Fréttir

true

Nýnemadagar standa yfir á Bifröst

Nýnemadagar eru haldnir á Háskólanum á Bifröst í dag, fimmtudaginn 18. ágúst og á morgun föstudag. Verður farið yfir það helsta sem nýnemar þurfa að vita um fyrirkomulag námsins. Dagskráin hófst með formlegri skólasetningu og bjölluhringingu klukkan 13:00 í dag. Kennsla hefst síðan mánudaginn 22. ágúst. Innritun í nám stendur enn yfir en Vilhjálmur Egilsson rektor telur…Lesa meira

true

Flóamarkaður og skákmót á Reykhólum

Blásið verður til flóamarkaðar í húsnæði Báta- og hlunnindasýningarinnar á Reykhólum laugardaginn 20. ágúst. Markaðurinn mun hefjast kl. 11 og lýkur kl. 15. Áhugasamir geta pantað söluborð í síma 894-1011 eða á info@reykholar.is fyrir föstudag. Eins og Skessuhorn hefur áður greint frá verður Minningarmót Birnu Norðdahl skákmeistara haldið á Reykhólum þennan sama dag. Margir af fremstu…Lesa meira

true

Héldu Bikarmót Vesturlands í Borgarnesi

Bikarmót Vesturlands í hestaíþróttum fór fram síðasliðinn laugardag í Borgarnesi. Að þessu sinni var það hestamannafélagið Skugga í Borgarnesi sem hélt mótið, en hestamannafélögin á Vesturlandi hafa skipst á um að halda það. Rúmlega 120 skráningar bárust og varð þetta fyrir vikið ansi langur dagur, en mótið byrjaði klukkan níu um morguninn og var ekki…Lesa meira

true

Margir smáir á ferð í umferðinni

Þegar skólar hefja starfsemi sína á haustin verður mikil breyting í umferðinni. Hún þyngist til muna þegar skólabörn og nemar streyma í og úr skóla og allir koma til vinnu eftir sumarfrí. Í haust hefja um 4.200 börn skólagöngu sína í fyrsta sinn og þúsundir annarra barna og ungmenna eru á ferð. Mikilvægt er að…Lesa meira

true

Erlendir ferðamenn 31% fleiri í júlí en í fyrra

Í júlí síðastliðnum nam erlend greiðslukortavelta 31,4 milljörðum króna samanborið við 24 milljarða í sama mánuði 2015. Um er að ræða ríflega 31% aukningu milli ára. Í samantekt Rannsóknamiðstöðvar verslunarinnar kemur fram að kortavelta erlendra ferðamanna í júlí var sú mesta í einum mánuði frá upphafi en fyrra met var sett í júní síðastliðnum þegar…Lesa meira

true

Skagakonur komnar í baráttuna um að halda sæti sinu í deildinni

Í gær fór fram leikur Selfoss og ÍA á Selfossvelli í tólftu umferð Pepsi deildar kvenna. Leikurinn var býsna mikilvægur fyrir Skagakonur en fyrir leikinn voru þær á botni deildarinnar með fimm stig. Leikurinn var nær síðasti séns ÍA að komast í baráttuna um að halda sæti sínu í deildinni en stígandi hefur verið í…Lesa meira

true

Læknirinn sem á met fyrir flest lög í undankeppni Eurovision

Sveinn Rúnar Sigurðsson er fjölhæfur maður með mörg járn í eldinum. Sem læknir, frumkvöðull á sviði hugbúnaðar í þágu lækna og síðast en ekki síst tónlistarmaður. Sveinn Rúnar er lagahöfundur sem hefur samið lög fyrir margar þekktustu poppstjörnur landsins ásamt því að eiga það met að vera sá lagahöfundur sem hefur átt flest lög í…Lesa meira

true

Yrsa AK blessuð og síðan gefið nafn

Síðastliðinn laugardag blessaði séra Eðvarð Ingólfsson sóknarprestur á Akranesi skútu eina í Akraneshöfn og gaf henni síðan nafn. Blessun prests og nafngift tíðkast með stærri skip hér við land en telst til undantekninga með smærri fley. Um er að ræða seglskútuna Yrsu AK – 1702. Skútan er af gerðinni TUR 84 og er í eigu…Lesa meira

true

Laun sveitarstjórnarmanna undir viðmiðum SÍS

Á fundi sveitarstjórnar Dalabyggðar þriðjudaginn 16. ágúst síðastliðinn voru til umræðu viðmiðunarlaun sveitarstjórnarmanna. Í stefnumörkun Sambands íslenskra sveitarfélaga fyrir árin 2014-2018 er kveðið á um að sambandið skuli gera úttekt á kjörum og starfsumhverfi kjörinna fulltrúa og ástæðum mikillar endurnýjunar í þeirra röðum. Á grundvelli þeirra upplýsinga verði síðan gerðar tillögur að úrbótum og leiðbeinandi…Lesa meira

true

Hægt að sækja um styrki úr Fræðslu- og verkefnasjóði UMFÍ

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki í Fræðslu- og verkefnasjóð Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) og er frestur til að skila inn umsóknum til 1. október næstkomandi. „Fræðslu- og verkefnasjóður Ungmennafélags Íslands (UMFÍ) veitir meðal annars styrki til félags- og íþróttastarfs ungmennafélagshreyfingarinnar með því að auka menntun og þekkingu félaga innan hreyfingarinnar á íþróttagreinum, þjálfun, í…Lesa meira