Fréttir

true

Inga Björk stefnir á annað af tveimur efstu sætum lista Samfylkingar

Inga Björk Bjarnadóttir hefur ákveðið að gefa kost á sér í 1. – 2. sæti í flokksvali Samfylkingarinnar sem fram fer dagana 8.-10. september næstkomandi. „Mín draumsýn er að hér verði til samfélag þar sem öll stöndum við á sama stað við ráslínuna áður en lífshlaupið hefst og getum verið viss um að samfélagið grípi…Lesa meira

true

Fjölga súrálslögnum til álvers Norðuráls

Á fundi umhverfis-, skipulags- og náttúruverndarnefndar Hvalfjarðarsveitar 4. ágúst síðastliðinn var tekin fyrir umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir fjölgun súrálslagna í jörðu frá lóð Norðuráls á hafnarsvæði Grundartangahafnar. Fyrr í sumar hafði afgreiðslu málsins verið frestað þar sem beðið var eftir umsögnum frá Faxaflóahöfnum, Elkem Ísland, Meitli, Klafa, Vegagerðinni, RARIK, Mílu og Fjarskiptum. Nefndinni bárust engar…Lesa meira

true

Kraumandi sjór af makríl

Sjórinn vestan við landið kraumar víða af makríl þessa dagana. Hans verður meðal annars vart við Akranes og norðurmeð vesturströndinni og á Breiðafirði má víða sjá fláka makríltorfa. Alfons Finnsson fréttaritari Skessuhorns tók meðfylgjandi mynd á næstsíðasta degi strandveiðanna, síðastliðinn mánudag. Þarna er Ástgeir bróðir hans á sjó, en allt kringum bátinn kraumar sjórinn af makríl,…Lesa meira

true

Brátt rís fyrsta blokk af þremur við Asparskóga

Eins og Skessuhorn greindi frá fyrr í sumar munu senn rísa íbúðablokkir á Akranesi við Asparskóga 27 og 29. Það er fyrirtækið Uppbygging ehf., í eigu Engilberts Runólfssonar byggingaverktaka, sem byggir. Í hvoru húsi um sig verða tólf íbúðir, þriggja og fjögurra herbergja, 100-125 fermetrar með geymslum. Verða þær seldar fullbúnar með gólfefnum og áætlað…Lesa meira

true

Viðreisn auglýsir eftir frambjóðendum í öllum kjördæmum

Stjórn hins nýlega stofnaða stjórnmálaflokks, Viðreisnar, hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fram kemur að leitað er að kraftmiklum, jákvæðum, traustum og heiðarlegum einstaklingum á framboðslista flokksins fyrir komandi kosningar. „Áhersla er lögð á að á framboðslistum Viðreisnar verði fólk með fjölbreytta reynslu og þekkingu. Konum og körlum verður skipað jafnt til sætis á…Lesa meira

true

Þáði makríl úr útréttri hönd

Þröstur Albertsson sjómaður og ljósmyndari í Ólafsvík var á veiðum í síðustu viku þegar rita ein gerði sig heimakomna í bátnum hjá honum. Þröstur skar handa bita af makríl og bauð henni. Settist hún ítrekað á hönd hans og át og tók Þröstur meðfylgjandi mynd með hinni hendinni á símann.Lesa meira

true

Grundarfjarðarkirkja hálfrar aldar

Síðasta dag júlímánaðar fögnuðu Grundfirðingar því að 50 ár voru liðin síðan Grundarfjarðarkirkja var vígð. Af þessu tilefni predikaði séra Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands ásamt nokkrum fyrrverandi prestum kirkjunnar. Þá voru nokkrir einstaklingar heiðraðir af sóknarnefndinni fyrir dygga þjónustu við Grundarfjarðrakirkju frá upphafi. Þétt setið var í kirkjunni en margir lögðu leið sína til…Lesa meira

true

Veiddi maríulaxinn í Gufuá

Veiðin í Gufuá í Borgarhreppi var ágæt til 6. júlí, en þá datt hún niður og hefur verið frekar dræm undanfarið sökum þurrka. Veiðikappinn Ísólfur Fjeldsted, sex ára, náði engu að síður maríulaxi sínum úr ánni þrátt fyrir vatnsleysið. Laxinn var um sjö punda hængur og fékkst í veiðistað nr. 37. Nú er hins vegar…Lesa meira

true

Bjarni Jónsson sækist eftir oddvitasæti VG

Bjarni Jónsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi og sækist eftir oddvitasætinu. Bjarni er fæddur 6. júní árið 1966 og ólst upp í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi til 14 ára aldurs þegar fjölskylda hans fluttist að Hólum í Hjaltadal. Þar bjó hann til ársins 2010 að hann flutti…Lesa meira

true

Þröstur Leó er nú búsettur á Ferjubakka

Heimilisfólkið á Ferjubakka IV í Borgarhreppi hefur á undanförnum dögum látið vel af þresti sem gert hefur sig heimakominn á bænum. Sett var upp hús fyrir hann á stað þar sem hann fær frið fyrir köttunum á svæðinu. Heimasætan Sunna Kristín gaf þrestinum nafnið Þröstur Leó. Hún hugsar afar vel um fuglinn; kíkir reglulega til…Lesa meira