Fréttir

true

Ný tölfræði sýnir ótvírætt gagnsemi bólusetningar

Á vef Covid.is hafa verið birtar nýjar tölfræðiupplýsingar sem sýna annars vegar samanburð á fjórtán daga nýgengi smita eftir aldurshópum og bóluefnastöðu og hins vegar nýgengi innlagna á sjúkrahús eftir stöðu bólusetningar. Samkvæmt tölfræðinni er nýgengi sjúkrahússinnlagna nú 0,5 (af 100 þúsund íbúum) hjá fullorðnum sem hafa fengið örvunarbólusetningu, það er um tólf sinnum hærra…Lesa meira

true

Hvetja til að sameining verði samþykkt

Sveitarstjórnir Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar hafa báðar lokið fyrri umræðu um álit samstarfsnefndar um sameiningu sveitarfélaganna. Sameiningarnefnd mælir með því að íbúar samþykki sameiningu í kosningum sem ráðgerðar eru 12. febrúar 2022. Í tilkynningu vegna sameiningarinnar segir orðrétt: „Hvatt er til þess að sameining Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar verði samþykkt í kosningum 12.…Lesa meira

true

Matvælastofnun viðurkennir kerfislæga galla í eftirliti með blóðtökuhryssum

Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að rannsókn á meintum alvarlegum brotum á velferð blóðtökuhryssna heldur áfram hjá stofnuninni. Mast vinnur jafnframt að endurskoðun á þeim skilyrðum sem sett eru fyrir starfseminni og eftirliti með henni. Þá segir að ábendingar um alvarleg dýravelferðarbrot séu ávallt teknar mjög alvarlega hjá stofnuninni. „Matvælastofnun þakkar dýravelferðarsamtökunum AWF/STB fyrir…Lesa meira

true

Stór bólusetning í Grundarfirði

Í gær var stór bólusetning í íþróttahúsi Grundarfjarðar. Níutíu skammtar af bóluefni voru blandaðir snemma um morguninn á Akranesi áður en lagt var af stað til Grundarfjarðar. Þegar þessir níutíu skammtar kláruðust voru starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Vesturlands iðnir við að blanda meira en alls voru tæplega tvö hundruð manns bólusettir þennan morgun í Grundarfirði. Eftir hádegi…Lesa meira

true

Umhverfissóðar á ferð við Glanna

Maður sem nýverið átti leið niður að fossinum Glanna í Norðurárdal tók eftir að hrafnaþing mikið var í gangi rétt fyrir innan golfskálann í hrauninu. Hann fór að skoða þetta nánar. Í ljós kom að einhver hafði losað sig á þessum stað við nokkra poka sem innihéldu meðal annars úrbeinaða kindaskrokka og annan lífrænan úrgang…Lesa meira

true

Sigursteinn Hákonarson söng Jólaljósin ljóma

Reynsluboltinn og rokkstjarnan Sigursteinn Hákonarson, Steini í Dúmbo, opnaði annan glugga jóladagatals Skagamanna, Skaginn syngur inn jólin, í morgun. Steini hefur verið lengi að en hann sagði Óla Palla og Hlédísi að hann hefði sennilega sungið fyrst í Bíóhöllinni á Akranesi á bingói hjá karlakórnum Svönum um 1962, um svipað leyti og Rolling Stones voru…Lesa meira

true

Flestar hjónavígslur í kirkju

Af þeim 530 einstaklingum sem stofnuðu til hjúskapar í ágústmánuði á þessu ári gengu 144 í hjúskap hjá sýslumanni eða 27,2%, 252 giftu sig í Þjóðkirkjunni eða 47,5% og 76 einstaklingar gengu í hjúskap í öðru trú- eða lífsskoðunarfélagi eða 14,3%. 58 einstaklingar gengu í hjúskap erlendis. Í sama mánuði skildu 84 einstaklingar samkvæmt samantekt…Lesa meira

true

Laxinn í öðru sæti í útflutningsverðmætum

Útflutningsverðmæti eldislax frá Íslandi er komið í rúma 23,3 milljarða króna á fyrstu tíu mánuðum ársins. Það er 49% aukning í krónum talið frá sama tímabili í fyrra. Í erlendri mynt er aukningin aðeins meiri, eða rúm 52%, þar sem gengi krónunnar var að jafnaði rúmlega 2% sterkara í ár en á sama tímabili í…Lesa meira

true

Skessuhornsblöð til jóla

Nú í desember verða gefin út þrjú tölublöð af Skessuhorni. Hið fyrsta kom út í gær, en hin síðari miðvikudaginn 8. desember en Jólablað Skessuhorns verður svo gefið út miðvikudaginn 15. desember. Athygli er vakin á því að vegna stærðar Jólablaðsins þarf efni og auglýsingar til birtingar í því að skila sér tímanlega, eða fyrir…Lesa meira

true

Nýtt hús rís í Fossabrekku

Lítið hefur verið byggt í Ólafsvík að undanförnu. Nú er hins vegar að rísa nýtt íbúðarhús við Fossabrekku 3. Það eru þau Hanna Metta Bjarnadóttir og Jón Tryggvason sem eru að byggja sér 224 fermetra hús. Það er byggt úr forsmíðuðum einingum sem smíðaðar voru af þeim Jóni Tryggvasyni og Sigurði Gylfasyni hjá JT trésmíði.…Lesa meira