Fréttir

true

Kári tapaði gegn Magna

Knattspyrnufélagið Kári, sem á í harðri fallbaráttu í 2. deild karla í knattspyrnu, lék á laugardaginn gegn liði Magna frá Grenivík sem var með fjórum stigum meira en Kári fyrir leikinn og því um svokallaðan sex stiga leik að ræða. Magnamenn komust yfir á 18. mínútu leiksins með marki Guðna Sigþórssonar en aðeins tveimur mínútum…Lesa meira

true

Víkingur Ó ansi nálægt sínum fyrsta sigri

Víkingur lék gegn Grindavík í Lengjudeild karla í knattspyrnu á Ólafsvíkurvelli á föstudagskvöldið. Grindavík tók forystuna eftir um hálftíma leik þegar Sigurður Bjartur Hallsson skoraði úr vítaspyrnu og staðan 0-1 í hálfleik. Harley Willard fékk svo gullið tækifæri til að jafna leikinn fyrir Víking eftir tíu mínútna leik í seinni hálfleik af vítapunktinum en Aron…Lesa meira

true

Eyjólfur Vilberg ráðinn sparisjóðsstjóri

Eyjólfur Vilberg Gunnarsson hefur verið ráðinn sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Suður-Þingeyinga ses. Sparisjóður Suður-Þingeyinga ses. er ein elsta fjármálastofnun landsins og varð til við sameiningu fimm sparisjóða í Suður-Þingeyjarsýslu. Sá elsti þeirra, Sparisjóður Kinnunga, var stofnaður árið 1889. Hinir sjóðirnir voru Sparisjóður Aðaldæla, Sparisjóður Fnjóskdæla, Sparisjóður Mývetninga og Sparisjóður Reykdæla, en aðalstöðvar sjóðsins eru á Laugum í…Lesa meira

true

Á morgun er spáð hvassviðri við fjöll á Snæfellsnesi

Í dag er því spáð að vindur gangi í suðaustan 8-15 m/s með rigningu sunnan- og vestanlands og að hvassast verði við fjöll. Þurrt og bjart verður norðaustan til á landinu þar sem sömuleiðis verður hlýjast. Á morgun verður heldur kólnandi í veðri og gengur í suðaustan 8-15 m/s á vestanverðu á landinu. Hvassast verður…Lesa meira

true

Ætla að byggja upp nýjan gagnagrunn um mannvirki

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og félagsmálaráðuneytið hafa tekið höndum saman um uppbyggingu nýrrar mannvirkjaskrár, gagnagrunns um íslensk mannvirki. Markmiðið er að tryggja samfélaginu á hverjum tíma áreiðanlegar rauntímaupplýsingar um mannvirkjagerð og stöðuna á húsnæðismarkaði. Ráðgert er að ný mannvirkjaskrá verði komin í gagnið 1. júní 2022. Í mannvirkjaskrá verða nákvæm og áreiðanleg gögn um mannvirki á…Lesa meira

true

Húsnæðismálin eru stóru vandamálin í rekstri slökkviliðsins

Á fundi Byggðarráðs Borgarbyggðar 24. júní síðastliðinn var lagt fram bréf Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) um úttekt sem stofnunin gerði á Slökkviliði Borgarbyggðar 1. júní. Í bréfinu kemur fram að HMS tryggi samræmingu eldvarnaeftirlits og slökkvistarfs um land allt. Í því skyni skuli hún gera sjálfstæðar athuganir og úttektir með því að leiðbeina sveitarstjórnum um…Lesa meira

true

Baulan enduropnuð á fimmtudaginn

„Við opnum fimmtudaginn 15. júlí. Allir velkomnir, kaffi á könnunni og íspinnar fyrir börnin,“ segir í tilkynningu frá nýjum rekstraraðila Baulunnar í Borgarfirði. Skeljungur keypti eins og kunnugt er Bauluna í september á síðasta ári og rak hana þar til í janúar að lokað var og auglýst eftir áhugasömum sem vildu taka reksturinn að sér.…Lesa meira

true

Eldur kom upp í sumarbústað í Ölveri

Klukkan 18:38 í kvöld var Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar kallað út sem og aðrir viðbragðsaðilar frá Borgarnesi. Eldur var laus í sumarbústað í landi Ölvers við rætur Hafnarfjalls. Enginn var í húsinu þegar eldurinn kom upp. Mikinn reyk lagði frá húsinu þegar slökkvilið kom á vettvang, en slökkvistarf gekk greiðlega. Fljótlega var hafist handa við…Lesa meira

true

Miðflokkurinn birtir framboðslista sinn

Framboðslisti Miðflokksins í Norðvesturkjördæmi var samþykktur á félagsfundi síðastliðinn fimmtudag. Flokkurinn hlaut við síðustu kosningar tvo þingmenn sem nú skipta tvö efstu sætin líkt og þá. „Ég er virkilega ánægður með öflugan lista sem nú hefur verið samþykktur. Á honum er margt kröftugt og gott fólk sem ég hlakka til að vinna með í kosningabaráttunni…Lesa meira

true

Gleðin við völd í Gleðigöngu í Borgarnesi í dag

Í dag verður farin Gleðiganga á Hinsegin dögum á Vesturlandi. Þá verður fjölbreytileikanum fagnað og gengið saman í Borgarnesi til að styðja réttindabaráttu hinseginfólks. Gangan hefst við Brákarhlíð í Borgarnesi klukkan 13:30 í dag. Borgarbrautinni verðu lokað fyrir annarri umferð frá Brákarhlíð að Skallagrímsgötu frá kl 13:30. Leiðin milli Dalhalla og Skallagrímsgötu verður lokuð þar…Lesa meira