Fréttir

true

Grátlegt jafntefli hjá ÍA gegn KR

Skagastúlkur tóku á móti toppliði KR í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu á Akranesvelli í gærkvöldi. Frábærar aðstæður voru á Akranesi í gær, logn og milt veður og völlurinn í toppstandi. Það var ljóst strax í byrjun  að Skagastúlkur voru mættar til að berjast fyrir stigunum og mættu grimmar til leiks. Jafnræði var með liðunum í…Lesa meira

true

Framkvæmdir á Sjúkrahúsinu á Akranesi ganga vel

Framkvæmdir við endurnýjun A og B deilda í C-álmu sjúkrahússins á Akranesi ganga vel. Voru þær fyrir margt löngu orðnar tímabærar. Búið er að hreinsa allt út úr húsnæðinu; innréttingar, gólfefni, milliveggi, raf- og boðlagnir og fleira auk þess sem sögun og múrbroti er lokið. Í vikunni var lokið við að flota öll gólf.  Uppbygging…Lesa meira

true

Göngin lokuð til klukkan 10

Á Twitter síðu Vegagerðarinnar var klukkan 6 í morgun sett inn tilkynning þess efnis að næturlokun Hvalfjarðarganganna lengist til klukkan 10 í dag. Göngunum var lokað vegna malbikunarframkvæmda sunnan við þau klukkan 22 í gærkvöldi og átti að opna klukkan sjö í morgun, en það frestast um þrjá tíma.Lesa meira

true

Á góðri en blautri stund í Grundarfirði

Bæjarhátíðin Á góðri stund í Grundarfirði fór fram um helgina í skugga fjölgandi smita í samfélaginu. Einhverjir viðburðir féllu niður eins og ball með Páli Óskari sem átti að fara fram á föstudagskvöldinu. Þó var nóg um að vera og gátu allir fundið sér eitthvað til dundurs. Veðrið var nokkuð blautt en þó lét sólin…Lesa meira

true

Áhugamannamót Íslands var á Æðarodda um helgina

Hestamannafélagið Dreyri á Akranesi sá um að halda Áhugamannamót Íslands 2021 á félagsvæði sínu, Æðarodda, á Akranesi um helgina. Mótið var fyrst haldið árið 2015 og hefur ávallt þar til nú verið á Hellu. Allir knapar sem hafa náð 22 ára aldri á árinu og hafa ekki keppt í meistaraflokki á síðastliðnum tveimur árum hafa…Lesa meira

true

Göngin voru ekki lokuð í gær – en verða það í kvöld!

Vegagerðin hafði boðað að Hvalfjarðargöng yrðu lokuð í gærkvöldi og nótt vegna malbikunarframkvæmda sunnan við göngin. Af því varð ekki ekki, vegna veðurs. Klukkan 23:30 í gærkvöldi var það kynnt á Twitter síðu Vegagerðarinnar að ekkert yrði af framkvæmdum. Framkvæmdum var því frestað og verða göngin lokuð frá klukkan 22 í kvöld og þar til…Lesa meira

true

Grunur um smit og skipverjar í sóttkví

Fiskveiðiskipið Kap II VE-007 kom til hafnar í Grundarfirði í morgun. Grunur er um Covid-19 smit um borð en nokkrir skipverjar hafa sýnt einkenni. Þeir fóru allir við komuna til hafnar í sýnatöku og mun niðurstöðu að vænta í kvöld. Þar til mun skipið verða við hafnargarðinni nærri smábátahöfninni. Enginn aðgangur er leyfður að skipinu…Lesa meira

true

Skessuhorn kemur út á morgun en síðan verður vikufrí

Athygli lesenda og auglýsenda er vakin á því að starfsfólk Skessuhorns fer í viku sumarleyfi eftir útgáfu blaðsins sem kemur út á morgun, miðvikudaginn 28. júlí. Skrifstofan verður þá lokuð til og með þriðjudagsins 3. ágúst. Fyrsta blað í ágúst kemur út miðvikudaginn 11. ágúst. Tekið er við aðsendu efni og auglýsingapöntunum í blaðið á…Lesa meira

true

Bjössaróló fær andlitslyftingu

Einn þekktasti róluvöllur á landinu, Bjössaróló í Borgarnesi, fékk í liðinni viku sitt árlega reglubundna viðhald og kærkomna andlitslyftingu. Þar voru að verki ungmenni úr vinnuskóla Borgarbyggðar sem máluðu leiktækin í allskonar glaðlegum og björtum litum sem setja sinn svip á svæðið. Róluvöllurinn var hannaður og smíðaður af Birni Guðmundssyni, trésmíðameistara og þáverandi starfsmanni KBB,…Lesa meira

true

Þriðji flokkur ÍA karla Rey Cup Meistarar 2021

Leikmenn úr 3. flokki ÍA í knattspyrnu kepptu um helgina á alþjóðlega knattspyrnumótinu Rey Cup sem fram fór í Laugardalnum en mótið var haldið í 20. skipti og er eitt fjölmennasta knattspyrnumót sem haldið er á Íslandi árlega. Skagamenn sendu þrjú lið til keppni í ár, eitt í flokki A-liða og tvö lið í flokki…Lesa meira