
Nemendur í 2. bekk AT í Grunnskóla Snæfellsbæjar kunnu vel að meta heita kakóið sitt sem hitað var yfir eldi í útikennslustofu skólans á Hellissandi. Kakóið fengu þau þegar þau höfðu lokið við að leysa verkefni í útikennslu í myndmennt og heimilisfræði. Var ferðin samvinnuverkefni milli myndmennta- og heimilisfræðikennaranna þeirra Ingu Harðardóttur og Sóleyjar Jónsdóttur.…Lesa meira








