Fréttir

true

Veiddi maríulaxinn í Gufuá

Veiðin í Gufuá í Borgarhreppi var ágæt til 6. júlí, en þá datt hún niður og hefur verið frekar dræm undanfarið sökum þurrka. Veiðikappinn Ísólfur Fjeldsted, sex ára, náði engu að síður maríulaxi sínum úr ánni þrátt fyrir vatnsleysið. Laxinn var um sjö punda hængur og fékkst í veiðistað nr. 37. Nú er hins vegar…Lesa meira

true

Bjarni Jónsson sækist eftir oddvitasæti VG

Bjarni Jónsson hefur ákveðið að gefa kost á sér í forvali Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi og sækist eftir oddvitasætinu. Bjarni er fæddur 6. júní árið 1966 og ólst upp í Bjarnarhöfn á Snæfellsnesi til 14 ára aldurs þegar fjölskylda hans fluttist að Hólum í Hjaltadal. Þar bjó hann til ársins 2010 að hann flutti…Lesa meira

true

Þröstur Leó er nú búsettur á Ferjubakka

Heimilisfólkið á Ferjubakka IV í Borgarhreppi hefur á undanförnum dögum látið vel af þresti sem gert hefur sig heimakominn á bænum. Sett var upp hús fyrir hann á stað þar sem hann fær frið fyrir köttunum á svæðinu. Heimasætan Sunna Kristín gaf þrestinum nafnið Þröstur Leó. Hún hugsar afar vel um fuglinn; kíkir reglulega til…Lesa meira

true

Tónleikar á Hvanneyri á föstudag

Gítarleikarinn Reynir Hauksson heldur tónleika á Hvanneyri Pub föstudaginn 12. ágúst næstkomandi. Reynir, sem búsettur er í Noregi, er alinn upp á Hvanneyri og hefur dvalið hérlendis í sumar. Hann kom fram á Hvanneyrarhátíð í júlímánuði síðastliðnum en heldur nú aðra tónleika áður en hann heldur af landi brott. Á efnisskrá tónleikanna á föstudaginn verður…Lesa meira

true

Listahátíðin Plan-B artfestival sett á morgun – dagskrá

Listahátíðin Plan-B artfestival verður haldin í Borgarnesi fyrsta sinni helgina 12-14. ágúst næstkomandi. Hún verður sett á morgun klukkan 18 og stendur fram á sunnudag. Hátíðin er fjölþjóðleg, en um 20 listamenn af sjö mismunandi þjóðernum munu taka þátt í henni. Listamennirnir stunda fjölbreytta list og verða til sýnis verk úr öllum miðlum nútíma myndlistar.…Lesa meira

true

Fólk yfir miðjan aldur eykur þátttöku í golfi

Kylfingar hafa aldrei verið fleiri, en nú og eru 16.820 skráðir í golfklúbba víðsvegar um landið. Þetta kemur fram á golf.is. Kylfingum hefur fjölgað um 400 frá síðasta ára. Fjölgunin er hvað mest í golfklúbbum á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesi. „Gott veðurfar, aukin markaðssetning og fjölbreyttara framboð á félagaaðild gætu verið líklegar skýringar á fjölguninni,“ segir…Lesa meira

true

Fyrsta skóflustungan að nýrri þjóðgarðsmiðstöð

Síðdegis á morgun, föstudag, mun fulltrúi Umhverfisstofnunar taka fyrstu skóflustunguna að nýrri Þjóðgarðsmiðstöð á Hellissandi. Dagskráin hefst kl. 16 vestan við Sjómannagarðinn en eftir það verður boðið upp á kaffiveitingar og málstofu um framtíð Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls.  Lesa meira

true

Tíu taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í NV kjördæmi

Frestur er nú liðinn til að skila inn framboðum vegna væntanlegs prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar. Að sögn Inga Tryggvasonar, lögfræðings og formanns kjördæmisráðs, gefa tíu kost á sér í prófkjörinu, sem fer fram laugardaginn 3. september. Flokkurinn á nú tvo þingmenn í kjördæminu, þá Einar Kristinn Guðfinnsson og Harald Benediktsson. Einar Kristinn…Lesa meira

true

Myndasyrpa frá Ólafsdalshátíð

Ólafsdalshátíð var haldin níunda sinni laugardaginn 6. ágúst síðastiðinn í Ólafsdal við Gilsfjörð. Að sögn Rögnvaldar Guðmundssonar, formanns Ólafsdalsfélagsins, sóttu um 500 gestir Ólafsdal heim á meðan hátíðinni stóð. „Mæting var með mesta móti og veðrið lék við okkur allan tímann,“ segir Rögnvaldur og bætir því við að töluvert margt fólk hafi ákveðið að dvelja…Lesa meira

true

Kraftur hljóp í makrílveiðar í júlí

Á vef Fiskistofu er gert grein fyrir afla úr deilistofnum í síðasta mánuði. Þar kemur fram að  íslensk skip lönduðu 35.632 tonnum af makríl í júlí síðastliðnum. Nokkur kraftur hljóp í veiðarnar í síðasta mánuði miðað við þann gang sem fyrir var á þeim. Nær allur makrílafli júlímánaðar veiddist í íslenskri lögsögu að undanskildum 906…Lesa meira