Fréttir

true

Þátttaka vegna nauðsynlegra tannviðgerða

Heilbrigðisráðherra hefur staðfest rammasamning Sjúkratrygginga Íslands og tannlækna um nauðsynlegar tannlækningar vegna alvarlegra afleiðinga meðfæddra galla, slysa og sjúkdóma. Í stað endurgreiðslugjaldskrár frá árinu 2014 er nú búið að semja við tannlækna um föst verð sem hækkuð verða tvisvar á ári.  Samningurinn gildir frá 15. júlí 2021 til og með 30. september 2022. Lengi hefur…Lesa meira

true

Gengið frá kaupum Borgarbyggðar á nýju ráðhúsi

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur, í umboði sveitarstjórnar, staðfest kaupsamning á Digranesgötu 2 í Borgarnesi af Arion banka. Auk þess liggur fyrir samkomulag um leigu bankans á hluta húsnæðisins. Hafin er vinna við að skipuleggja húsnæðið til að þjóna því hlutverki að verða Ráðhús Borgarbyggðar. Vinna við breytingarnar verður síðan boðið út og því ekki ljóst nú…Lesa meira

true

„Þetta er allt byrjað aftur, því er nú fjandans verr“

Sýnataka vegna Covid-19 er nú hafin að nýju víða um landið. Á Akranesi fer hún fram daglega klukkan 13 í sjúkrabílaskýlinu við Þjóðbraut 11. Þar mæta þeir sem eru boðaðir til sýnatöku, auk þeirra sem panta sjálfir sýnatöku í gegnum Heilsuveru.is. Smitum í þjóðfélaginu hefur nú fjölgað hratt síðustu daga í ljósi þess að á…Lesa meira

true

Hænum sleppt úr prísundinni um áramótin

Frá og með næstu áramótum verður bannað að hafa varphænur hér á landi innilokaðar í þröngum búrum. Það byggir á reglugerð sem samþykkt hefur verið og snýr að velferð alifugla. Lausagönguhænur þurfa meira rými en búrhænsni og því eru nú í gangi umtalsverðar og kostnaðarsamar breytingar á hænsnabúum landsins. Eggjabændur þurfa að byggja talsvert stærri…Lesa meira

true

Mun leggja til auknar sóttvarnaaðgerðir innanlands

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir og Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá Almannavörnum héldu í dag upplýsingafund vegna ört vaxandi útbreiðslu Covid-19. Staðan fer hratt versnandi í úbreiðslu veirunnar. 236 hafa greinst með veiruna frá mánaðamótum, þar af 213 síðustu vikuna og 78 í gær. Í ljósi stöðunnar mun sóttvarnalæknir senda heilbrigðisráðherra í dag minnisblað með tillögum að auknum…Lesa meira

true

Skagastúlkur töpuðu gegn Augnabliki

ÍA lék gegn liði Augnabliks í elleftu umferð Lengjudeildar kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Kópavogsvelli. Augnablik var án sigurs frá því í fyrstu umferð í byrjun maí þegar þær lögðu núverandi topplið deildarinnar KR að velli 2-1 og er það eina tap KR í sumar í deildinni. Augnabliksstúlkur mættu grimmar…Lesa meira

true

Mikið um fíkniefna- og ölvunarakstur

Alls voru fimm ökumenn teknir fyrir fíkniefnaakstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi síðustu vikuna. Upp úr þessum fíkniefnaakstursmálum komu tvö mál þar sem ökumenn eru grunaðir um vörslu fíkniefna. Þá var einn ökumaður tekinn fyrir ölvunarakstur.Lesa meira

true

Skallagrímur sigraði Stokkseyri

Skallagrímur lék gegn liði Stokkseyrar í B-riðli 4. deildar karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Skallagrímsvelli í Borgarnesi. Skallarnir komust yfir á 13. mínútu leiksins með marki frá Ísak Jakobi Hafþórssyni og tíu mínútum síðar kom Viktor Már Jónasson þeim í tveggja marka forystu og staðan því 2-0 í hálfleik fyrir…Lesa meira

true

Fjör á fjölskyldudögum á Eiríksstöðum

Að Eiríksstöðum í Haukadal var hátíð um helgina; Fjölskyldudagar þar sem boðið var upp á fræðslu um landnámsöldina og gestir tóku þátt í allskyns fornri iðju. Um 350 manns sóttu Eiríksstaði heim í blíðskaparveðri. Gestir slökuðu á í sólinni og margir dvöldu daglangt, enda margt spennandi að gerast. Byrjað var með sögustund fyrir yngstu börnin.…Lesa meira

true

Tónlistarhátíð í Reykholti um helgina

Reykholtshátíð, sem fram fer um helgina 23. – 25. júlí, fagnar 25 ára afmæli sínu í ár en hún var fyrst haldin í Reykholti árið 1997 og er ein af elstu tónlistarhátíðum landsins. Hátíðin hefur alltaf verið haldin í kringum vígsluafmæli Reykholtskirkju sem ber upp á síðasta sunnudag júlímánaðar. Á hátíðinni í ár verða fernir…Lesa meira