Fréttir

true

Feðgar með tvo báta á grásleppu og strandveiðum

Meðal báta sem gerðir eru út á grásleppu frá Akranesi er Stekkjarvík AK-6. Eigandi Stekkjarvíkur er Guðmundur Elíasson. Synir hans, Elías 20 ára og Hallgrímur 19 ára, hafa verið viðloðandi útgerð Guðmundar frá því að þeir voru litlir guttar og eru hálfpartinn aldir upp um borð hjá pabba sínum. Elías stundar nú nám í trésmíði…Lesa meira

true

Hefur verið á sjó frá fjórtán ára aldri

Illugi Jens Jónasson gaf sér glaður örstutta pásu frá heljarinnar framkvæmdavinnu á heimili sínu í Ólafsvík til að spjalla við blaðamann Skessuhorns um sjómennskuna. Illugi er skipstjóri á Guðmundi Jenssyni, gerir út frá Ólafsvík og hefur hann mannað brúnna samviskusamlega síðan 1994. Guðmundur Jensson SH er dragnótarbátur með fimm manns í áhöfn en foreldrar Illuga…Lesa meira

true

Vegvísir er nýr gagnvirkur upplýsingavefur

Vegvísir.is er nýr gagnvirkur upplýsingavefur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis sem opnaður var í gær. Vefnum er ætlað að vera leiðarvísir almennings að lykilupplýsingum um samgöngur, fjarskipti og byggðamál. Vefurinn markar tímamót með nýstárlegri framsetningu á opinberum gögnum,en þar verður hægt að fylgjast með fjármögnun, framvindu og árangri í yfir 500 verkefnum og stöðu 60 árangursmælikvarða. Á…Lesa meira

true

Hefja í kvöld fundaröð um framtíð landbúnaðar

Fyrsti fundur í hringferð um Ræktum Ísland!, umræðuskjal um landbúnaðarstefnu fyrir Ísland, fer fram í Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri kl. 20 í kvöld. Á morgun fer fram fundur á Ísafirði en alls er boðað til tíu opinna funda um allt land á næstu 16 dögum. Ásamt ráðherra kynna þau Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra og þingmaður, og…Lesa meira

true

Hættustigi vegna gróðurelda aflétt

Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Vesturlandi, hefur ákveðið að aflétta hættustigi vegna hættu á gróðureldum á svæðinu. Í tilkynningu kemur fram að nægilega úrkoma hafi fallið síðastliðna daga og að sú úrkoma sé nægileg til að aflétta bæði óvissu- og hættustigum sem í gildi hafa verið. Almannavarnir og Slökkvilið Borgarbyggðar hvetja þó almenning til…Lesa meira

true

Kennarasambandið kaupir átta orlofsíbúðir á Bifröst

Orlofssjóður Kennarasambands Íslands festi á dögunum kaup á átta raðhúsaíbúðum við Viðihraun á Bifröst. Húsin voru byggð í upphafi þessarar aldar og þjónuðu lengi vel sem nemendagarðar við skólann. Víðihraun er gata efst í byggðinni, næst Grábrók, og er ætlunin að leigja þau út allt árið sem orlofshús. Húsin eru með góðan pall þaðan sem…Lesa meira

true

Norðurá verður opnuð á föstudaginn

„Það skýrist í dag hverjir opna Norðurá í Borgarfirði,“ sagði Einar Sigfússon sölustjóri veiðileyfa í Norðurá í Borgarfirði. Í fyrra var það Helgi Björnsson og eiginkona hans Vilborg Halldórsdóttir sem opnuðu ána og veiddi Vilborg maríulaxinn sinn þá. „Við opnum á föstudaginn klukkan átta,“ segir Einar. Nokkuð hefur rignt í Borgarfirði síðustu daga og vatn…Lesa meira

true

Þriðjungur fær ekki fullt orlof

Í nýlegri skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Alþýðusamband Íslands kemur fram að tæplega þriðjungur fólks á vinnualdri (20-65) á ekki rétt á fullu orlofi í sumar. Fullt orlof telst 24 greiddir frídagar eða meira. Þegar spurt var um ástæðu þess að viðkomandi fái ekki fullt orlof nefndu 55% að þeir hefðu ekki verið í starfi…Lesa meira

true

Varmalandsdagar verða haldnir í fyrsta sinn nú í júní

Staðarhátíðin Varmalandsdagar verður haldin í fyrsta sinn dagana 12. og 13. júní næstkomandi. Að hátíðinni standa Hollvinasamtök Varmalands en þau voru stofnuð síðastliðið haust. „Við ákváðum að stofna hollvinasamtökin sem svona hagsmunasamtök fyrir Varmaland. Helsta ástæðan er kannski sú að okkur fannst vanta smá upp á þjónustu og slíkt hér, þá opinbera þjónustu eins og…Lesa meira