Fréttir

true

Sylvía keppir á Norðurlandamótinu í grjótglímu

Sylvía Þórðardóttir klifurkona úr ÍA, keppir á Norðurlandamótinu í grjótglímu sem fram fer um næstu helgi, 6. og 7. ágúst í Kaupmannahöfn í Danmörku. Sylvía keppir í B-flokki stúlkna en þetta er í annað sinn sem keppandi frá ÍA tekur þátt á Norðurlandamóti en Brimrún Eir Óðinsdóttir tók þátt á Norðurlandamótinu í línuklifri fyrir nokkrum…Lesa meira

true

Hjáleið norður fyrir Akrafjall í dag

Til klukkan 17 í dag verður unnið við malbikun nokkurra útskota við Akrafjall, milli Hvalfjarðarganga og Melahverfis í Hvalfjarðarsveit. Veginum var því lokað til suðurs og er hjáleið norður fyrir Akrafjall um Akrafjallsveg. Umferð til norðurs verður fram hjá framkvæmdasvæðinu.Lesa meira

true

Við eigum nóg inni segir fyrirliðinn fyrir leik kvöldsins

Stelpurnar í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu hjá ÍA taka á móti stöllum sínum í HK á Akranesvelli í kvöld. Leikurinn er í 13. umferð Lengjudeildarinnar en deildin er afar spennandi þetta sumarið og er í raun hver leikur sem úrslitaleikur. Skagakonur gerðu jafntefli 1-1 gegn toppliði KR í síðustu umferð en HK tapaði fyrir Aftureldingu…Lesa meira

true

Staða Skagamanna að verða vonlítil eftir tapleik gærdagsins

Skagamenn mættu Stjörnunni á Samsungvellinum í gærkveldi í miklum botnbaráttuslag. Þeir gulklæddu urðu hreinlega að vinna leikinn til þess að eiga von um að rífa sig upp úr fallsæti í deildinni. Stjörnumenn byrjuðu leikinn betur og fengu draumabyrjun þegar Eggert Aron Guðmundsson kom þeim yfir strax á fimmtu mínútu leiksins. Þorsteinn Már Ragnarsson átti sendingu…Lesa meira

true

Plan B í Borgarnesi hefst í dag

Samtímamyndlistarhátíðin Plan B verður haldin sjötta árið í röð í Borgarnesi dagana 5. til 8. ágúst. Hátíðin hefur frá árinu 2016 fest sig í sessi sem þekkt stærð í íslensku listalífi og vex ásmegin ár frá ári. Sem dæmi, þá hefur hátíðin fengið tvær tilnefningar til Eyrarrósarinnar, árin 2019 og 2020. Eyrarrósin er viðurkenning sem…Lesa meira

true

Héldu golfmót á Húsafelli

Annað golfmót sumarsins á Húsafellsvelli var haldið á laugardaginn um verslunarmannahelgina. Frábært veður var í Húsafelli á mótsdag og hiti um 22 gráðurnar í logni.  Fullbókað var á golfmótið og komust færri að enn vildu. 48 keppendur tóku þátt og voru þeir hæstánægðir með daginn og aðstæður á vellinum sem hefur sjaldan verið í betra…Lesa meira

true

Skjaldbaka fannst í fjörunni við Kalmansvík

Þau ráku heldur betur upp stór augu krakkarnir sem voru að leik í fjörunni við tjaldstæðin í Kalmansvík á Akranesi síðdegis í dag. Systkinin Sunna Margrét, Salka Kristín og Magnús auk systkinanna Eyjólfs Arnar, Sveins Óla og Grétu Bjargar voru að leik í fjörunni þegar þau sáu dýrið. Skjaldbakan er af gerðinni rauðeyra, en sú…Lesa meira

true

Búrhval rak á land í Staðarsveit

Á fjörunni við Ytri Tungu í Staðarsveit liggur nú hræ af búrhval sem þar rak á land 25. júlí síðastliðinn. Um er að ræða rúmlega tólf metra langan tarf sem að líkindum hefur verið löngu dauður áður en hann rak á fjörur Staðsveitunga. Lyktin af hræinu bendir í það minnsta til að skepnan sé ekki…Lesa meira

true

38 í einangrun með Covid-19 á Vesturlandi

Af 3.837 sýnum sem tekin voru innanlands í gær vegna Covid-19 reyndust 116 með covid-smit. 71 þeirra sem greindust með smit í gær er fullbólusettur en 43 óbólusettir. Rúmlega þriðjungur, eða 36%, þeirra sem greindust með covid í gær voru í sóttkví. Samkvæmt nýjustu tölum frá Almannavörnum eru 1.329 í einangrun vegna covid-smits og 1.941 í…Lesa meira

true

Huppa fær afar góðar viðtökur

Ísbúð Huppu var opnuð í húsnæði Food Station við Brúartorg í Borgarnesi síðastliðinn miðvikudag. Óhætt er að segja að viðtökurnar hafi verið góðar því biðröð hefur verið út úr dyrum nánast síðan. Ísbúðin er með sama sniði og útliti og aðrar ísbúðir Huppu á landinu en fyrsta ísbúðin var opnuð á Selfossi 2013, fimm eru …Lesa meira