
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga nú í júlí. Líkt og frá upphafi útgáfunnar verður svo starfsfólki gefið einnar viku frí um mánaðamótin júlí/ágúst og kemur því ekki út blað miðvikudaginn 4. ágúst (eftir verslunarmannahelgi).Lesa meira

Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga nú í júlí. Líkt og frá upphafi útgáfunnar verður svo starfsfólki gefið einnar viku frí um mánaðamótin júlí/ágúst og kemur því ekki út blað miðvikudaginn 4. ágúst (eftir verslunarmannahelgi).Lesa meira

Fjórðungsmót Vesturlands hefst í Borgarnesi næstkomandi miðvikudag, 7. júlí, og stendur fram á sunnudaginn 11. júlí. „Það er ljóst að framundan er frábær keppni í öllum flokkum. Þetta verður sterk keppni, ég myndi alveg segja af landsmótskaliberi,“ segir Magnús Benediktsson framkvæmdastjóri mótsins í samtali við Skessuhorn. „Kynbótasýningin sem haldin verður fyrir þetta svæði, Vestur –…Lesa meira

Reynir Hauksson flamenco gítarleikari frá Hvanneyri heldur af stað í tónleikaferðalag um landið á morgun, fimmtudaginn 1. júlí, ásamt hljómsveit. Reynir hefur undanfarin ár búið á Granada á Spáni þar sem hann spilar flamenco gítarleik. Undanfarin ár hefur hann komið reglulega til Íslands þar sem hann hefur kynnt Íslendinga fyrir flamenco tónlistinni. Árið 2019 gaf…Lesa meira

Laugardaginn 3. júlí næstkomandi fer fram þjóðbúningahátíðin Skotthúfan í Stykkishólmi. Hátíðin hefur fest sig í sessi og setur hún bæði fagran brag á annars fallegan bæ þegar áhugafólk af öllu landinu heimsækir Stykkishólm í sínu fínasta pússi. Byggðasafn Snæfellinga- og Hnappdæla hefur veg og vanda að hátíðinni og hefur fóstrað hana frá fyrstu tíð í…Lesa meira

Sigrún Guðmundsdóttir snyrtifræðingur frá Ólafsvík stökk út í djúpu laugina 1. maí síðastliðinn þegar hún ákvað að fara af stað með sinn eigin rekstur í Reykjavík og í Grundarfirði. „Að fara í sjálfstæðan rekstur tel ég vera næsta skrefið í þessu fagi. Annað hvort ertu launþegi á stofu og vinnur fyrir aðra eða ert með…Lesa meira

„Nú þegar sumarið er komið, fjöldatakmarkanir heyra sögunni til og sólin er farin að skína að þá er heldur betur tilefni til þess skemmta sér, skoða landið og njóta menningarinnar. Sóknaráætlun og Markaðsstofa Vesturlands vilja því leggja hönd á plóg og stuðla að fjölbreyttri viðburðadagskrá á Vesturlandi,“ segir í tilkynningu. Sóknaráætlun Vesturlands býður listafólki og…Lesa meira

Bíll valt í Norðurárdal í Borgarfirði að morgni síðasta fimmtudags. Tveir voru í bílnum. Tildrög slyssins voru óvenjuleg en ökumaður reyndist hafa verið að aðstoða farþega við að fara úr peysu á sama tíma og hann ók áfram bílnum á 90 km hraða. Missti hann þá sjónar af veginum í augnablik og lenti fyrir utan…Lesa meira

Næstkomandi laugardag verður bæjarhátíðin Ólafsvíkurvaka haldin hátíðlega í Snæfellsbæ. Hátíðin hefst með golfmóti á Fróðárvelli kl. 9. Þá verður Einar Mikael með töfraskóla fyrir börn á aldrinum 6-12 ára í íþróttahúsi Snæfellsbæjar kl. 10. Fjölbreytt dagskrá verður svo fram eftir degi, crossfit, þjálfun í vatni, Ólafsvíkurdraumurinn, markaður, hoppukastalar og fleira. Í Sjómannagarðinum hefst hátíðardagskrá kl.…Lesa meira

Frá og með síðasta laugardegi, 26. júní, gilda engar takmarkanir á samkomum á landinu vegna Covid-19. Ástandið hér á landi hefur spurst út og hefur ferðamönnum fjölgað verulega síðustu tvær vikurnar. Má því segja að íslenska ferðasumarið sé farið að taka við sér. Ísland komst einmitt í heimsfréttirnar þegar öllum takmörkunum var aflétt innanlands, fyrst…Lesa meira

Ný stjórn Atvinnurekendadeildar Félags kvenna í atvinnulífinu, AFKA, tók til starfa á aðalfundi deildarinnar fyrr í mánuðinum. Í nýrri stjórn sitja tvær konur í atvinnurekstri á Vesturlandi, þær Dýrfinna Torfadóttir, gullsmiður og skartgripahönnuður, og Ingibjörg Valdimarsdóttir, eigandi Ritara og Stay West. Auk þess er Margrét Rósa Einarsdóttir á Hótel Glym og Englendingavík í varastjórn deildarinnar.…Lesa meira