Fréttir

true

Ráðherrabílstjóri í rúma tvo áratugi

Það var fyrir 21 ári, 2. maí árið 1995, sem Björn Kjartansson vatt sínu kvæði í kross og hætti að starfa sem húsasmíðameistari og tók til starfa sem ráðherrabílstjóri. „Þetta hófst allt saman með því að Ingibjörg Pálmadóttir tók við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu árið 1995. Hún sóttist eftir því að fá mig til starfa sem…Lesa meira

true

Eldri borgarar öttu kappi í golfi

Síðasta fimmtudag fór fram púttmót á Garðavelli milli eldri borgara á Akranesi og Borgarnesi. Púttvöllurinn er 18 holu völlur og keppt var í tveimur hópum. Töluverður fjöldi karla og kvenna tóku þátt í mótinu og ríkti mikil gleði í hópnum en Félag eldri borgara á Akranesi og nágrennis bar sigur úr býtum að þessu sinni. Þetta…Lesa meira

true

Bæta stjórnsýslu í kjölfar athugasemda

Eins og Skessuhorn greindi frá laust eftir mánaðamót gerði Umboðsmaður Alþingis alvarlegar athugasemdir við afgreiðslu Borgarbyggðar á erindum Þorsteins Mána Árnasonar. Í bréfinu ávítaði umboðsmaður sveitarfélagið fyrir óeðlilegar tafir á svörum við erindum Þorsteins Mána, að sveitarfélagið hafi beint samskiptum sínum við hann til utanaðkomandi lögmanns, sem og óeðlilegar tafir á svörum við fyrirspurnum umboðsmanns…Lesa meira

true

Segjast engin tengsl hafa við Burbanks Capital

Forsvarsmenn Silicor Materials segja fyrirtækið engin tenstl hafa við hollenska félagið Burbanks Capital, félagið sem hyggst fjármagna byggingu nýs einkasjúkrahúss í Mosfellsbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þar segir enn fremur að Burbanks Capital sé ekki í hópi þeirra fjárfesta, íslenskra sem erlendra, sem standi að uppbyggingu fyrirhugaðs sólarkísilvers Silicor á Grundartanga. Tilefni…Lesa meira

true

„Búmerang” högg á Hamarsvelli

Á golfvellinum að Hamri ofan Borgarness gerðist það í vikunni að höggfastur en óheppin golfari sló golfboltann í stein og fékk hann til baka í höfuðið af miklum krafti.  Féll maðurinn við og lá eftir í grasinu.  Var hann fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar, en talið var að meiðsl hans hefðu verið minniháttar.Lesa meira

true

Óvæntir gestir á góðri stund

Nú um helgina fór fram bæjarhátíðin Á góðri stund í Grundarfirði. Hátíðin gekk vel og mikið líf og fjör var í bænum um helgina. „Það fór allt vel fram um helgina,“ sagði Aldís Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Á föstudaginn bættist heldur betur í tölu hátíðargesta þegar tvö skemmtiferðaskip lögðu að bryggju í Grundarfirði. Þetta voru skipin Costa…Lesa meira

true

Skagakonur töpuðu í fallbaráttuslag

Skagakonur mættu FH í tíundu umferð Pepsi deildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið var í Kaplakrika í Hafnarfirði. Um fallbaráttuslag var að ræða, en ÍA var fyrir leikinn á botni deildarinnar með fjögur stig. Gestgjafarnir úr hafnarfirði voru í 8. sæti með sjö stig. Sigur ÍA hefði því getað lift liðinu upp fyrir KR…Lesa meira

true

Aðalsteinn og Sigurður leiða Íslandsmótið

Þriðja umferð Íslandsmótsins í rallý fór fram dagana 22. og 23. júlí í Skagafirði. Það var Bílaklúbbur Skagafjarðar sem stóð fyrir keppninni en þessi árvissa keppni vekur bæði áhuga og eftirtekt rallýáhugafólks þar sem skipulag og framkvæmd er ávallt til eftirbreytni. Það var því margt um manninn, tæplega tuttugu áhafnir voru mættar til leiks auk…Lesa meira

true

Eldur í Norðurál í nótt

Eldur kom upp á starfsvæði álvers Norðuráls á Grundartanga í nótt. Gat kom á pott í kerskála álversins og ál lak niður í kjallara. Álið rann að Bobcat lyftara, sem þar var staðsettur, með þeim afleiðingum að kviknaði í honum. Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað á svæðið klukkan 00:30. Að sögn Björns Þórhallssonar varaslökkviliðsstjóra…Lesa meira

true

Vakinn upp af Pokémon þjálfara

Rétt eftir hádegi dag einn í liðinni viku var íbúi í Jörundarholti vakinn upp af værum svefni eftir næturvakt þegar barið var að dyrum. Þegar íbúinn fór til dyra stóð tólf ára drengur sem íbúinn kannaðist ekki við fyrir utan og bað um að fá að komast inn vegna þess að þar átti að leynast…Lesa meira