Fréttir

true

Ólöf Margrét er nýr prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli

Ólöf Margrét Snorradóttir hefur verið kjörin nýr prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli og mun hún ganga þar til liðs við Þráin Haraldsson og Þóru Björg Sigurðardóttur um mánaðarmótin október-nóvembar. Ólöf fæddist á Ísafirði árið 1971 og er hún önnur í röð þriggja systkina. Ólöf bjó fyrstu þrjú árin á bænum Neðri-Breiðadal í Önundarfirði, þar sem…Lesa meira

true

Listamenn byggja sér hús í Hvalfjarðarsveit

Nýtt hús er nú að rísa við Bjarkarás í Leirársveit en þar eru hjónin Einar Thorberg Guðmundsson og Laura Diamond að reisa sér nýtt heimili. Blaðamaður Skessuhorns kíkti til þeirra fyrir helgi og fékk að forvitnast um nýbúana í Hvalfjarðarsveit. Iðnaðarmenn voru á fullu að vinna í húsinu en Einar og Laura buðu blaðamanni að…Lesa meira

true

Styrkja hringrásarhagkerfi í Borgarbyggð

Borgarbyggð og Umhverfis- og auðlindaráðuneytið hafa gert með sér samninga um styrkveitingar til annars vegar bættrar úrgangsþjónustu við frístundahús og hins vegar söfnunar brotajárns í dreifbýli í Borgarbyggð. Styrkurinn til úrgangsþjónustu nemur fjórum milljónum króna og styrkur til söfnunar brotajárns sexhundruð þúsund krónum. Ráðuneytið auglýsti 18. mars eftir umsóknum lögaðila um styrki til verkefna sem…Lesa meira

true

Samþykktu gagntilboð í fyrrum ráðhús

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar síðastliðinn fimmtudag var lagt fram gagntilboð Steðja fjárfestinga ehf. í fasteign sveitarfélagsins við Borgarbraut 14 í Borgarnesi, gamla Ráðhúsið. Sveitarstjórn staðfesti gagntilboðið og var sveitarstjóra falið að ganga til kaupsamnings á grundvelli framlagðs tilboðs.Lesa meira

true

Akraneskaupstaður kominn á Dalbrautina

Starfsmenn Akraneskaupstaðar tóku vel á móti blaðamanni Skessuhorns þegar hann kíkti í morgun á nýja vinnuaðstöðu þeirra á Dalbraut 4 á Akranesi og fékk að smella nokkrum myndum af þeim. Ekki var annað að sjá en að þeim líði vel á nýja staðnum og ekki hægt að segja annað en að það sé gott andrúmsloft…Lesa meira

true

Fundur um svefn og svefnvenjur

Á vef Snæfellsbæjar segir frá áhugaverðum fjarfundi um svefn og svefnvenjur sem haldinn verður á morgun, miðvikudaginn 15. september kl. 17:30. Þar segir að á fundinum verði fjallað um mikilvægi svefns fyrir heilsu, líðan og árangur. Fyrirlesari er dr. Erla Björnsdóttir, sálfræðingur en Erla hefur sérhæft sig í rannsóknum og meðferð á svefnleysi og er…Lesa meira

true

Slakað verulega á sóttvarnaráðstöfunum

Heilbrigðisráðherra kynnti nýjar tilslakanir á sóttvarnarráðstöfunum á fundi ríkisstjórnar í morgun, en þær eru í samræmi við tillögur sóttvarnarlæknis. Reglugerð þessa efnis tekur gildi á morgun, 15. september, og gildir til 6. október. Almennar fjöldatakmarkanir verða auknar í 500 manns og á hraðprófsviðburðum verður unnt að hafa allt að 1.500 manns. Á hraðprófsviðburðum verður nú…Lesa meira

true

Frisbígolfvöllur í Stykkishólmi

Frisbígolfvöllur var settur upp í Stykkishólmi í lok júlí í sumar og hefur hann notið töluverðra vinsælda. Í síðustu viku kom sérfræðingur í þessum efnum til að reka smiðshöggið á völlinn, klára merkingar á holum og setja upp skilti til að kynna brautirnar fyrir þeim sem eru að spila frisbígolfið. Auk þess hélt hann lítið…Lesa meira

true

Smiðjuloftið fagnaði afmæli

Smiðjuloftið fagnaði þriggja ára starfsafmæli með veglegri afmælisveislu dagana 2.-5. september. „Á dagskrá voru fjölbreyttir viðburðir fyrir börn sem fullorðna með áherslu á listir og hreyfingu, sem er einmitt einkenni starfsins á Smiðjuloftinu,“ segir í tilkynningu frá Valgerði Jónsdóttur. Á föstudagskvöldinu voru haldnir tónleikar tileinkaðir tónlist frá ýmsum löndum, aðallega þjóðlagatónlist. Þar komu fram Rut…Lesa meira

true

Stykkishólmsbær auglýsir eftir styrkumsóknum

Bæjarstjórn Stykkishólmsbæjar auglýsir á vef sínum eftir styrkumsóknum frá einstaklingum og fyrirtækjum í samræmi við reglur Stykkishólmsbæjar um styrkveitingar. Í auglýsingunni segir: „Markmiðið með styrkjum bæjarstjórnar Stykkishólmsbæjar er að styðja við sjálfsprottið starf, starfsemi frjálsra félagasamtaka og framtak einstaklinga sem stuðla að farsælli þróun samfélagsins, menningarlífs, lífsgæðum og fjölbreytilegu mannlífi og öflugu íþrótta- og æskulýðsstarfi.…Lesa meira