Fréttir

true

Sækja slasaðan göngumann við Glym

Þrjár björgunarsveitir Landsbjargar af sunnanverðu Vesturlandi; Björgunarfélag Akraness, Björgunarsveitin Brák og Björgunarsveitin Ok, vinna nú saman að björgun slasaðs ferðamanns við Botnsá í Hvalfirði. Hann mun vera slasaður á fæti. Útkall barst laust eftir klukkan 14 í dag og var hinn slasaði staddur ofarlega við ána, uppundir fossinum Glym. Að sögn fulltrúa í svæðisstjórn gengur…Lesa meira

true

Spáð er snörpum hviðum við fjöll víða á Vesturlandi

Eftir miðjan daginn hvessir á norðanverðu Snæfellsnesi, einkum vestan Grundarfjarðar. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að hviður geti orðið allt að 25-30 m/s fram eftir kvöldi.  Einnig er hætt við hviðum við Hafnarfjall um tíma í kvöld. „Þá er rétt að vara við mjög hvössum vindi á Kaldadal þvert á veg með grjót- og sandfoki…Lesa meira

true

Konan fannst heil á húfi

Víðtæk leit hófst í gærkvöldi að ungri konu af höfuðborgarsvæðinu sem saknað hafði verið frá því á föstudag. Meðal annarra tóku björgunarsveitir af sunnanverðu Vesturlandi þátt í leitinni. Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar fann síðan konuna heila á húfi í morgun. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill koma á framfæri þökkum til allra sem þátt tóku í leitinni.Lesa meira

true

Stund milli stríða hjá dýralækninum

Gunnar Guðnason sendi ritstjórn Skessuhorn línu þar sem hann biður fyrir kveðju til Gunnars Gauta Gunnarssonar dýralæknis í Borgarnesi og bestu þakkir fyrir skemmtilega gönguferð á fjallið Baulu í einmunablíðu nýverið. „Þegar á tindinn kom dró nafni minn upp Skessuhornið og las til að öðlast hinn sanna innri frið,“ skrifar Gunnar Guðnason sem segir dýralækninn…Lesa meira

true

Afar óvarlega farið með eld í þurrum skóginum

„Ef fólk hagar sér svona, er ekki spurning um hvort, heldur hvenær Skorradalurinn brennur til kaldra kola,“ segir maður sem á rætur í Skorradal í Borgarfirði. Hann áframsendi jafnframt mynd til ritstjórnar sem sett var á Facebook síðu eiganda sumarhúss í dalnum fyrr í dag. Myndin er líklega tekin í landi Stálpastaða en þar hafa…Lesa meira

true

Ein kartafla dugar í matinn

„Ég hef aldrei tekið upp svona stóra kartöflu áður. Reyndar á ég eftir að taka kartöflugrasið upp svo ég veit ekki hvað á eftir að leynast undir því þegar upp verður staðið. Allavega þarf ég ekki að taka meira upp í dag. Þessi dugar í matinn í kvöld,“ segir Guðrún Sigurjónsdóttir bóndi á Glitstöðum í…Lesa meira

true

Ólína býður sig fram í forystusæti Samfylkingarinnar

„Fólkið fyrst – eitt samfélag fyrir alla,“ eru baráttuorð Ólínu Kjerúlf Þorvarðardóttur alþingismanns Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi, sem nú hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista flokksins fyrir þingkosningarnar 29. október næstkomandi. „Ég hef afráðið að gefa áfram kost á mér til þess að leiða Samfylkinguna í Norðvesturkjördæmi í næstu kosningum.…Lesa meira

true

Fjórir sækjast eftir að leiða lista VG í Norðvesturkjördæmi

Ellefu sendu kjörstjórn Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi yfirlýsingu um framboð til forvals flokksins fyrir komandi alþingiskosningar; fjórar konur og sjö karlar. Flokkurinn á nú einn þingmann í kjördæminu, Lilju Rafney Magnúsdóttur á Suðureyri. Lilja Rafney er í hópi þeirra sem gefa kost á sér til forystu, en auk hennar sækjast eftir fyrsta sætinu þeir…Lesa meira

true

Góð berjaspretta í sumar

Útlit er fyrir að um allt vestanvert landið verði berjaspretta með betra móti í sumar. Rekja má það til þess að voraði snemma og sumarið hefur verið milt og venju fremur sólríkt. Aðalbláber og krækiber eru víða nú þegar vel sprottin og tínsluhæf en bláber virðast eiga nokkra daga eða viku í að ná jöfnum…Lesa meira

true

Amerískir víkingar taka upp myndefni hér á landi

Í gær kom til landsins tíu manna hópur víkinga frá Massachusetts í Bandaríkjunum. Þetta eru meðlimir í Hurstwick víkingaklúbbnum sem leggur stund á lestur Íslendingasagna ásamt því að æfa bardagatækni víkingaaldar. Forsprakki hópsins er dr. William R. Short. Hingað til lands er hópurinn kominn til að fara út í Drangey og kvikmynda 82. kafla Grettis-sögu,…Lesa meira