Fréttir

true

Steypt á höfninni

Starfsmenn Almennu umhverfisþjónustunnar voru önnum kafnir við steypuvinnu á bryggjunni í Grundarfirði í blíðviðrinu síðasta mánudag. Ágætis gangur er í framkvæmdum við höfnina en Borgarverk hefur lokið sínum verkhluta og eru starfsmenn þess horfnir á braut í bili. Almenna umhverfisþjónustan hefur nú tekið við keflinu og á meðan vel viðrar er góður gangur í verkinu.Lesa meira

true

Selja pungvax og skeggolíur í nýrri vefverslun

Bræðurnir Sigurður Árni og Atli Snær Júlíussynir reka saman vefverslunina Herrahellirinn í Borgarnesi þar sem seldar eru hágæða herrasnyrtivörur, eins og segir á vefsíðu fyrirtækisins. Þar má finna allt frá skeggolíum, sjampói fyrir hárið og meira að segja pungvax svo fátt eitt sé nefnt. Nú hafa þeir bræður verið í rekstri í um þrjár vikur…Lesa meira

true

Talsverð hreyfing á fylgi flokka

MMR birti í dag frétt um nýja könnun á fylgi stjórnmálaflokka. Samkvæmt henni mælist fylgi Sjálfstæðisflokksins nú 21,9%, tæplega fjórum prósentustigum lægra en við síðustu könnun MMR sem framkvæmd var í september. Fylgi Samfylkingarinnar eykst um rúmlega tvö prósentustig og mælist nú 15,2% en fylgi Pírata minnkaði um eitt og hálft prósentustig og mældist nú…Lesa meira

true

Krósk flytur að Kirkjubraut á Akranesi

Kristín Ósk Halldórsdóttir kjólaklæðskeri flytur brátt verslunina Krósk og vinnustofu sína að Kirkjubraut 54 á Akranesi. Hún hefur undanfarin ár haft vinnustofu sína og litla verslun að Smiðjuvöllum 8. Þess utan var hún með verslun í félagi við aðra við Laugaveg í Reykjavík þangað til síðastliðið vor. „Vefverslunin var orðin svo stór að ég fór…Lesa meira

true

Fjölgað um einn í einangrun en fækkun í sóttkví

Frá því í gær hefur fjölgað um einn á Vesturlandi sem eru í einangrun með Covid-19. Eru nú 21. Þar af eru 16 á svæði heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi, fjórir í Borgarnesi og einn í Ólafsvík. Í sóttkví eru nú 58 á Vesturlandi og hefur fækkað um 14 frá í gær. Fimm eru í Búðardal, þrír…Lesa meira

true

Vökudagar hefjast á Akranesi á morgun

Lista- og menningarhátíðin Vökudagar er haldin á hverju ári en hún var fyrst haldin 2002. Í ár stendur hátíðin frá fimmtudeginum 29. október til 8. nóvember. Tilgangur hátíðarinnar er ekki síst að efla menningarlífið í bænum og lífga um leið upp á skammdegið. Umfang hátíðarinnar hefur aukist ár frá ári og hefur hún notið vaxandi…Lesa meira

true

Á gjörgæslu eftir líkamsárás í Borgarnesi

Karlmaður á sextugsaldri, sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás í Borgarnesi mánudaginn 19. október síðastliðinn, var fluttur á gjörgæslu tveimur dögum síðar. Ástand hans hafði þá versnað mjög og var talið lífshættulegt. Hann var rifbeinsbrotinn, kjálkabrotinn og mögulega viðbeinsbrotinn ásamt því að hafa nokkur bitför í andliti. Eftir að hann var fluttur frá sjúkrahúsinu á Akranesi…Lesa meira

true

Hvasst við fjöll í fyrramálið

Veðurstofan bendir á að í kvöld og fyrramálið hvessir um sunnan- og vestanvert landið. Á Kjalarnesi og í Hvalfirði er búist við að vindhviður nái allt að 35 m/s í fyrramálið frá kl. 5 til 8. Hvassara verður á suðausturlandi, en í hviðum í Öræfum gætu orðið 35-40 m/s frá kl. 18 í kvöld og…Lesa meira

true

Haraldur er nýr skólastjóri Auðarskóla

Haraldur Haraldsson hefur verið ráðinn skólastjóri Auðarskóla í Búðardal og tekur hann við af Hlöðveri Inga Gunnarssyni um næstu mánaðamót. Haraldur hefur starfað sem skólastjóri í um 30 ár, fyrst við Ásgarðsskóla í Kjós. „Ég byrjaði þar beint eftir háskólanámið, bara af tilviljun,“ segir Haraldur í samtali við Skessuhorn. „Ég ætlaði að fara að kenna…Lesa meira