Fréttir

true

Ísland ætti að vera matvælaland

Í Skessuhorni sem kom út í dag er rætt við Ragnheiði I Þórarinsdóttur rektor Landbúnaðarháskóla Íslands. Þar kemur m.a. fram að nemendafjöldi skólans hefur tvöfaldast á skömmum tíma en þar er boðið upp á þrjár fagdeildir; Ræktun og fæðu, Náttúru og skóg og Skipulag og hönnun. „Ég hef fulla trú á að Íslendingar eigi inni…Lesa meira

true

FISK kaupir 60% hlut í fjölskylduútgerð í Ólafsvík

Gengið hefur verið frá kaupum FISK Seafood ehf., í gegnum dótturfélag sitt, á 60% eignarhlut í útgerðarfélaginu Steinunni hf. í Ólafsvík sem gert hefur út vertíðarbátinn Steinunni SH-167 í áratugi. Fimm bræður og fjölskyldur þeirra hafa rekið félagið í u.þ.b. hálfa öld. Eftir kaupin munu tveir bræðranna, þeir Brynjar og Ægir Kristmundssynir, eiga ásamt fjölskyldum…Lesa meira

true

Vistvænir iðngarðar í undirbúningi á Akranesi

„Okkar markmið og sýn er að Flóahverfið á Akranesi verði öðrum til fyrirmyndar hvað varðar skipulags- og umhverfismál en jafnframt sé svæðið skilgreint sem vistvænn iðngarður þar sem margháttuð þjónusta og framleiðsla geti átt sér stað innan svæðisins auk samstarfs milli fyrirtækja innan svæðisins. Þannig sjáum við Akranes verða að eftirsóttustu áfangastöðunum á Íslandi fyrir…Lesa meira

true

Metnaðarfull áform um umbreytingu Grundaskóla

Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstjóri á Akranesi, greinir á Facebook síðu sinni frá kynningarfundi í Teams um endurbætur á skólahúsnæði og framtíðar uppbyggingu í Grundaskóla en fundurinn var síðastliðið mánudagskvöld. Sævar segir á síðu sinni að glæsileg frumhönnun sé tilbúin og hvetur hann alla til að kynna sér þær hugmyndir sem er ætlað að skila stórglæsilegum…Lesa meira

true

Gítardúett á Landsnámssetri

Gunnar Ringsted og Reynir Hauksson leiða saman hesta sína á gítardúett tónleikum á Sögulofti Landnámssetursins í Borgarnesi föstudaginn 10. september kl. 20. Þeir munu renna í gegnum ólíkan stíl tónlistar, á borð við jazz, blús, flamenco, rokk og íslensk þjóðlög með lögum frá Django Reinhardt, Mezzoforte, The Beatles og mörgum fleirum. Gunnar og Reynir lofa…Lesa meira

true

Íþróttamót Dreyra fór fram á Æðarodda

Opið íþróttamót Hestamannafélagsins Dreyra var haldið á Æðarodda helgina 28. og 29. ágúst. Skráningar voru rúmlega 70 og þátttaka í mótinu mjög góð. Fyrir þátttakendur sem komu langt að var hesthúsapláss og hey í boði. Í tilkynningu frá mótanefnd Dreyra vill félagið þakka Íslandsbanka, Landsbankanum og Kallabakarí fyrir stuðninginn og öllum keppendum og sjálfboðaliðum fyrir…Lesa meira

true

Meistarakeppni Keilusambandsins verður á Akranesi í kvöld

Í kvöld fer fram Meistarakeppni Keilusambands Íslands og að þessu sinni verður leikið í Keilusalnum á Akranesi. Sem fyrr eru það Íslandsmeistarar liða og Bikarmeistarar liða sem mætast í þessari fyrstu keppni komandi tímabils. Fyrst fer fram kvennaleikurinn en þar eigast við Íslandsmeistarar KFR-Valkyrjur við lið ÍR-Buff en KFR-Valkyrjur urðu bæði Íslands- og Bikarmeistarar 2021…Lesa meira

true

Dregur úr kynbundnum launamun

Í rannsókn sem Hagstofa Íslands framkvæmdi fyrir forsætisráðuneytið kemur fram að launamunur karla og kvenna hér á landi hefur dregist saman frá 2008 til 2020 og á það jafnt við um atvinnutekjur, óleiðréttan og leiðréttan launamun. Kynbundin skipting vinnumarkaðar í störf og atvinnugreinar skýrir að miklu leyti þann launamun sem er til staðar en áhrif…Lesa meira

true

Fjölmiðlanefnd birtir úthlutun um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla

Úthlutunarnefnd, sem mennta- og menningarmálaráðherra skipaði um úthlutun rekstrarstuðnings til einkarekinna fjölmiðla árið 2021, hefur lokið störfum í ár. Fjölmiðlanefnd sá um umsýslu umsókna og veitti úthlutunarnefnd sérfræðiaðstoð vegna þeirra. Í tilkynningu frá nefndinni kemur fram að alls hafi 23 umsóknir borist um rekstrarstuðning til einkarekinna fjölmiðla og samtals hafi verið sótt um rekstrarstuðning að…Lesa meira

true

Kjördæmafundur Norðvesturkjördæmis á Rás 2 síðdegis

Síðdegis í dag fer fram kjördæmafundur í Norðvesturkjördæmi á Rás 2 Ríkisútvarpsins. Hefst fundurinn kl. 17:30. Þar munu forystumenn þeirra stjórnmálaflokka sem bjóða fram í kjördæminu verða spurðir spjörunum úr um áherslur flokkanna í komandi alþingiskosningum. Fundurinn er haldinn í Borgarnesi og umsjónarmenn eru þeir Arnar Páll Hauksson og Anna Kristín Jónsdóttir.Lesa meira