að takmarka samkomur og samneyti við aðra og helst að halda sig heima. Föstudagskvöldið 30. október síðastliðið voru skemmtilegir tónleikar frumsýndir á veraldarvefnum en…Lesa meira

true

“Veðurstofa Íslands er stór og spennandi vinnustaður”

Veðurfar á Íslandi hefur í gegnum aldirnar mótað hugsunarhátt þjóðarinnar og haft mikil áhrif á búsetu, efnahag og lífsgæði. Óhætt er að fullyrða að það líði varla sá dagur að fullorðinn Íslendingur minnist ekki á veðrið og veðurhorfur með einhverjum hætti. Veðrið og veðurspár eru því stór þáttur í lífi okkar allra og hefur áhrif…Lesa meira

true

Skref í rétta átt í Stykkishólmi

Guðfinna Rúnarsdóttir opnar á næstu vikum nýja fótaaðgerðastofu í Stykkishólmi. Guðfinna hefur nýlega lokið námi í fótaaðgerðafræði og bíður eftir leyfi landlæknis til að hefja störf. „Um leið og ég fæ leyfið mun ég byrja að vinna á hjúkrunarheimilinu hér í Stykkishólmi og svo vonandi í lok mánaðarins get ég opnað stofu sem ég er…Lesa meira

true

Krílakoti í Ólafsvík færðar góðar gjafir

Leikskólanum Kríubóli í Ólafsvík bárust góðar gjafir í sumar sem starfsmenn áhaldahúss Snæfellsbæjar hafa verið að setja upp og koma fyrir undanfarna daga. Ómar Lúðvíksson og Kay Wiggs eiginkona hans færðu leikskólanum fuglahús í tilefni af útskrift barnabarns þeirra af leikskólanum. Þess má geta að þegar fyrsta barnabarn þeirra útskrifaðist af leikskólanum færðu þau leikskólanum…Lesa meira

true

Gul viðvörun síðdegis og fram á kvöld

Eftir hádegi í dag og fram á kvöld er spáð suðvestan 18-23 m/s, með staðbundnum vindhviðum yfir 35 m/s, við Faxaflóa og á norðanverðu Snæfellsnesi. Gul viðvörun er því í gildi um tíma og fólk hvatt til að fylgjast með spá og veðurlýsingum. Aðstæður geta verið varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig mikinn vind.…Lesa meira

true

Krefjandi tímar hjá framhaldsskólanemum og kennurum

Eins og hjá öllum framhaldsskólanemum á landinu eru núverandi aðstæður afar krefjandi þegar nánast allt bóknám fer fram í fjarkennsluumhverfi og reynir því meira en nokkru sinni á einbeitingu og sjálfsstjórn nemenda. Þegar smitum fjölgaði hratt í samfélaginu í byrjun október, og hertar sóttvarnaraðgerðir tóku gildi, var bóknám nemenda í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi flutt…Lesa meira

true

Mannbjörg er maður féll í Skorradalsvatn

Maður féll af sit-on-top kajak sínum í Skorradalsvatn á þriðja tímanum í dag. Neyðarlínu barst tilkynning um atvikið kl. 14:49. Félagi mannsins tilkynnti um slysið en hann komst ekki að félaga sínum vegna mikils vinds og ágjafar á vatninu. Maðurinn var vel búinn, í þurrgalla og flotvesti. Björgunarsveitir voru kallaðar á staðinn og náðu manninum…Lesa meira

true

Birta úrslit í ljósmyndasamkeppni Félags sauðfjárbænda

Félag sauðfjárbænda í Dölum hélt í haust sína árlegu ljósmyndasamkeppni. Þemað í ár samkvæmt facebook síðu félagsins var „hinir margrómuðu hrútar, fullorðnir, miðaldra og/eða ungir.“ Voru félagsmenn hvattir til þess að gramsa í gömlum myndum eða taka nýjar og vera með í skemmtilegri keppni. Jafnframt segir á síðunni: „Þú hefur tvo sólahringa til stefnu, þar…Lesa meira

true

Sælgæti innkallað vegna aðskotahlutar

Matvælastofnun hefur sent frá sér tilkynningu þar sem varað er við neyslu á sænsku sælgæti, „S-märke surt skum“, sem heildverslun Core ehf. flytur inn, vegna aðskotarhlutar úr málmi sem fannst í vörunni. Fyrirtækið hefur innkallað vöruna með aðstoð Heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Kópavogs. Matvælastofnun fékk upplýsingarnar í gegnum evrópska viðvörunarkerfið RASFF um hættuleg matvæli á…Lesa meira