Fréttir

true

Jákvæð rekstrarafkoma Reykhólahrepps

Ársreikningur Reykhólahrepss fyrir árið 2015 var lagður fram til fyrri umræðu á fundi sveitarstjórnar fimmtudaginn 21. júlí síðastliðinn. Rekstrarniðurstaða Reykhólahrepps er samkvæmt rekstrarreikningi A og B hluta jákvæð um 33,5 milljónir króna. Er það töluvert umfram þann 12,8 milljóna króna rekstrarafgang sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun. Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 14,8…Lesa meira

Hjúkrunarforstjóri Silfurtúns lætur af störfum

Gróa Dal hjúkrunarfræðingur lætur af störfum sem hjúkrunarforstjóri dvalar- og hjúkrunarheimilisins Silfurtúns í Búðardal um miðjan ágústmánuð. Gróa hefur gegnt starfinu undanfarin þrjú ár, eða frá því í júlí 2013. Ástæðuna fyrir brotthvarfi sínu úr starfi hjúkrunarforstjóra segir Gróa að hana hafi langað að nýta hjúkrunarfræðinámið til að gera eitthvað skemmtilegra. „Það er mikil skrifstofuvinna…Lesa meira

true

Söfnuðu ríflega 700 þúsund krónum fyrir Umhyggju

Á Reykhóladögum tók Seljanesfólks sig til og hélt uppboð á ýmsum varningi. Þátttaka í uppboðinu var góð, gestir fjölmargir og varð þar mikið mannamót. Söfnuðust á uppboðinu um 730 þúsund krónur og rennur ágóðinn óskiptur til Umhyggju, félags langveikra barna. Myndasyrpu frá Reykhóladögum er að finna í Skessuhorni vikunnar.Lesa meira

true

Reykholts- og Hvanneyrarkirkju færð gjöf

Miðvikudaginn 20. júlí færði Davíð Pétursson á Grund í Skorradal, Reykholtskirkju og Hvanneyrarkirkju sitthvorn „moldunarfontinn.“ Moldunarfontur er nýyrði sem Davíð notaði yfir það ílát sem notað er við moldun í jarðarförum. Gjöfin var færð kirkjunum í minningu eiginkonu Davíðs, Jóhönnu Guðjónsdóttur, sem lést í fyrra. Afhendingin fór fram á afmælisdegi hennar en Davíð ásamt börnum…Lesa meira

true

Unglingalandsmót hefst í dag

Um verslunarmannahelgina verður 19. Unglingalandsmót UMFÍ haldið í Borgarnesi. Um 1.500 keppendur eru skráðir á mótið og búist er við um 10- 15 þúsund manns í Borgarnes mótsdagana. Keppni hefst í fyrramálið með golfkeppni svo hefst keppni í körfubolta um hádegið. Alls verður keppt í 14 keppnisgreinum. Mjög fjölbreytt afþreyingardagskrá er í boði og opin…Lesa meira

true

Úr dagbók lögreglunnar: tveir ölvaðir við akstur

Sjö umferðaróhöpp urðu í síðustu viku í umdæmi lögreglunnar á Vesturlandi, öll án teljandi meiðsla á fólki. Fólksbíl var ekið af Hvalfjarðarvegi í veg fyrir jeppa sem ók norður Vesturlandsveg með hjólhýsi í eftirdragi. Lenti framhorn jeppans í hlið fólksbílsins.  Dráttarbíll var fengin til að fjarlægja ökutækin og hjólhýsið af vettvangi.  Speglar á rútu og…Lesa meira

true

Harður árekstur á Snæfellsnesi

Laust fyrir klukkan fimm síðdegis í gær varð árekstur á Útnesvegi á Snæfellsnesi nálægt afleggjaranum að Írskrabrunni þegar tvær fólksbifreiðar skullu saman. Virðist sem ökumaður annarrar bifreiðarinnar hafi misst af afleggjaranum og verið að snúa við þegar áreksturinn varð. Að sögn lögreglunnar var áreksturinn nokkuð harður en afleyðingarnar ekki jafn alvarlega og óttast var í…Lesa meira

true

Unglingalandsliðsmaður til Snæfells

Bakvörðurinn Árni Elmar Hrafnsson hefur skrifað undir eins árs samning við Snæfell og mun leika með liðinu í Domino‘s deild karla í körfuknattleik á vetri komanda. Árni er fæddur árið 1998, uppalinn hjá Fjölni í Grafarvogi og er þessa stundina á leið til Makedóníu með U18 landsliði karla sem varð Norðurlandameistarar í Finnlandi fyrr í sumar. Árni…Lesa meira

true

Hlupu yfir Arnarvatnsheiði á 12 tímum

Síðastliðinn laugardag lauk 10 ára fjallvegahlaupaverkefni Stefáns Gíslasonar í Borgarnesi með hlaupi yfir Arnarvatnsheiði úr Miðfirði suður í Borgarfjörð. Þetta var fimmtugasta hlaupið í verkefninu og jafnframt það langlengsta, en samtals mældist vegalengdin 81,31 km. Hlaupinu luku Stefán og félagar hans á rúmum 12 klukkustundum og var vel fagnað af vinum og vandamönnum við vegamótin…Lesa meira

true

Dröfn laus af strandstað

Rannsóknarskipið Dröfn strandaði í Þorskafirði í Reykhólahreppi í gær. Landhelgisgæslunni barst tilkynning þess efnis um þrjúleytið og þyrla var send á staðinn. Gæslan mat aðstæður á vettvangi góðar. Dröfn virtist óskemmd og engin mengun var á strandstað. Einnig mat gæslan aðstæður þannig engin hætta væri mönnum búin. Áhöfn Drafnar hófst því handa við að reyna…Lesa meira