Fréttir

true

Dópaður ökumaður smitaði lögreglumenn af Covid-19

Laugardaginn 24. október sl. stöðvaði lögregla við reglulegt eftirlit bifreið við Hvalfjarðargöng. Við nánari athugun reyndist ökumaður undir áhrifum fíkniefna. Ökumaður var handtekinn og fluttur á lögreglustöð. Síðar kom í ljós að hann var smitaður af Covid-19. Þrátt fyrir að lögreglumennirnir væru með grímur og hanska og hefðu unnið samkvæmt varúðarráðstöfunum lögreglu eru þeir nú…Lesa meira

true

27 innanlandssmit greindust í gær

Alls greindust 27 innanlandssmit kórónuveirunnar í gær skv. tölum á covid.is, og þar af voru 17 í sóttkví. Engin smit voru greind á landamærum í gær. Í dag eru 74 á sjúkrahúsi, þar af fjórir á gjörgæslu. 872 eru í einangrun vegna veirunnar og 2.083 í sóttkví. Nýgengi smita er nú 188,4 sem er lækkun…Lesa meira

true

Mjólkursamsölunni skipt upp í tvö fyrirtæki

Eigendur og stjórn Mjólkursamsölunnar hafa ákveðið að skipta starfseminni upp í sjálfstæð félög í sömu eigu, sem sinni annars vegar innlendri og hins vegar erlendri starfsemi. „Er þessi breyting nú rökrétt framhald á þeirri vegferð sem hófst um mitt ár 2018, þegar stofnað var sérstakt dótturfélag um erlenda starfsemi Mjólkursamsölunnar, Ísey útflutningur ehf. Var það…Lesa meira

true

Lýsa yfir áhyggjum af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda

Sveitarstjórnir Húnaþings vestra, Dalabyggðar, Strandabyggðar og Reykhólahrepps hafa sent frá sér sameiginlega ályktun vegna áhyggja af lágu afurðaverði til sauðfjárbænda. Hefur hún verið send til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, þingmanna Norðvesturkjördæmis, atvinnumálanefndar Alþingis, Bændasamtaka Íslands, Landssamtaka sauðfjárbænda, afurðastöðva landsins og á fjölmiðla. „Sveitarstjórnir Húnaþings vestra, Dalabyggðar, Strandabyggðar og Reykhólahrepps lýsa yfir þungum áhyggjum af lágu afurðaverði…Lesa meira

true

Reglugerðarbreyting um fjölda viðskiptavina í verslunum

Nú er heimilt að hafa allt að 50 viðskiptavini í einu inni í lyfja- og matvöruverslunum og allt að 10 viðskiptavini samtímis í öðrum verslunum, að því gefnu að hægt sé að hafa a.m.k. tvo metra á milli einstaklinga sem ekki eru í nánum tengslum. Um starfsmenn í þessum verslunum gildir að þeir mega ekki…Lesa meira

true

Víða lagfæringar í vegagerð á Snæfellsnesi

Á Snæfellsnesi hefur í haust verið unnið að ýmsum verkefnum hjá Vegagerðinni, bæði stórum og smáum. Stærsta verkefnið var vinna við að bæta öryggi á Snæfellsnesvegi en í Stórholtum voru lengd ræsi og vegfláar og öryggissvæði lagað en um 6000 rúmmetrum var keyrt í vegfláana. Í Grundarbotni austan megin við Grundarfjörð var skipt um tvö…Lesa meira

true

Borgfirðingar sýna samhug

Um síðustu helgi tóku íbúar í Borgarbyggð sig saman og bjuggu til samstöðuhóp á Facebook undir nafninu „Samhugur í Borgarbyggð“. Tilgangur hópsins er að aðstoða þá sem á þurfa að halda nú á þessum erfiðu tímum þegar jólin fara að nálgast. Í gegnum hópinn er ætlunin að safna jólagjöfum, gjafabréfum og matarpökkum fyrir þá sem…Lesa meira

true

Undirbúa stofnun þjóðgarð á sunnanverðum Vestfjörðum

Umhverfisstofnun hefur kynnt áform um stofnun þjóðgarðs á sunnanverðum Vestfjörðum. Stofnunin vinnur nú ásamt samstarfshópi að undirbúningi friðlýsingar fyrir svæði sem m.a. nær til Vatnsfjarðar, Surtarbrandsgils, Geirþjófsfjarðar og jarðanna Dynjanda og Hrafnseyrar við Arnarfjörð. Í september á síðasta ári færði Rarik íslenska ríkinu jörðina Dynjanda að gjöf. Við undirritun samkomulags vegna gjafarinnar staðfestu stjórnvöld að…Lesa meira

true

Sektað verði fyrir að greiða undir lágmarkskjörum

Miðflokkurinn hefur lagt fram á Alþingi frumvarp um breytingar á lögum um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda. Birgir Þórarinsson þingmaður er fyrsti flutningsmaður, en aðrir flutningsmenn eru hinir átta þingmenn Miðflokksins. Í breytingartillögunni felst að Vinnumálastofnun verði veitt heimild til að leggja stjórnvaldssekt á atvinnurekanda sem vísvitandi eða af stórfelldu gáleysi greiðir launamanni laun eða…Lesa meira

true

Útgerðin á netið

Útgerðin í Pakkhúsinu í Ólafsvík opnaði fyrr í mánuðinum nýja vefverslun og sendir nú frítt um allt land. Í verslun Útgerðarinnar er fjölbreytt vöruúrval af heimilisvörum, skartgripum, fatnaði, barnavörum, sælkeravörum og ýmsu öðru. Hægt er að skoða vöruúrvalið og versla í vefversluninni á utgerdin.shop.Lesa meira