Fréttir

true

Vanrækslugjald hækkað

Samkvæmt nýrri reglugerð sem tók gildi 1. maí síðastliðinn hækkar grunnfjárhæð vanrækslugjalds vegna óskoðaðra ökutækja. Gjaldið var áður 15.000 krónur fyrir alla flokka ökutækja en hækkar í 20.000 kr. Þá hækkar gjaldið vegna fólksfluningabíla fyrir níu eða fleiri farþega, vöruflutningabíla eða aftanívagna yfir 3,5 tonn í 40.000 kr. Þá hefur einnig tekið gildi ný regla;…Lesa meira

true

Seldi hest og keypti eldhúsinnréttingu

Síðasti glugginn var festur í kvist á gamla Ferjukotsbænum á bökkum Hvítár í Borgarfirði í liðinni viku og markar það nokkurn veginn endalok níu ára framkvæmdatímabils við húsið. „Nú sér fyrir endann á þessu loksins,“ segir Heiða Dís Fjeldsted húsfreyja í Ferjukoti þegar blaðamaður kíkti við í sveitinni á dögunum. Heiða Dís býr í gamla…Lesa meira

true

Víkingur tapaði gegn Kórdrengjum – Guðjón áfram þjálfari

Víkingur Ólafsvík tapaði sínum 16 leik í sumar í Lengjudeild karla í knattspyrnu þegar liðið lék gegn liði Kórdrengja á Domusnova vellinum í Breiðholti í gærkvöldi. Kórdrengir hafa komið á óvart í Lengjudeildinni í ár og eru nú í þriðja sæti, einu stigi á eftir Eyjamönnum sem eiga þó tvo frestaða leiki til góða. Munurinn…Lesa meira

true

Síðustu kýrnar í dalnum

Bændur í Mófellsstaðakoti í Skorradal, hjónin Jón Eiríkur Einarsson og Fjóla Benediktsson, hafa mjólkað kýrnar sínar í síðasta skipti og eru hætt mjólkurframleiðslu. Kvótinn fer á markað, hluti kúnna var seldur til lífs. Mjólkurframleiðsla er því ekki stunduð lengur í Skorradal, en búin sem þar áður lögðu niður mjólkurframleiðslu voru á Grund og Mófellsstöðum. Í…Lesa meira

true

Að afloknu kassabílarallýi

Stærsta kassabílarallý ársins fór fram á hafnarsvæðinu á Akranesi síðastliðinn laugardag. Skemmtileg stemning skapaðist þegar fjölmargir keppendur og kassabílasmiðir komu saman og háðu drengilega keppni. Sjá nánar myndasyrpu í Skessuhorni vikunnar sem kom út í dag.Lesa meira

true

Rætt við oddvita Sjálfstæðismanna fyrir kosningarnar í haust

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins er nýr oddviti flokksins í Norðvesturkjördæmi. Þórdís Kolbrún er fædd og uppalin Skagakona og var ung farin að hafa afskipti af stjórnmálum og fljótt komin í ábyrgðarhlutverk innan Sjálfstæðisflokksins. „Ætli aðdragandinn hafi ekki verið ómældur áhugi minn á pólitík, fólki og samfélaginu,“ segir Þórdís…Lesa meira

true

Fækkar í einangrun en fjölgar í sóttkví

Samkvæmt nýjum upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi eru nú 25 í einangrun í landshlutanum með Covid-19 og 42 í sóttkví. Af þeim sem eru í einangrun er 21 á Akranesi, tveir í Stykkishólmi, einn í Ólafsvík og einn í Borgarnesi. Í sóttkví eru nú alls 42 í landshlutanum; 27 á Akranesi, 14 í Borgarnesi og…Lesa meira

true

Eyjólfur segir góðar samgöngur vera forsendu byggðar í landinu

Eyjólfur Ármannsson skipar fyrsta sæti á lista Flokks fólksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar. Eyjólfur er fæddur í Vestmannaeyjum, þriðji í röð fjögurra systkina. Foreldrar hans eru Guðjón Ármann Eyjólfsson, sjóliðsforingi og skólastjóri Stýrimannaskólans í Reykjavík til margra ára, og Anika Jóna Ragnarsdóttir, húsmóðir og sjúkraliði. Fjölskyldan flutti frá Eyjum í eldgosinu, þegar Eyjólfur var á…Lesa meira

true

UltraForm stöð opnuð á Akranesi um miðjan mánuðinn

UltraForm líkamsræktarstöð verður opnuð á Akranesi miðvikudaginn 15. september næstkomandi. „Við erum fyrir með eina stöð í Grafarholti þar sem hátt í hundrað manns æfa,“ segir Sigurjón Erni Sturluson, eigandi UltraForm í samtali við Skessuhorn. UltraForm er hóptímastöð þar sem æfingarnar eru settar upp með þeim hætti að allir geti aðlagað þær að sinni getu.…Lesa meira

true

Rafmagnslaus í einn dag í næstu viku

Veitur hafa tilkynnt um rafmagnsleysi einn dag í næstu viku við nokkrar götur á Akranesi. Vegna viðgerðar verður rafmagn tekið af Garðabraut, Höfðabraut, Skarðsbraut 2 og 4 og Jaðarsbraut 27-41 miðvikudaginn 8. september frá klukkan 09:00 til klukkan 19:00. Nánar má lesa um þetta á veitur.is þar sem fólki er bent á að slökkva á…Lesa meira