Fréttir

true

Pollur bílaþvottur opnaði í morgun á Akranesi

Átján ára Skagamaður, Alexander Dagur Helgason, opnaði í morgun fyrirtæki sem nefnist Pollur bílaþvottur ehf. Eins og nafnið gefur til kynna mun hann taka bíla í þrif og bón. Starfsemin er til húsa í miðjubilinu á iðnaðarhúsi við Þjóðbraut 13A, sem er á bakvið lögreglustöð bæjarins. Hjá Polli bílaþvotti verður boðið upp á þrenns konar…Lesa meira

true

Rúllur skreyttar í Lundarreykjadal

Efnt var til rúlluskreytingakeppni í Lundarreykjadal í vikunni sem leið og var sigurvegari krýndur í vikulok. Krakkarnir í Arnþórsholti unnu að þessu sinni og mátti sjá nánast aðra hverja rúllu skreytta allskonar teikningum á bænum. Er þetta í annað skiptið sem þessi keppni fer fram. „Við vorum fyrst með þetta í hitteðfyrra og þá var…Lesa meira

true

Eftirlitsiðnaðurinn með allar klær úti

Eiganda strandveiðibáts barst nýverið bréf frá veiðieftirlitssviði Fiskistofu. Þar er tilkynnt að við veiðieftirlit Fiskistofu frá Ólafsvík hafi sjómaðurinn verið staðinn að brottkasti. Tveimur þorskum hafi verið hent í sjóinn eftir að þeir fengust á handfæri. Í bréfi til eiganda bátsins segir m.a: „Við eftirlit hafi verið notast við fjarstýrt flugfar með stafrænni myndavél. Flognir…Lesa meira

true

Framboðsfrestur ekki liðinn þótt utankjörfundar atkvæðagreiðsla er hafin

Dómsmálaráðuneytið vekur athygli á því að framboðsfrestur til Alþingis er til klukkan 12 á hádegi 10. september. Fyrir þann tíma liggur ekki fyrir hvaða stjórnmálasamtök bjóða fram lista í komandi kosningum til Alþingis, sem fara fram 25. september. „Vegna þessa liggja ekki frammi upplýsingar um framboðslista og listabókstafi, á þeim stöðum þar sem kosning utan…Lesa meira

true

Stykkishólmsbær veitti í fyrsta skipti umhverfisviðurkenningar

Eins og fram kom í síðasta Skessuhorni stóð umhverfisganga bæjarstjóra Stykkishólmsbæjar yfir dagana 9.-12. ágúst. Í göngunni að þessu sinni voru Umhverfisverðlaun Stykkishólmsbæjar veitt í fyrsta sinn. Síðastliðið miðvikudagskvöld var m.a. gengið um Sundabakkann og voru Árþóra Steinarsdóttir og Björn Benediktsson við Sundabakka 1 verðlaunuð fyrir snyrtilegan garð og umhverfi. Við hlið lóðar þeirra er…Lesa meira

true

Stækka friðlandið í Flatey á Breiðafirði

Í síðustu viku undirritaði Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra auglýsingu um stækkun friðlandsins í Flatey. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda fjölbreytt lífríki svæðisins og búsvæði fugla, sér í lagi varpsvæði fágætra fuglategunda eins og þórshana, kríu og lunda, auk þess að tryggja rannsóknir og vöktun á lífríki svæðisins. „Friðlandið hefur hátt vísinda- og fræðslugildi…Lesa meira

true

Í verkefninu GróLind er ástand gróðurs vaktað

Þriðja sumarið í röð vinnur hópur sérhæfðs starfsfólks á vegum Landgræðslunnar að mælingum og útlagningum vöktunarreita víðsvegar um landið. Mæling reitanna er hluti GróLindar, langtímaverkefnis sem hefur það meginmarkmið að vakta ástand gróður- og jarðvegsauðlindar Íslands. Þær upplýsingar sem fást úr vöktuninni eru dýrmætar þegar kemur að ákvarðanatöku um endurheimt vistkerfa og landnýtingu, segir í…Lesa meira

true

Stefnir á Ólympíuleikana í Los Angeles 2028

Sigursteinn Ásgeirsson frá Þorgautsstöðum í Hvítársíðu í Borgarfirði er ungur og efnilegur kúluvarpari sem stefnir á að ná langt í íþróttinni. Hann starfar á Garðyrkjustöðinni Laugalandi á Varmalandi, hlúir að agúrkuræktuninni sem þar fer fram og stundar sína íþrótt, kúluvarpið, samhliða því. Þrátt fyrir að vera Borgfirðingur og búsettur á Vesturlandi þá er hann skráður…Lesa meira

true

Strandveiðum lýkur í dag

„Að öllu óbreyttu verða strandveiðar bannaðar frá og með 19. ágúst 2021.“ Þannig hljóðar tilkynning sem Fiskitofa gaf út í gær. Í sumar hafa verið gefin út strandveiðileyfi til 688 báta. Líkur eru á að landaður afli í dag fylli þann kvóta sem heimilt er að veiða í strandveiðikerfinu við landið, en heildaraflinn að viðbættri…Lesa meira

true

Aðstoð vegna fótbrots við Glym

Björgunarsveitarfólk var nú laust eftir klukkan 15 í dag kallað út til aðstoðar sjúkraflutningafólki. Flytja þurfti fótbrotinn einstakling síðasta spölinn að bílastæðinu við fossinn Glym í Hvalfirði.Lesa meira