Fréttir

true

Íslandsmeistaramót í hrútadómum

Hrútar verða þreifaðir og þuklaðir í Sauðfjársetrinu í Sævangi við Steingrímsfjörð á Ströndum sunnudaginn 21. ágúst. Þá fer fram hið árlega Íslandsmeistaramót í hrútadómum. Jafnan er þátttaka góð í mótinu, bæði í flokki reyndra hrútadómara og eins í flokki óvanra hrútaþuklara. Vestlendingar úr nærliggjandi sveitarfélögum hafa oft fjölmennt á mótið og voru einráðir á verðlaunapalli…Lesa meira

true

Sumarmót SamVest var haldið á Bíldudalsvelli

Árlegt sumarmót SamVest í frjálsum íþróttum var haldið á Völuvelli á Bíldudal laugardaginn 13. ágúst sl. Það var Héraðssambandið Hrafna-Flóki sem bauð til mótsins á Völuvelli á Bíldudal. Aðstæður á vellinum voru prýðilegar; atrennubraut langstökks og svæði fyrir hástökk og spjót eru lögð tartanefni og hlaupabrautin var mjög hörð og góð og merkt af HHF…Lesa meira

true

Fjórtán sóttu um starf sviðsstjóra hjá Akraneskaupstað

Fjórtán sóttu um starf sviðsstjóra skóla- og frístundasviðs Akraneskaupstaðar sem auglýst var til umsóknar fyrr í sumar. Undir sviðið heyrir rekstur grunn,- leik- og tónlistarskóla, íþróttamannvirkja og frístundamiðstöðvar. Sviðsstjórinn ber ábyrgð á áætlanagerð og undirbúningi stefnumótunar í málaflokknum og öðrum verkefnum sem heyra undir sviðið. Fyrirtækið Capacent annast úrvinnslu umsókna en sviðsstjórinn verður ráðinn af…Lesa meira

true

Nýir eigendur að Borgarsporti í Borgarnesi

Í dag verður verslunin Borgarsport í Hyrnutorgi í Borgarnesi opnuð af nýjum eigendum, en eigendaskipti urðu fyrr í vikunni þegar Jóhanna Björnsdóttir seldi verslunina. Nýir eigendur eru Helga Sif Andrésdóttir og Stefán Ingi Ólafsson. Jóhanna sagði í samtali við Skessuhorn að nú hafi bara verið rétti tíminn fyrir sig að hætta. „Ég er búin að eiga…Lesa meira

true

KSÍ veitir 453 milljónum til aðildarfélaga

Vegna þátttöku íslenska karlalandsliðsins á EM í Frakklandi mun Knattspyrnusamband Íslands greiða 453 milljónir króna til aðildarfélaga sinna. Á ársþingi KSÍ í febrúar var tilkynnt að greitt yrði sérstakt EM framlag, 300 milljónir eða um fjórðungur af greiðslu Evrópska knattspyrnusambandsins UEFA. Í samræmi við auknar greiðslur frá UEFA vegna góðs gengis karlalandsliðsins á mótinu hefur…Lesa meira

true

Atvinnuleysi 3,6% á öðrum ársfjórðungi

Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru 199.300 manns á aldrinum 16-74 ára á vinnumarkaði á öðrum ársfjórðungi ársins. Af þeim voru 192.100 starfandi og 7.200 án atvinnu og í atvinnuleit. Það þýðir að atvinnuleysi var 3,6% á öðrum ársfjórðungi. Frá því á öðrum ársfjórðungi í fyrra fjölgaði starfandi fólki um 5.600. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um…Lesa meira

true

Framóknarmenn í NV kjördæmi funda um helgina

Framsóknarflokkurinn í Norðvesturkjördæmi hefur boðað til aukakjördæmisþings á morgun, laugardaginn 20. ágúst. Fer fundurinn fram í Félagsheimilinu Tjarnarlundi í Saurbæ og hefst kl. 12.30. Á dagskrá fundarins er m.a. að taka ákvörðun um aðferð við val á lista við alþingiskosningarnar 29. október nk. Í lögum flokksins segir að það sé kjördæmisþing sem ákveði aðferð við val…Lesa meira

true

Lífið og landið er rauði þráðurinn í kennslu og rannsóknum

Við Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri er kennt bæði nám á háskólabrautum og starfsmenntabrautum, auk þess sem í boði er endurmenntunarnám. Skólinn opnar dyr sínar á næstu dögum þó formlega verði skólinn ekki settur fyrr en eftir helgi. „Kennsla hefst núna í vikunni í sumarnámskeiðum en annars mánudaginn 22. ágúst á háskólabrautum en mánudaginn 29. ágúst…Lesa meira

true

ÍA ætlar að nýta EM framlagið í uppeldisstarfið

Eins og fram kom í Skessuhorni fyrr í vikunni ætlar KSÍ að greiða 453 milljónir krónur af EM tekjum sínum til aðildarfélaga sambandsins. KSÍ setti það skilyrði að peningunum yrði aðeins varið í knattspyrnutengda starfsemi félaganna.  Töluverð umræða hefur skapast um hvernig nýta skuli fjármunina og hafa margir gagnrýnt KSÍ fyrir að fara ekki að…Lesa meira

true

Nýr deildarforseti ráðinn til LbhÍ

Auður Magnúsdóttir er nýr deildarforseti Auðlinda- og umhverfissviðs Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri. Þetta kemur fram í frétt á vef LbhÍ. Auður er lífefnafræðingur, lauk BSc prófi í lífefnafræði frá Háskóla Íslands árið 2000 og varði doktorsritgerð í sama fagi við Stokkhólmsháskóla og Karolinska Institut í Svíþjóð árið 2008. Auður starfaði síðast hjá Íslenskri erfðagreiningu þar…Lesa meira