Fréttir

true

Birta skýrslu um upplýsingaóreiðu á tímum Covid-19

Skýrsla vinnuhóps þjóðaröryggisráðs um upplýsingaóreiðu og Covid-19 sem settur var á laggirnar í apríl 2020 liggur nú fyrir. Í henni er fjallað um mikilvægi upplýsingamiðlunar og lýðheilsu, nýtt tækniumhverfi og miðlun upplýsinga, samstarf hópsins við Vísindavef Háskóla Íslands og alþjóðasamstarf á þessu sviði. Í 6. kafla skýrslunnar er ítarlega fjallað um niðurstöður kannana sem vinnuhópurinn…Lesa meira

true

Keppni hætt í fótboltanum

Stjórn Knattspyrnusambands Íslands samþykkti á fundi sínum á föstudaginn að hætta keppni í Íslandsmótum og bikarkeppni KSÍ 2020. Sú ákvörðun er í samræmi við 5. grein í reglugerð um viðmiðanir og sértækar ráðstafanir vegna heimsfaraldurs kórónaveiru sem gefin var út í júlí síðastliðnum. Ákvörðunin tekur strax gildi. Íslenska deildin er sú eina í Evrópu sem…Lesa meira

true

Loka ber öllum golfvöllum landsins

Tilkynnt var á föstudaginn um hertar aðgerðir í sóttvörnum til 17. nóvember. Í þeim felst meðal annars að allar æfingar og keppni í íþróttum eru bannaðar. Viðbragðshópur Golfsambands Íslands óskaði eftir nánari útskýringum á því hvort 6. mgr. 5. gr. reglugerðarinnar eigi við um golfiðkun. Að mati viðbragðshópsins þótti ekki nægur samhljómur á milli þess…Lesa meira

true

Stærsti úflutningsmánuður fiskeldisafurða frá upphafi

Útflutningsverðmæti eldisafurða á fiski nam tæpum fjórum milljörðum króna í september. Er hér um stærsta mánuð í útflutningi á eldisafurðum frá upphafi að ræða á alla mælikvarða. Það er verðmæta í krónum talið, verðmæta í erlendri mynt og í tonnum. Í krónum talið er um að ræða 182% aukningu frá september í fyrra. Aukningin er…Lesa meira

true

Byrjað að grafa grunn undir reiðhöll á Æðarodda

Í morgun hófu starfsmenn Snóks ehf. jarðvegsskipti undir væntanlega reiðhöll hestamannafélagsins Dreyra á Æðarodda við Akranes. Þar verður byggt 1.250 fm. hús sem verður 25 metrar á breidd og 50 metra langt. Auk hestamanna koma sveitarfélögin; Akraneskaupstaður og Hvalfjarðarsveit, að framkvæmdum. BM Vallá/Smellinn tekur við jarðvegsskiptum grunni og reisir sökkla en samið hefur verið við…Lesa meira

true

Tíu manna samkomubann og íþróttastarf leggst af

Samkomutakmarkanir munu frá miðnætti takmarkast við tíu manns í stað tuttugu áður. Áfram verður tveggja metra reglan við lýði og aukin áhersla er lögð á grímunotkun. Íþróttastarf í landinu leggst af í bili, sundlaugar verða lokaðar, krár og skemmtistaðir sömuleiðis og veitingastaðir þurfa að loka kl. 21:00 á kvöldin. Aðeins verða börn fædd 2015 og…Lesa meira

true

72 í sóttkví í landshlutanum

Nokkuð fjölgar í hópi þeirra sem sæta sóttkví á Vesturlandi milli daga. Í gær voru þeir 55 en í dag eru 72 í sóttkví í landshlutanum, og fjölgar þannig um 17. Flestir Sé litið til starfssvæða einstakra heilsugæslustöðva breytist hún mest á Akranesi, þar sem fjöldi í sóttkví meira en tvöfaldast. Þar voru í gær…Lesa meira

true

Hótel Sögu lokað nú um mánaðamótin

Hótel Sögu verður lokað 1. nóvember vegna neikvæðra áhrifa Covid-19 faraldursins á ferðaþjónustufyrirtæki. Hótelið er sem kunnugt er í eigu Bændasamtaka Íslands, sem eru til húsa á þriðju hæð hússins eins og fleiri samtök landbúnaðarins. Lokun hótelsins mun ekki hafa áhrif á aðra starfsemi í húsinu. Í tilkynningu á vef Bændasamtakanna segir að tekjusamdráttur hótelsins…Lesa meira

true

75 smit í gær

Alls greindust 75 ný innanlandssmit kórónuveirunnar í gær, skv. uppfærðum tölum á covid.is. Af þeim voru 28 utan sóttkvíar við greiningu. Fimm smit greindust á landamærunum, en beðið er niðurstöðu mótefnamælingar. Í dag eru 64 á sjúkrahúsi vegna Covid-19 hér á landi, þar af fjórir á gjörgæslu. Í dag eru 996 í einangrun vegna veirunnar…Lesa meira

true

Ljósleiðari lagður síðasta spölinn

Framkvæmdir eru hafnar við síðasta áfangann í ljósleiðaravæðingu dreifbýlis Snæfellsbæjar. Um er að ræða lagningu ljósleiðara milli Hellissands og Gufuskála, en sveitarfélagið nýtur styrks frá Fjarskiptasjóði til verksins. Það er verktakinn Stafnafell ehf. í Staðarsveit em sér um að plægja fyrir ljósleiðaranum en Gunnar Hauksson hefur umsjón með verkefninu fyrir hönd Snæfellsbæjar.Lesa meira