Fréttir

true

Kennarasambandið kaupir átta orlofsíbúðir á Bifröst

Orlofssjóður Kennarasambands Íslands festi á dögunum kaup á átta raðhúsaíbúðum við Viðihraun á Bifröst. Húsin voru byggð í upphafi þessarar aldar og þjónuðu lengi vel sem nemendagarðar við skólann. Víðihraun er gata efst í byggðinni, næst Grábrók, og er ætlunin að leigja þau út allt árið sem orlofshús. Húsin eru með góðan pall þaðan sem…Lesa meira

true

Norðurá verður opnuð á föstudaginn

„Það skýrist í dag hverjir opna Norðurá í Borgarfirði,“ sagði Einar Sigfússon sölustjóri veiðileyfa í Norðurá í Borgarfirði. Í fyrra var það Helgi Björnsson og eiginkona hans Vilborg Halldórsdóttir sem opnuðu ána og veiddi Vilborg maríulaxinn sinn þá. „Við opnum á föstudaginn klukkan átta,“ segir Einar. Nokkuð hefur rignt í Borgarfirði síðustu daga og vatn…Lesa meira

true

Þriðjungur fær ekki fullt orlof

Í nýlegri skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Alþýðusamband Íslands kemur fram að tæplega þriðjungur fólks á vinnualdri (20-65) á ekki rétt á fullu orlofi í sumar. Fullt orlof telst 24 greiddir frídagar eða meira. Þegar spurt var um ástæðu þess að viðkomandi fái ekki fullt orlof nefndu 55% að þeir hefðu ekki verið í starfi…Lesa meira

true

Varmalandsdagar verða haldnir í fyrsta sinn nú í júní

Staðarhátíðin Varmalandsdagar verður haldin í fyrsta sinn dagana 12. og 13. júní næstkomandi. Að hátíðinni standa Hollvinasamtök Varmalands en þau voru stofnuð síðastliðið haust. „Við ákváðum að stofna hollvinasamtökin sem svona hagsmunasamtök fyrir Varmaland. Helsta ástæðan er kannski sú að okkur fannst vanta smá upp á þjónustu og slíkt hér, þá opinbera þjónustu eins og…Lesa meira

true

Sjómannadagsblað fylgir Skessuhorni á morgun

Sjómannadagurinn er næstkomandi sunnudag. Hátíðarhöld verða víða í sjávarplássum af því tilefni. Skessuhorn gefur að vanda út blað tileinkað sjómönnum og lífi þeirra. Fylgir 40 síðna sérblað tileinkað þeim með Skessuhorni sem kemur út á morgun. Uppselt er fyrir auglýsingar í Sjómannadagsblaðinu en frestur er til hádegis í dag ef fólk vill koma einhverju á…Lesa meira

true

Hægt er nú að sækja um sláturhúsaleyfi

Matvælastofnun hefur kynnt að þeim sem hyggjast sækja um leyfi til að reka lítið sauðfjár- og geitasláturhús, sbr. reglugerð nr. 500/2021, er bent á að hægt er að sækja um í gegnum Þjónustugátt stofnunarinnar, mast.is. Afgreiðslutími á umsóknum er allt að þrír mánuðir. Ekki má hefja starfsemi fyrr en úttekt Matvælastofnunar á sláturhúsinu hefur farið…Lesa meira

true

Vel mætt í stofngöngu Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs

Rétt tæplega hundrað manns mættu í stofngöngu Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs sem farin var um Jafnaskarðsskóg í gær. Eins og fram kom í Skessuhorni í vetur var FFB stofnað 1. mars. Fjölmenni skráði sig í félagið í upphafi og hefur fjölgað talsvert í hópnum á síðustu misserum. Nú þegar hafa verið farnar nokkrar styttri gönguferðir sem félagið…Lesa meira

true

Skagamenn töpuðu fyrir KR

Skagamenn léku gegn sínum gömlu erkifjendum í KR á Meistaravöllum í gærkvöldi í Pepsi Max deildinni í fótbolta og töpuðu með þremur mörkum gegn einu. Heimamenn komust strax yfir á sjöundu mínútu leiksins þegar Óskar Örn Hauksson skoraði með föstu skoti og stuttu síðar kom Kjartan Henry Finnbogason KR 2-0 yfir þegar hann skoraði af…Lesa meira

true

Rafmagn fór af um tíma

Rafmagnstruflun varð á Norðurárdalslínu í Borgarfirði klukkan 10:48 í dag. Straumleysið varði í stutta stund, en ekki er vitað um orsök truflunar, segir í tilkynningu frá Rarik, og ekki er búist við frekara rafmagnsleysi vegna þessa.Lesa meira

true

Víkingur Ó tapaði fyrir ÍBV

Víkingur Ólafsvík tapaði fjórða leiknum í röð í Lengjudeild karla í fótbolta í Vestmannaeyjum í gær þegar þeir léku gegn liði ÍBV. Heimamenn komust yfir strax á tíundu mínútu þegar Eyjamaðurinn Sigurður Grétar Benónýsson fékk langa sendingu inn fyrir vörnina og sólaði markmann Víkings, Marvin Darra Steinarsson, og renndi boltanum í autt markið. Eyjamenn voru…Lesa meira