Fréttir

true

Líkur á að Legsteinahúsið standi

Útlit er fyrir að samningar hafi náðst milli aðila í Húsafellsmálinu á fundi frá því klukkan 8 í morgun. Verið er að skrifa upp samning sem líklega verður skrifað undir á næsta klukkutímanum og að Legsteinahúsið muni standa áfram. En öll tæki eru tilbúin á staðnum til að hefja niðurrif klukkan 2 í dag ef…Lesa meira

true

Kauptilboð í Fannahlíð samþykkt

Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar ákvað í vor að setja félagsheimilið Fannahlíð á söluskrá. Á fundi sveitarstjórnar á þriðjudaginn, 10. ágúst, var tilboði Magnúsar Jóns Engilberts Gunnarssonar í eignina, að upphæð 51 milljón króna, tekið til umræðu. Var tilboðið samþykkt og sveitarstjóra falið að undirrita og ganga frá söluferlinu.Lesa meira

true

Miðá er mikil perla í veiðinni

„Það er gaman að veiða fyrsta fiskinn,“ sagði Árni Rúnar Einarsson fjögurra ára sem var að veiða í fyrsta sinn á ævinni í ósi Hundadalsár í Dölum í síðustu viku. Áin rennur í Miðá. Góð bleikjuveiði hefur verið í Miðá og eru komnar á land um 400 bleikjur og 78 laxar hafa hafa veiðst vítt…Lesa meira

true

Skagamenn slógu FH út úr Mjólkurbikarnum

Skagamenn tóku í gærkvöldi á móti liði FH í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins á Akranesvelli í blíðskaparveðri: Smá gola, 14 stiga hiti og völlurinn í toppstandi. Skagamenn voru ekki að tvínóna við hlutina og komust yfir strax á sjöttu mínútu þegar Sindri Snær Magnússon vann boltann á miðjunni og sendi boltann á Ísak Snæ Þorvaldsson sem…Lesa meira

true

Mokveiði á strandveiðum og heimildir klárast því í næstu viku

Ekkert lát er á góðum aflabrögðum á strandveiðum, metafli dag eftir dag. Á fyrstu fimm dögum ágústsmánaðar er meðaltal dagsafla í þorski 278 tonn sem er 46% meiri veiði en var í júlí. Ef fram heldur sem horfir verða útgefnar veiðiheimildir til strandveiða uppurnar um miðja næstu viku. Þetta kemur fram á vef Landssambands smábátaeigenda.…Lesa meira

true

Sitja á fundi og leita sátta

Sveitarfélagið Borgarbyggð boðaði í gærkvöldi alla aðila í Húsafellsmálinu til fundar sem átti að hefjast klukkan 8 í morgun. Fundurinn var boðaður í því skyni að gera lokatilraun til að koma á sáttum í deilunni um Legsteinahús, sem að óbreyttu stendur til að rífa síðar í dag. Að sögn Lilju Bjargar Ágústsdóttur forseta sveitarstjórnar höfðu…Lesa meira

true

Upphaf ljósmyndunar á Akranesi

Fróðlegt getur verið að rifja upp fyrstu ljósmyndarana sem hér á landi störfuðu. Eftir marga þeirra liggja ljósmyndir sem varðveita ómetanlegar heimildir um löngu liðna tíma atvinnu- og mannlífs til sjávar og sveita. Þeir fönguðu augnablik síns tíma rétt eins og ljósmyndarar og fréttamenn gera í dag. Þannig má segja að fjölmiðlar; sjónvarp, dagblöð, héraðsfréttablöð…Lesa meira

true

Seinkun á endurnýjun gangstétta á Laugarbraut og Krókatúni

Frá því í byrjun júní hafa verið framkvæmdir í gangi á Laugarbraut á Akranesi. Akraneskaupstaður er að endurnýja gangstéttir við götuna og samhliða því eru Veitur að skipta um vatns- og raflagnir. Verktaki endurnýjunar gangstétta er Skóflan ehf og verktaki lagnavinnu er Þróttur ehf. Þessu verki er skipt í tvo áfanga: Laugarbraut, 1. áfangi, átti…Lesa meira

true

ÍATV sýnir leik ÍA og FH

Í dag klukkan 18 takast á í 16 liða úrslitum Mjólkurbikars karla lið ÍA og FH á Akranesvelli. Upphitun fyrir leikinn hefst á ÍATV klukkan 17:45 þar sem m.a. verður rifjaður upp úrslitaleikur þessara liða í bikarkeppninni árið 2003. Sérfræðingur í útsendingu verður Andri Júlíusson og Örn Arnarsson lýsir. „Við stefnum að veglegri þriggja-myndavéla útsendingu,“…Lesa meira

true

Nágrannar takast á á ritvellinum

Nágrannar á Húsafelli takast þessa dagana harkalega á á ritvellinum. Í kjölfar ákvörðunar Páls Guðmundssonar listamanns um að hefja niðurrif umdeilds legsteinaskála og yfirlýsingar þar um síðastliðinn sunnudag, svaraði Sæmundur Ásgeirsson í Gamla bænum með yfirlýsingu sem hann birti í gær á fréttamiðlinum dv.is Þar útskýrir Sæmundur málið frá sinni hlið. Í dag birti Páll…Lesa meira