Fréttir

true

Hyggjast ljósleiðaravæða sveitarfélagið

Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti samhljóða á síðasta fundi sínum að unnin verði áætlun um lagningu ljósleiðara í sveitarfélaginu. Stefnt er að því að áætlunin verði tilbúin nú í haust og verði lögð til grundvallar fyrir umsókn um styrk í Fjarskiptasjóð til framkvæmdarinnar. Lagði sveitarstjórn til að samið verði við Karl Hálfdánarson hjá Radioveri um að hanna…Lesa meira

true

Hátíðarguðsþjónusta á 120 ára vígsluafmæli Akraneskirkju

Fjölmenni var viðstatt hátíðarguðsþjónustu á Akranesi í gær. Þá var fagnað 120 ára vígsluafmælis kirkjunnar og 30 ára afmælis safnaðarheimilisins Vinaminnis. Séra Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands prédikaði en auk hennar þjónuðu við athöfnina prestar safnaðarins þeir sr. Eðvarð Ingólfsson og sr. Þráinn Haraldsson auk sr. Þorbjarnar Hlyns Árnasonar prófasts á Borg. Sóknarnefndarfólk las ritningarorð…Lesa meira

true

Fjórir Vestlendingar taka þátt í Rallý Reykjavík

Dagana 25. – 27. ágúst fer fram fjórða umferð  Íslandsmeistarmótsins í rallý; Rallý Reykjavík. Framkvæmd keppninnar er í höndum Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavíkur en klúbburinn hefur staðið fyrir keppnishaldi frá árinu 1977. Keppnin sem oft er kölluð Alþjóðarallið er sú stærsta og erfiðasta á keppnistímabili rallökumanna hérlendis en eknir verða tæplega þúsund kílómetrar á þremur dögum, þar…Lesa meira

true

Glæsilegt minningarmót í skák var haldið á Reykhólum

Íslandsmeistarinn Lenka Ptáčníková og stórmeistarinn Jón L. Árnason sigruðu á Minningarmóti Birnu Norðdahl í skák sem haldið var á Reykhólum laugardaginn 20. ágúst. Keppendur komu hvaðanæva af landinu og var mikil stemning í íþróttahúsinu þar sem mótið fór fram við frábærar aðstæður. Mótið var haldið til að minnast Birnu E. Norðdahl (1919-2004) sem var brautryðjandi…Lesa meira

true

Rauða kross búðin í Borgarnesi brátt flutt í nýtt húsnæði

Um þessar mundir er unnið að því að flytja Rauða kross búðina í Borgarnesi í nýtt húsnæði. Nýja staðsetningin er þó skammt frá þeirri gömlu, eða í næsta húsi, þar sem TK hárgreiðslustofa var nú síðast í gamla pósthúsinu. Að sögn Kjartans Sigurjónssonar formanns Rauða krossins í Borgarnesi eru framkvæmdir enn á byrjunarstigi. „Hönnunarstofan Hvíta…Lesa meira

true

Hvanneyrarkirkjugarður verður stækkaður

Umhverfis-, skipulags- og landbúnaðarnefnd Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum nýverið að veita leyfi til stækkunar Hvanneyrarkirkjugarðs. Sóknarnefnd Hvanneyrarsóknar hafði sótt um framkvæmdaleyfi til 189 fermetra stækkunar kirkjugarðsins. Stækkunin samræmist aðalskipulag Borgarbyggðar fyrir Hvanneyri árin 2010-2022. Fyrir liggur undirritað samþykki íbúa Túngötu 26 fyrir stækkuninni. Að sögn Guðmundar Sigurðssonar, formanns sóknarnefndar Hvanneyrarsóknar, vonast sóknarnefnd til að framkvæmdir geti hafist…Lesa meira

true

Jafntefli í baráttuleik í Ólafsvík

Í kvöld mættust lið Víkings Ó. og Fjölnis á Ólafsvíkurvelli í sextándu umferð Pepsi deildar karla í knattspyrnu. Víkingur var fyrir leikinn í níunda sæti með átján stig en Fjölnir í öðru sæti með 27 stig. Leiknum í kvöld lauk með 2-2 jafntefli og því mikilvægt stig fyrir Víking til þess að halda sig frá…Lesa meira

true

Framsóknarmenn kusu uppstillingarnefnd

Framsóknarflokkurinn í Norðvesturkjördæmi hélt aukakjördæmisþing i gær í félagsheimilinu Tjarnarlundi í Saurbæ. Þar lýsti Ásmundur Einar Daðason annar þingmaður flokksins í kjördæminu því yfir að hann muni ekki gefa kost á sér á lista fyrir komandi kosningar. Nokkru fyrr hafði Jóhanna María Sigmundsdóttir fjórði þingmaður flokksins gefið hið sama út. Á fundinum lýsti hins vegar Gunnar…Lesa meira

true

Endurnýja netkerfi á sunnanverðu Snæfellsnesi

Á dögunum endurnýjuðu Internetþjónustan Hringiðan, Borgarbyggð og Snæfellsbær samkomulag frá 2006 um internetþjónustu á sunnanverðu Snæfellsnesi. Svæðið sem um ræðir nær frá Hellnum að Hítará. „Sem hluti af samkomulaginu mun Hringiðan taka að fullu niður eldra netkerfi og skipta því út fyrir nýrra og betra. Fjarskiptastaðurinn á Kolviðarnesi verður ljósleiðaravæddur sem mun hámarka eins og…Lesa meira

true

Borgfirðingar í þriðja sæti í púttkeppni FÁÍA

Baráttan var æsispennandi um fyrsta sætið á Íslandsmóti Félags áhugafólks um íþróttir aldraðra (FÁÍA) í pútti 60 ára og eldri. Mótið fór fram í Reykjanesbæ síðastliðinn fimmtudag. Fjórir keppendur voru þar jafnir í karlaflokki á 66 höggum og réðust úrslit í bráðabana. Eftir bráðabanann lá fyrir að Aðalbergur Þórarinsson hafði tryggt sér fyrsta sætið, Hafsteinn…Lesa meira