Fréttir

true

Guðrún Ósk hætt þjálfun kvennaliðs Skallagríms

Guðrún Ósk Ámundadóttir greinir frá því á Facebook síðu sinni að hún hafi tekið þá ákvörðun að hætta þjálfun kvennaliðs Skallagríms í körfubolta fyrir næsta tímabil. Guðrún hefur á ferli sínum náð besta árangri sem liðið hefur uppskorið frá upphafi og því er mikill missir af henni fyrir Skallagrím. „Það verður skrítin tilfinning að taka…Lesa meira

true

Frumsýndu Emil og tímaflakkið í Bíóhöllinni

Í gærkvöldi var í Bíóhöllinni á Akranesi frumsýnd stuttmyndin Emil og tímaflakkið. Það er starfsfólk Fjöliðjunnar sem vann að gerð myndarinnar og lék í henni undir leikstjórn Heiðars Mar Björnssonar. Emil og tímaflakkið fjallar um Emil í Kattholti sem flakkar fram og aftur um árin með ýmsa hrekki. Fyrir sýningu var sungið um Emil. Vel…Lesa meira

true

Danskur drengjakór syngur á Akranesi í kvöld

Det Danske Drengekor heldur tónleika í Akraneskirkju í kvöld, fimmtudaginn 1. júlí, klukkan 19:30. Stjórnandi kórsins er Benazir Braae. Kórinn er nú á söngferðalagi um Ísland og verða tónleikarnir á Akranesi þeir fyrstu í röð tónleika kórsins.Lesa meira

true

Skagastúlkur töpuðu fyrir Aftureldingu

Fyrsti leikur áttundu umferðar í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu fór fram í gærkvöldi í Mosfellsbæ þar sem mættust lið Aftureldingar og ÍA. Heimastúlkur byrjuðu mun betur og á 18. mínútu leiksins kom Guðrún Elísabet Björgvinsdóttir þeim yfir með fyrsta marki leiksins og eftir níu mínútna leik í þeim seinni var Guðrún aftur á ferðinni. Lítið…Lesa meira

true

Stærsta bólusetningarvikan á Vesturlandi

Miklar annir eru í bólusetningu vegna Covid-19 á Vesturlandi í þessari viku sem jafnframt er stærsta vikan frá upphafi bólusetninga skömmu fyrir áramótin. Fólk hefur verið boðað til bólusetningar með þeim bóluefnum sem í boði eru; svo sem frá Astra Zeneca, Pfizer og Janssen. Hátt í þrjú þúsund manns hafa verið boðaðir í vikunni til…Lesa meira

true

Ætla að byggja upp nýjan gagnagrunn um mannvirki

Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og félagsmálaráðuneytið hafa tekið höndum saman um uppbyggingu nýrrar mannvirkjaskrár, gagnagrunns um íslensk mannvirki. Markmiðið er að tryggja samfélaginu á hverjum tíma áreiðanlegar rauntímaupplýsingar um mannvirkjagerð og stöðuna á húsnæðismarkaði. Ráðgert er að ný mannvirkjaskrá verði komin í gagnið 1. júní 2022. Í mannvirkjaskrá verða nákvæm og áreiðanleg gögn um mannvirki á…Lesa meira

true

Útskrift skilnaðarráðgjafa á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit

Síðastliðinn mánudag var hópur skilnaðarráðgjafa útskrifaður við hátíðlega athöfn. SES (Samvinna eftir skilnað) er annars vegar rafrænn fræðsluvettvangur fyrir foreldra í skilnaðarferli og hins vegar sérhæfð skilnaðarráðgjöf á vegum félagsþjónustu sveitarfélaga. Verkefnið er unnið að danskri fyrirmynd og byggir námsefnið á nýjustu þekkingu, rannsóknum fræðimanna og reynslu fagfólks. Meðal þeirra sem hlutu starfsleyfi sem SES…Lesa meira

true

Kassabílarallý skipulagt á Akranesi í ágúst

Sagt er frá því á fésbókarsíðu hópsins Kassabílasmíði á Akranesi að í ágúst verði keppt í kassabílarallýi á Akranesi í fyrsta skipti. Þessi dagur verður tileinkaður kassabílum og kassabílasmíði þar sem keppt verður í nokkrum þrautum og verða veitt verðlaun fyrir frumlegasta og flottasta kassabílinn. Akraneskaupstaður styrkir framtakið og er ætlunin að þetta verði ógleymanleg…Lesa meira

true

Meðalverð seldra eigna var 42,1 m

Í maímánuði skiptu 78 fasteignir á Vesturlandi um eigendur. Af þeim voru 31 eign seld í sérbýli, 27 í fjölbýli og 18 sumarhús. Ekkert atvinnuhúsnæði skipti um eigendur í mánuðinum. Veltan í þessum viðskiptum var 3,285 milljarðar króna. Meðalverð selds einbýlishúss var 55,6 milljónir kr, meðalverð íbúðar í fjölbýli var 35,1 milljón og meðalverð sumarhúss…Lesa meira

true

Ekkert lát á útgáfunni næstu vikurnar

Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga nú í júlí. Líkt og frá upphafi útgáfunnar verður svo starfsfólki gefið einnar viku frí um mánaðamótin júlí/ágúst og kemur því ekki út blað miðvikudaginn 4. ágúst (eftir verslunarmannahelgi).Lesa meira