Fréttir

true

Píratar ljúka kosningu í dag

Kosningu í prófkjöri Pírata í Norðvesturkjördæmi lýkur kl 18:00 í dag. Kosning fer fram á kosningavef Pírata; x.piratar.is. „Allir þeir sem hafa lögheimili í Norðvesturkjördæmi og skráðu sig í Pírata fyrir 9. júlí sl. eru með kosningarétt,“ segir í tilkynningu frá Pírötum.Lesa meira

true

Ná Skagamenn að kveða niður Ólafsvíkurgrýluna?

Klukkan 18:00 í kvöld fer fram á Akranesvelli Vesturlandsslagur í knattspyrnu. Þá mæta Skagamenn Víkingi Ólafsvík í fimmtándu umferð Pepsi deild karla. Fyrir leikinn eru Skagamenn í áttunda sæti með nítján stig en Víkingar í sætinu fyrir neðan með átján stig. Bæði lið hafa átt sína góðu spretti í sumar, Víkingar í upphafi sumars en Skagamenn…Lesa meira

true

Yngsti þingmaður sögunnar ætlar ekki í framboð

Jóhanna María Sigmundsdóttir fjórði þingmaður Framsóknarflokks í Norðvesturkjördæmi hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til endurkjörs í kosningunum sem framundan eru í haust. Þetta tilkynnti hún á Facebook síðu sinni fyrr í dag. Jóhanna María er yngsti Íslendingurinn í sögunni til að taka sæti á Alþingi, var 21 árs þegar kosið var 2013.…Lesa meira

true

Bjóða á afmælistónleika Oddnýjar

Oddný Þorkelsdóttir í Borgarnesi verður 96 ára á fimmtudaginn kemur, 18. ágúst. Fjölskylda hennar ætlar að halda upp á daginn með tónleikum í Borgarneskirkju sem hefjast klukkan 19:30. Á dagskránni verða sönglög sem minna á gamla tíma í stofunum við Skúlagötu. Þar fóru fram æfingar fyrir fjölmargar söngdagskrár og innskot á skemmtunum í Héraðinu á…Lesa meira

true

Nýr upplýsingafulltrúi Landsbjargar

Þorsteinn G. Gunnarsson tók nýverið við starfi upplýsinga- og kynningarfulltrúa Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Auk samskipta við fjölmiðla mun Þorsteinn vinna að margvíslegum verkefnum fyrir Slysavarnafélagið Landsbjörg sem lúta að málefnum félagsins og útgáfumálum. Þorsteinn hefur víðtæka reynslu af almannatengslum og kynningarmálum eftir að hafa starfað sem ráðgjafi í almannatengslum í 18 ár, lengst af hjá KOM…Lesa meira

true

Vorið í fyrra hefur verið erfitt fyrir laxaseiðin

„Við vorum að veiða á Munaðarnessvæðinu í Norðurá en fengum ekki mikið, urðum aðeins varir, en ekki meira en það,“ sagði Eggert Jóhannesson sem var á veiðislóðum í Norðurá í Borgarfirði í vikunni sem leið. „Veiðimenn sem voru að veiða á móti okkur í Straumunum fengu nokkra laxa meðan við stoppuðum þarna við, en þeir…Lesa meira

true

Skóflustunga tekin að nýrri Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi

Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráðherra tók á föstudaginn fyrstu skóflustunguna að nýrri þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Við athöfnina sagði ráðherra að með byggingu þjóðgarðsmiðstöðvar yrðu innviðir þjóðgarðsins Snæfellsjökuls styrktir, þetta yrði lyftistöng fyrir ferðaþjónustu á svæðinu og að með henni yrði þjóðgarðurinn betur í stakk búinn til að taka á móti ferðamönnum sem heimsækja svæðið allt árið um…Lesa meira

true

Sækja slasaðan göngumann við Glym

Þrjár björgunarsveitir Landsbjargar af sunnanverðu Vesturlandi; Björgunarfélag Akraness, Björgunarsveitin Brák og Björgunarsveitin Ok, vinna nú saman að björgun slasaðs ferðamanns við Botnsá í Hvalfirði. Hann mun vera slasaður á fæti. Útkall barst laust eftir klukkan 14 í dag og var hinn slasaði staddur ofarlega við ána, uppundir fossinum Glym. Að sögn fulltrúa í svæðisstjórn gengur…Lesa meira

true

Spáð er snörpum hviðum við fjöll víða á Vesturlandi

Eftir miðjan daginn hvessir á norðanverðu Snæfellsnesi, einkum vestan Grundarfjarðar. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að hviður geti orðið allt að 25-30 m/s fram eftir kvöldi.  Einnig er hætt við hviðum við Hafnarfjall um tíma í kvöld. „Þá er rétt að vara við mjög hvössum vindi á Kaldadal þvert á veg með grjót- og sandfoki…Lesa meira

true

Konan fannst heil á húfi

Víðtæk leit hófst í gærkvöldi að ungri konu af höfuðborgarsvæðinu sem saknað hafði verið frá því á föstudag. Meðal annarra tóku björgunarsveitir af sunnanverðu Vesturlandi þátt í leitinni. Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar fann síðan konuna heila á húfi í morgun. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill koma á framfæri þökkum til allra sem þátt tóku í leitinni.Lesa meira