Fréttir

true

Stefnir í læknaskort

Í síðustu viku fjallaði fréttastofa Ríkisútvarpsins talsvert um þann læknaskort sem nú er á landsbyggðinni, raunar allsstaðar utan suðvesturhorns landsins. Í þeirri umræðu sagði formaður Læknafélags Íslands að gera þyrfti læknastarfið úti á landi meira aðlaðandi með því að breyta vaktafyrirkomulagi og minnka álag. Í þessari umfjöllun var sérstaklega rætt um alvarlega stöðu sem horft…Lesa meira

true

Ekkert íbúðarhúsnæði til sölu

Athygli vekur að ekki ein íbúð eða einbýlishús var til sölu í Búðardal í gær, ef marka má fasteignasölusíður. Þar hefur lítið verið byggt á liðnum árum, en byrjað var að byggja fimm íbúða raðhús með leiguíbúðum á síðasta ári. Í dreifbýli Dalabyggðar eru hinsvegar nokkrar jarðir og landspildur auglýstar til sölu samkvæmt vef fasteignasala.Lesa meira

true

Reynir H. steinlá fyrir KÁ

Reynir Hellissandi lék gegn toppliði KÁ í C-riðli 4. deildar karla í knattspyrnu á Ólafsvíkurvelli í gær. Lítið markvert gerðist í fyrri hálfleik en í seinni hálfleik brustu allar flóðgáttir. Hafnarfjarðarpiltar skoruðu þá alls fimm mörk á 45 mínútum, Aron Hólm Júlíusson skoraði tvö mörk og þeir Daði Snær Ingason, Egill Örn Atlason og Ólafur…Lesa meira

true

Kári tapaði gegn Magna

Knattspyrnufélagið Kári, sem á í harðri fallbaráttu í 2. deild karla í knattspyrnu, lék á laugardaginn gegn liði Magna frá Grenivík sem var með fjórum stigum meira en Kári fyrir leikinn og því um svokallaðan sex stiga leik að ræða. Magnamenn komust yfir á 18. mínútu leiksins með marki Guðna Sigþórssonar en aðeins tveimur mínútum…Lesa meira

true

Víkingur Ó ansi nálægt sínum fyrsta sigri

Víkingur lék gegn Grindavík í Lengjudeild karla í knattspyrnu á Ólafsvíkurvelli á föstudagskvöldið. Grindavík tók forystuna eftir um hálftíma leik þegar Sigurður Bjartur Hallsson skoraði úr vítaspyrnu og staðan 0-1 í hálfleik. Harley Willard fékk svo gullið tækifæri til að jafna leikinn fyrir Víking eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik af vítapunktinum en Aron…Lesa meira

true

Eyjólfur Vilberg ráðinn sparisjóðsstjóri

Eyjólfur Vilberg Gunnarsson hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga ses. Sparisjóður Suður-Þingeyinga ses. er ein elsta fjármálastofnun landsins og varð til við sameiningu fimm sparisjóða í Suður-Þingeyjarsýslu. Sá elsti þeirra, Sparisjóður Kinnunga, var stofnaður árið 1889. Hinir sjóðirnir voru Sparisjóður Aðaldæla, Sparisjóður Fnjóskdæla, Sparisjóður Mývetninga og Sparisjóður Reykdæla, en aðalstöðvar sjóðsins eru á Laugum í…Lesa meira

true

Á morgun er spáð hvassviðri við fjöll á Snæfellsnesi

Í dag er því spáð að vindur gangi í suðaustan 8-15 m/s með rigningu sunnan- og vestanlands og að hvassast verði við fjöll. Þurrt og bjart verður norðaustan til á landinu þar sem sömuleiðis verður hlýjast. Á morgun verður heldur kólnandi í veðri og gengur í suðaustan 8-15 m/s á vestanverðu á landinu. Hvassast verður…Lesa meira

true

Ætla að byggja upp nýjan gagnagrunn um mannvirki

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og félagsmálaráðuneytið hafa tekið höndum saman um uppbyggingu nýrrar mannvirkjaskrár, gagnagrunns um íslensk mannvirki. Markmiðið er að tryggja samfélaginu á hverjum tíma áreiðanlegar rauntímaupplýsingar um mannvirkjagerð og stöðuna á húsnæðismarkaði. Ráðgert er að ný mannvirkjaskrá verði komin í gagnið 1. júní 2022. Í mannvirkjaskrá verða nákvæm og áreiðanleg gögn um mannvirki á…Lesa meira

true

Húsnæðismálin eru stóru vandamálin í rekstri slökkviliðsins

Á fundi Byggðarráðs Borgarbyggðar 24. júní síðastliðinn var lagt fram bréf Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) um úttekt sem stofnunin gerði á Slökkviliði Borgarbyggðar 1. júní. Í bréfinu kemur fram að HMS tryggi samræmingu eldvarnaeftirlits og slökkvistarfs um land allt. Í því skyni skuli hún gera sjálfstæðar athuganir og úttektir með því að leiðbeina sveitarstjórnum um…Lesa meira

true

Baulan enduropnuð á fimmtudaginn

„Við opnum fimmtudaginn 15. júlí. Allir velkomnir, kaffi á könnunni og íspinnar fyrir börnin,“ segir í tilkynningu frá nýjum rekstraraðila Baulunnar í Borgarfirði. Skeljungur keypti eins og kunnugt er Bauluna í september á síðasta ári og rak hana þar til í janúar að lokað var og auglýst eftir áhugasömum sem vildu taka reksturinn að sér.…Lesa meira